03 október 2025
/
Úrskurður nr. 776/2025
Hinn 3. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 776/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24100191
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 25. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 12. október 2024, fyrir 11 daga dvöl sem ferðamaður frá 22. nóvember til 2. desember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kemur fram að kærandi ætli sér fyrst að ferðast til Noregs en síðan til Íslands, ásamt því að gerð er grein fyrir tilgangi ferðarinnar og fjárhagsstöðu kæranda.
Á kærustigi lagði kærandi fram ný gögn, þ. á m. flugmiða frá Noregi til Íslands.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu meðal annars leggja fram gögn sem tengjast ferðaáætlun, svo sem flugbókanir, sbr. 14. gr. og 2. viðauka reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 795/2022.
Í 8. mgr. 20. gr. kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að kærandi hefði ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið lögð fram flugbókun frá Noregi til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna fram á ferðamáta til Íslands eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 5. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Við meðferð umsóknar kæranda hjá Utanríkisráðuneytinu var hún upplýst um að flugbókun frá Noregi til Íslands vantaði. Var kæranda gefin frestur til að bregðast við sem hún gerði ekki. Kærandi hefur lagt fram flugbókun frá Noregi til Íslands á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hún áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á flugbókun þá sem lögð var fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.
Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Kærandi hefur þannig ekki sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og því ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. sömu laga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest. Kæranda er leiðbeint um að hún geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður