07 október 2025

/

Mál nr. 87/2025 Úrskurður 07. október 2025

Mál nr. 87/2025                    Eiginnafn: Latýna (kvk.)

Hinn 7. október 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2025 en erindið barst nefndinni 27. ágúst 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eins og kemur fram í máli mannanafnanefndar nr. 75/2025, þar sem sótt var um eignnafnið Latína, þá er latína samnafn, nánar tiltekið heiti tungumáls. Önnur dæmi um slík heiti eru til að mynda danska, norræna, fornháþýska, gríska og þýska, sbr. grein 1.3.4. íslenskra ritreglna, sbr. auglýsingar nr. 695/2016 og 800/2018 með síðari breytingum. Heiti tungumála hafa ekki verið notuð sem eiginnöfn og nöfn af því tagi eru ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og brjóta gegn íslensku málkerfi. Nafnið Latýna er ritháttarafbrigði af þessu samnafni og er borið eins fram og Latína. Sami rökstuðningur á því við um eiginnafnið Latýna og er beiðninni þegar af þeirri ástæðu hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Latýna (kvk.) er hafnað.