07 október 2025
/
Mál nr. 90/2025 Úrskurður 7. október 2025
Mál nr. 90/2025 Eiginnafn: Ýri (kvk.)
Hinn 7. október 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 90/2025 en erindið barst nefndinni 1. september 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Ýri (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ýrar (þf. Ýri, þgf. Ýri) og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn. Nafnið Ýri er hliðarmynd af Ýr (Ýrr í fornu máli). Ýri Geirmundardóttir (Heljarskinns) er t.d. persóna í gömlum sögum. Þetta nafn er af flokki kvenkyns ió-stofna. Þar var upphaflega -r í nefnifalli sem varð yfirleitt síðar -i (dæmi um það er samnafnið heiðr sem varð heiði í yngra máli).
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ýri (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.