09 október 2025

/

Mál nr. 454/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 454/2025

Fimmtudaginn 9. október 2025

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. júlí 2025, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 25. júní 2025, um að synja umsókn hans um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 25. júní 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1.-30. apríl 2025 hefði verið synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. júlí 2025. Með bréfi, dags. 29. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Svar barst frá Reykjavíkurborg 29. ágúst 2025 þar sem fram kom að við nánari skoðun á málinu teldi áfrýjunarnefnd velferðarráðs að skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 væru uppfyllt og því væri rétt að málið yrði endurupptekið áður en úrskurðarnefnd velferðarmála tæki ákvörðun í því. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. september 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til bréfs Reykjavíkurborgar. Svar barst 26. september 2025.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 25. júní 2025, um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1.-30. apríl 2025. Í kjölfar kærunnar var tekin ákvörðun um að endurupptaka hina kærðu ákvörðun með vísan til þess að ófullnægjandi upplýsingar hefðu legið fyrir þegar ákvörðun hafi verið tekin. Tekið var fram að haft yrði samband við kæranda til þess að fá frekari upplýsingar vegna málsins. 

Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirrar ákvörðunar. Í svari kæranda kemur fram að Reykjavíkurborg hafi þegar fengið þær upplýsingar sem beðið hafi verið um. Kærandi hafi margsinnis haft samband við borgina vegna málsins en ekki fengið nein svör. Því gæti kærandi ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en hann hafi fengið svör frá Reykjavíkurborg.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga er heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laganna til úrskurðarnefndarinnar. Nefndin metur að nýju alla þætti kærumáls, getur fellt úr gildi ógildanlegar ákvarðanir í heild eða að hluta en ekki tekið nýja ákvörðun í máli fyrir hönd sveitarfélags.

Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 40/1991. Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála. Bent er á að kærandi getur sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ný ákvörðun liggur fyrir frá áfrýjunarnefnd velferðarráðs, sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna.      


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir