09 október 2025

/

Nr. 775/2025 Úrskurður

Hinn 9. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 775/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25060058

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. júní 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 11. júní 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 11. júní 2025, með flugi frá Vínarborg, Austurríki. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsett sama dag, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að tilgangur dvalar kæranda væri óljós. Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 11. júní 2025, hafi lögregla haft afskipti af kæranda við komuhlið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar sem kærandi hafi gefið óljós svör um tilgang dvalar sinnar var honum boðið til viðtals í aðstöðu lögreglu. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður og hafi ætlað að skoða tiltekna ferðamannastaði á borð við eldgosasvæðið í Grindavík, safnið í Perlunni, ásamt því að ganga um Reykjavíkurborg. Aðspurður um tengsl við aðila á Íslandi hafi kærandi greint frá því að eiga tvo frændur hér á landi en við leit í innri kerfum hafi lögregla ekki fundið upplýsingar um aðilana. Kærandi kvaðst ætla að dvelja á tilteknu gistiheimili í fimm nætur og ferðast um með rútu. Hann hafi áður komið til landsins og dvalið í einn mánuð í senn, en aldrei lengur. Kærandi hafi sýnt fram á nægt fjármagn og staðfesti lögregla bókanir hans fyrir gistingu og flugi til heimaríkis að lokinni dvöl.

Lögregla bað kæranda að ítreka ferðaplan sitt í smáatriðum og hafi kærandi greint frá tiltekinni afþreyingu og stöðum sem hann hugðist heimsækja. Kærandi hafi þó þurft að leita í símanum sínum og verið fámáll í svörum. Aðspurður um afskipti lögreglu af sér vísaði kærandi til eins skiptis þegar lögregla hafi frávísað honum ári fyrr. Hafi lögregla þá tjáð kæranda að framburður hans væri ósannur þar sem lögregla hafði áður haft afskipti af honum hér á landi. Hafi kærandi þá borið fyrir sig að hafa misskilið spurningu lögreglu og haldið að lögregla ætti við fyrri frávísanir. Kvað kærandi þá lögreglu oft hafa haft afskipti af sér en gat ekki greint frá fjölda skipta með nákvæmum hætti. Um ástæðu afskiptanna kvaðst kærandi hafa verið neytandi fíkniefna en hefði hætt neyslu þeirra um ári áður.

Aðspurður um tengingu við Ísland kvaðst kærandi hafa átt ættingja hér á landi sem nú væru flutt til heimaríkis. Þá hafi hann ætlað sér að dvelja einsamall hér á landi en vera kynni að bróðir hans kæmi til landsins frá Chicago, fengi hann frí frá vinnu. Kærandi kvaðst starfa sem vaktstjóri á kaffihúsi í heimaríki og greindi lögreglu frá launum sínum. Hann sinnti einnig tilfallandi viðgerðum á húsum í aukastarfi. Aðspurður um fyrri búsetu á landinu kvaðst kærandi hafa oft komið til landsins en aldrei dvalið lengur en þrjá mánuði. Þá hafi lögregla borið landakort undir hann og beðið hann að benda á staði sem hann hugðist heimsækja og vissi kærandi hvorki hvar Reykjavík né Keflavíkurflugvöllur væri á landinu. Hann kvaðst ekki klár í notkun landakorta og myndi nota forrit í snjallsíma til þess að rata leiðar sinnar.

Lögregla hafi spurt kæranda hvers vegna hann hafi ekki stundað afþreyinguna sem hann hugðist stunda á Íslandi í fyrri ferðum til landsins. Aðspurður hafi kærandi gert aðra hluti þá og þótt þetta spennandi í þessari ferð. Kærandi kvaðst t.d. ekki hafa farið í gönguferð um Reykjavíkurborg með leiðsögumanni en fyrir slíka ferð þyrfti hann að greiða [...] evrur. Kærandi kvaðst ekki hafa bókað neina afþreyingu og og myndi gera það þegar hann kæmi á gististaðinn sinn.

Að mati lögreglu hafi kærandi ekki verið samkvæmur sjálfum sér og lagði til grundvallar að svör hans væru ekki nægjanlega áreiðanleg þar sem hann sagði í eitt skipti að hann hefði ekki dvalið lengur en einn mánuð á Íslandi en síðar kvaðst hann aldrei hafa dvalið lengur en þrjá mánuði á landinu. Þá hafi kærandi ekki sýnt fram á bókanir um ferðaáætlun nema með skjáskotum sem að mati lögreglu væri ekki áreiðanleg heimild. Í þeim efnum væri vert að nefna að kærandi hefði einungis [...] evrur meðferðis. Tilsvör kæranda um launagreiðslur sínar í heimaríki væru ekki í samræmi við leit á veraldarvefnum um meðallaun fyrir sambærileg störf. Þá hafi breyttur framburður kæranda um afskipti lögreglu verið til marks um ósannsögli. Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga vegna ótrúverðugs tilgangs dvalar. Við birtingu ákvörðunar kvaðst kærandi ekki munu undirrita hana án viðveru lögmanns. Aðspurður um lögmann greindi kærandi lögreglu frá nafngreindum lögmanni en hann hafði ekki nefnt það fyrr í málsmeðferðinni. Í kjölfarið hafi umboð lögmannsins verið birt og undirritað af kæranda.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 11. júní 2025. Kæranda var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 12. júní 2025. Greinargerð kæranda barst 25. júní 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 23. september 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi komið til landsins með flugi frá Vínarborg. Hann hafi bókaða gistingu á tilteknu gistiheimili í Reykjavík og átt bókað flug til heimaríkis að nýju 15. júní 2025. Lögregla hafi haft afskipti af honum á Keflavíkurflugvelli og birt honum ákvörðun um að sæta tilkynningarskyldu. Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa honum. Í rökstuðningi lögreglu kemur fram að tilgangur dvalar sé óljós en frekari rökstuðnings sé ekki til að dreifa. Þá hafi ákvörðuninni heldur ekki fylgt leiðbeiningar um að kærandi gæti óskað eftir efnislegum rökstuðningi. Hafi kærandi óskað eftir aðstoð lögmanns sem hafi í framhaldinu sent lögreglu tölvubréf sem innihéldi umboð. Óskað var eftir því að umboðið yrði undirritað af kæranda og vottað af starfsmönnum lögreglu. Fulltrúar lögreglu hafi þó ekki vottað umboðið.

Kærandi byggir á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni hér á landi í skilningi c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar með því að meina honum inngöngu í landið sökum óljóss tilgangs þegar hann hafi framvísað fullnægjandi gögnum um fyrirhugað ferðalag sitt til Íslands. Sé hin kærða ákvörðun því ólögmæt. Kærandi byggir á því að lögregla hafi brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Framangreind brot feli í sér efnislegan annmarka sem leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar. Að auki er byggt á því að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýsluréttar um markhæfni, þar sem ákvörðunin falli ekki að markmiðum 106. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að markmið sé að koma í veg fyrir að einstaklingar komi til landsins á fölskum forsendum með það fyrir augum að dvelja og vinna án leyfis. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi komið í öðrum tilgangi en sem ferðamaður.

Kærandi byggir einnig á verulegum málsmeðferðarannmörkum, efnislegum annmörkum og skorti á rökstuðningi. Hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, með því að leiðbeina kæranda ekki um hvaða gögnum hún hafi óskað eftir og veita honum ekki leiðbeiningar um þær réttarheimildir sem reynt hafi á við úrlausn málsins. Með framangreindu hafi lögregla að auki brotið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar jafnframt til þess að lögregla hafi brotið gegn skýlausum rétti hans samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga þar sem kæranda hafi ekki verið leiðbeint um rétt sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Kærandi vísar til tiltekinna úrskurða kærunefndar máli sínu til stuðnings. Hann telur að framangreindir annmarkar hafi leitt til þess að mál hans hafi ekki verið rannsakað í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Í hinni kærðu ákvörðun sé jafnframt ekki að finna rökstuðning og ekki sé tilgreint hvaða gögn hafi skort eða hafi leitt til niðurstöðu lögreglu í málinu. Hafi ákvörðunin heldur ekki innihaldið leiðbeiningar um rétt til rökstuðnings í samræmi við 1. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Ákvörðunin hafi því ekki verið nægilega skýr til að kærandi gæti metið réttarstöðu sína.

Kærandi telur að málsmeðferð lögreglu hafi verið ámælisverð og ekki í samræmi við góða og vandaða stjórnsýsluhætti. Hann hafi orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis og ákvörðunin brotið í bága við jafnræðisreglur, sbr. 65. gr. stjórnarskrárinnar, 11. gr. stjórnsýslulaga og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Bendir kærandi á að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum leiti sérstaklega uppi albanska komufarþega í því skyni að leita allra leiða til þess að vísa þeim frá landinu. Loks vísar kærandi til þess að lögreglu hafi ekki verið heimilt að skylda hann til þess að sæta tilkynningarskyldu á Keflavíkurflugvelli á grundvelli g-liðar 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga og 15. gr. laga um landamæri.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, sbr. viðauka 9 við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, og má dvelja hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 11. júní 2025, byggist á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi í fimm daga frá 11. til 15. júní 2025. Kærandi sýndi fram á farmiða úr landi og gistingu á meðan dvölinni stæði og fékk lögregla bókanir hans staðfestar. Í skýrslu lögreglu kemur einnig fram að kærandi hafi lagt fram vísi að ferðáætlun og greint frá afþreyingu og ferðamannastöðum sem hann hugðist heimsækja.  Hafi hann m.a. viljað sjá kvikmynd í áttvídd, heimsækja safnið í Perlunni, ganga um Reykjavíkurborg með leiðsögumanni og skoða eldgosasvæðið í Grindavík. Kærandi hafi ekki getað greint sjálfstætt frá fyrirætlunum sínum hér á landi án þess að skoða símann sinn. Þá hafi hann verið óskýr í svörum og margsaga um tiltekna þætti, þ.m.t. um fyrri dvöl og kunningja eða ættingja sem byggju hérlendis. Eru fyrri afskipti lögreglu af kæranda jafnframt til marks um auknar kröfur um að geta gert grein fyrir ferðaáætlun. Hafi kærandi framvísað [...] evrum í reiðufé til sönnunar á framfærslu sinni hérlendis. Ljóst er af ákvæði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri að útlendingar þurfa að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og leggja fram viðhlítandi gögn þar að lútandi. Meðal gagna sem talin eru upp í ákvæðinu er nægt fé til framfærslu en ljóst er að fjármagn verði að taka mið af ferðaáætlun, bæði er varðar lengd dvalar en einnig fyrirhugaða afþreyingu. Að framangreindu virtu verður því ekki fallist á að sú ferðaáætlun sem kærandi lýsti fyrir lögreglu teljist trúverðug, m.a. með hliðsjón af því fjármagni sem kærandi hafði til framfærslu. Með vísan til þess hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi dvalar með vísan til 5. gr. reglugerðar um um för yfir landamæri.

Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Kærandi vísar til þess að málsmeðferð lögreglunnar hafi brotið gegn 11. gr. laga um útlendinga þar sem lögregla hafi ekki vottað lögmannsumboð hans. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 453/2024, frá 8. maí 2024, en í málinu var kæru vísað frá nefndinni þar sem ekki hafi verið tekin afstaða til endurupptökubeiðni kæranda á ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Voru gerðar athugasemdir við málsmeðferð lögreglunnar, m.a. um að lögreglu hafi borið að hafa milligöngu um undirritun umboðs ella yrði réttur sem mælt sé fyrir um í a-lið 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga að engu hafður. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 1167/2024, frá 20. nóvember 2024, máli sínu til stuðnings en málsatvik í framangreindum úrskurði voru ekki sambærileg máli kæranda. Í umræddu máli lá fyrir afstaða málsaðila um að vilja leitast eftir aðstoð lögmanns og hafði lögmaður gert tilraunir til að hafa samband við lögreglu án árangurs. Í máli kæranda liggur fyrir, samkvæmt skýrslu lögreglu, að lögregla hafi upplýst kæranda um rétt sinn til þess að njóta aðstoðar lögmanns, strax í upphafi máls. Að auki liggur fyrir að lögmaður kæranda átti í tölvubréfasamskiptum við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem birti umboð fyrir kæranda og afhenti lögmanninum afrit umboðsins í beinu framhaldi. Þrátt fyrir að umboð kæranda hafi ekki verið vottað með fullnægjandi hætti frá upphafi, líkt og kærandi heldur fram í greinargerð, verður ekki talið að það hafi komið í veg fyrir að kærandi hafi getað notið réttar síns skv. a-lið 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga. Gögn málsins bera ekki með sér að lögregla hafi neitað að eiga samskipti við lögmanns kæranda. Verður ekki talið að brotið hafi verið gegn rétti kæranda til að njóta aðstoðar lögmanns í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar jafnframt til þess að málsmeðferð og ákvörðun lögreglunnar hafi brotið gegn 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga. Með tilliti til framangreinds og að öðru leyti er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglunnar í máli kæranda.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda staðfest.

Athugasemdir kæranda við meðferð lögreglu

Kærandi kveðst hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis við meðferð málsins. Að virtum gögnum málsins hefur kærandi ekki fært rök fyrir því að meðferð málsins hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög, lög um útlendinga og aðrar óskráðar málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttarins. Kæranda er bent á að hann geti borið umkvartanir um vinnubrögð lögreglu undir nefnd um eftirlit með lögreglu eða héraðssaksóknara, sbr. VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, telji hann ástæðu til.

Athugasemdir við störf lögreglu 

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Líkt og að framan greinir sýndi kærandi fram á takmarkaða fjármuni til framfærslu hér á landi. Hefði því verið tilefni fyrir lögreglu að taka til sérstakrar skoðunar hvort skilyrðum frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga hafi verið fullnægt. Að auki vísar skýrsla lögreglu m.a. til fyrri afskipta lögreglu af kæranda án þess að gera nánari grein fyrir afskiptunum sem þó höfðu þýðingu fyrir niðurstöðu málsins. Beinir kærunefnd því til lögreglu að gæta að framangreindu við úrvinnslu mála um frávísun.

Skylda kæranda til að dveljast á tilteknum stað

Í greinargerð kæranda er gerð krafa þess efnis að felld verði úr gildi ákvörðun lögreglu um að gera kæranda að halda sig á ákveðnum stað á grundvelli 15. gr. laga um landamæri nr. 136/2022, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Endurskoðun á ákvörðunum lögreglu sem teknar eru á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga er á höndum dómstóla en ekki kærunefndar útlendingamála. Verður þeim hluta málsins því vísað frá kærunefnd.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir                                 Vera Dögg Guðmundsdóttir