13 október 2025

/

Mál nr. 103/2025 Úrskurður 13. október 2025

Mál nr. 103/2025                  Eiginnafn: Kalix (kk.)

Hinn 13. október 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 102/2025 en erindið barst nefndinni sama dag.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Kalix (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kalix (sbr. Felix), og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kalix (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.