13 október 2025

/

Nr. 786/2025 Úrskurður

Hinn 13. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 786/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100201

Kæra […]

1        Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 31. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2          Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 17. október 2024, fyrir 12 daga dvöl sem ferðamaður frá 18. til 29. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram á Indlandi.

Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.

3        Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að ástæðan fyrir því að kærandi hafi hlotið synjun um vegabréfsáritun hafi verið vegna þess að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun. Þessu hafni kærandi og kveðst hann hafa lagt fram öll tilskilin fylgisjöl með umsókninni, þar á meðal flugbókun með gildu bókunarnúmeri. Kærandi uppfylli öll skilyrði til að fá veitta vegabréfsáritun.

4        Vegabréfsáritun

4.1       Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu framvísa skjölum sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna, svo sem miða til heimferðar eða hringferðar eða bókun slíks miða, sbr. 14. gr. og 2. viðauka reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Í 8. mgr. 20. gr. kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2          Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 12, þ.e. að rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að staðfesting á atvinnu hafi verið óáreiðanleg og ekki hafi verið unnt að staðfesta flugbókun. Kærandi hafi ekki lagt fram flugáætlun með gildu bókunarnúmeri. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Gögn sem sýna fram á ferðamáta til Íslands eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 5. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands á Indlandi. Líkt og að framan greinir var umsókn kæranda um vegabréfsáritun m.a. synjað á þeim grundvelli að ekki hafi reynst unnt að staðfesta flugbókun, en flugáætlunin sem kærandi hafi lagt fram hafi ekki verið með gildu bókunarnúmeri. Kærandi hefur ekki lagt fram nýja flugbókun á kærustigi. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa að draga í efa ásetning kæranda til að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er þannig ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hefur veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður