13 október 2025

/

Nr. 788/2025 Úrskurður

 

Hinn 13. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 788/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100179

Kæra […]

1        Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2          Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins sem ferðamaður 14. október 2024, fyrir sex daga dvöl frá 3. til 11. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi.

3        Málsástæður og rök kæranda

Í kæru er vísað til ástæðna fyrir synjun á umsókn kæranda. Kærandi kveðst hafa verið nýkomin af löngum fundi þegar símaviðtal fór fram og hún hafi því tímabundið verið ófær um að rifja upp smáatriði í símaviðtalinu. Markmiðið með ferðalaginu sé að taka stutt foreldraorlof, hún sé móðir tveggja ungra barna, en systir hennar muni annast börnin hennar á meðan á ferðalaginu stendur. Vinkona kæranda og ferðafélagi, sem jafnframt bókaði flugmiðana, muni koma frá Nígeríu til London 1. nóvember 2024 og þær ferðast saman til Íslands 3. nóvember. Kærandi tekur fram að hún hafi sett sig í samband við ferðaskrifstofu sem hafi skipulagt ferðaáætlun fyrir þær vinkonurnar, sem innihaldi m.a. heimsókn í Bláa lónið og aðra þekkta ferðamannastaði á Íslandi. Kærandi vísar til þess að hún hafi undanfarið ár sinnt tímabundnu starfi hjá nafngreindu fyrirtæki. Laun hennar komi frá fyrirtækinu og móðurfyrirtæki. Hún hafi fengið tilkynningu frá skattayfirvöldum í Bretlandi um mögulegt skattaundanskot. Af því tilefni hafi hún sagt starfinu upp og fengið nýtt hjá nafngreindu fyrirtæki. Í kæru kemur fram að meðfylgjandi séu viðbótargögn sem þó fylgdu ekki. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 28. október 2024 var kærandi hvött til að leggja fram öll þau gögn sem hún teldi að máli gætu skipt. Engin frekari gögn bárust frá kæranda.

4        Vegabréfsáritun

4.1       Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Nígeríu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu framvísa skjölum sem gefa til kynna tilgang ferðar og framvísa upplýsingum sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, sbr. a- og d-liði 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2          Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að í viðtali hafi kæranda skort þekkingu á ferðinni. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 15. október 2024 þar sem launaseðla og upplýsingar um laun vantaði meðal fylgigagna með umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Í dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi nefnt norðurljósin, náttúru og heit böð. Svör kæranda hafi verið óljós og kærandi hafi ekki getað fjallað frekar um framangreind þrjú atriði sem hún nefndi að hún vildi gera á Íslandi. Kærandi hafi ekki nefnt neitt af þeim atriðum sem fram hafi komið í framlagðri ferðaáætlun. Kærandi kvaðst hafa lokið við einhverjar bókanir en hafi ekki nefnt hvaða bókanir það væru. Þegar kærandi hafi verið spurð hvernig hún hygðist ferðast til heitra baða hafi hún nefnt leigubíl eða Uber. Í framhaldi af viðtali við kæranda hafi henni verið sent tölvubréf, dags. 16. október 2024, og hún beðin um að leggja fram launaseðla og mynd af vegabréfsáritun vinkonu hennar og ferðafélaga. Svar kæranda, ásamt umbeðnum gögnum, hafi borist utanríkisþjónustunni samdægurs. Sama dag er skráð í dagbók að umsókn kæranda verði skoðuð nánar. Í dagbókarfærslu, dags. 21. október 2024, kemur fram að lagt sé til að umsókn kæranda sé synjað vegna gruns um mögulegt áritanasnap (e. visa shopping). Er vísað til frammistöðu kæranda í viðtali, sbr. framangreint. Til viðbótar kemur fram að kærandi hafi sagst ætla að ferðast með vinkonu sinni en hafi þó einungis lagt fram hótelbókun fyrir einn.  

Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 6. og 7. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Bretlandi, þar sem kærandi lagði sína umsókn fram. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að hnekkja mati Útlendingastofnunar um frammistöðu hennar í viðtali. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Úr framangreindum annmarka verður ekki bætt á kærustigi með framlagningu uppfærðrar ferðaáætlunar.

Að framangreindu virtu voru upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar; og rökstudd ástæða er til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur kærandi þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, og ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem kærandi veitti, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður