16 október 2025
/
Úrskurður nr. 737/2025
Hinn 16. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 737/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24030075
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. mars 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. febrúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Þýskalandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 27. febrúar 2023. Kvaðst kærandi hafa flúið Írak sökum stríðsástands, pólitískra ofsókna og af ótta við að verða drepinn þar í landi. Kærandi hafi farið frá Írak 6. janúar 2023 eftir að hafa átt í ástarsambandi við unga konu en hún hafi tjáð kæranda að hann þyrfti að fara úr landi þar sem leitað væri að honum þar. Kærandi kvað alla fjölskyldu sína vera í hættu í heimaríki sökum þessa. Kærandi hafi farið ólöglega frá heimaríki til Tyrklands og þaðan til Ítalíu. Kærandi hafi síðan farið frá Ítalíu til Austurríkis og þaðan til Þýskalands. Kærandi kvaðst hafa ferðast ólöglega yfir öll landamæri og stundum fótgangandi. Að sögn kæranda hafi hann kynnst ótilgreindum aðila búsettum í Þýskalandi sem hafi skipulagt ferð kæranda til Íslands. Hann hafi ákveðið að koma til Íslands eftir að hafa leitað á veraldarvefnum að öruggum stöðum og kvað hann Ísland vera eina landið þar sem hann gæti verið öruggur. Kærandi hafi starfað sem hárgreiðslumaður í heimaríki, ekki hlotið herþjálfun né komist í kast við lögin. Hann sé í góðu sambandi við foreldra og systkini sín í Írak. Kærandi sé með hálsbólgu eftir að hafa ferðast lengi en sé að öðru leyti heilsuhraustur.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 31. mars 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Erbil í Kúrdistan í Írak þar sem hann hafi verið búsettur áður en hann hafi yfirgefið heimaríki hinn 6. janúar 2023. Af frásögn kæranda má ráða að fjárhagsstaða hans í heimaríki hafi verið meðalgóð. Kærandi kvaðst tilheyra sérstöku þjóðarbroti í heimaríki sem sorani Kúrdi og minnihlutahópi sem Kúrdi. Aðspurður kvaðst kærandi vera múslimi en ekki trúaður og ekki vita hvort hann væri súnníti eða sjíti. Kærandi kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Félagslegar aðstæður kæranda í heimaríki hafi verið eðlilegar og hann hafi átt vini. Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans gerðu það að verkum að hann hafi yfirgefið Írak kvaðst kærandi hafa verið í leynilegu sambandi í sex mánuði með tilgreindri ungri konu (hér eftir A) af Barzini ættinni, sem sé þekkt og valdamikil fjölskylda í Írak. Að sögn kæranda séu fjölskyldumeðlimir A meðlimir stjórnarflokksins KDP (e. Kurdistan Democratic Party) og faðir hennar í stjórnunarstöðu innan flokksins. Hinn 5. janúar 2023 hafi fjölskylda A komist á snoðir um sambandið, bróðir og faðir A hafi strax í kjölfarið hringt í kæranda og hótað lífi hans. Aðspurður kvað kærandi bróður og föður A hafa sagst ætla að drepa kæranda og sakað hann um að stofna frægð fjölskyldunnar í hættu. Þá hafi faðir A sagst ætla að koma heim til kæranda en að sögn kæranda hafi hann verið farinn af heimilinu þegar þeir hafi komið. Kærandi hafi yfirgefið Írak næsta dag eða 6. janúar 2023. Af frásögn kæranda má ráða að þar sem hann sé af lægri stétt en A hafi samband þeirra verið óásættanlegt og til skammar. Innan ættar A sé það hefð að feður og bræður kvenna velji framtíðar maka þeirra innan ættarinnar. Kærandi kvaðst hafa leitað til lögreglunnar og lagt fram kæru gegn föður og bróður A en fulltrúar lögreglunnar hafi ekkert aðhafst í málinu eftir að hafa séð nöfn hinna kærðu. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa fengið nein gögn frá lögreglunni en af frásögn hans má ráða að hann hafi sent inn einhvers konar umsókn eða eyðublað til lögreglunnar í heimaríki og hafi lagt fram myndir af framangreindu gagni hjá Útlendingastofnun. Kærandi óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar í Írak og kvaðst ekki telja sig geta leitað aðstoðar né verndar yfirvalda þar í landi. Hann hafi ekki getað flust til annars hlutar heimaríkis eða nágrannalanda þar sem völd fjölskyldu A nái til alls landsins, nágrannalanda, Frakklands og Þýskalands. Aðspurður hvort fjölskylda kæranda í Írak hafi orðið fyrir hótunum eftir að hann hafi yfirgefið landið greindi kærandi frá því að bróðir hans hafi fengið skilaboð í síma þar sem lífi kæranda hafi verið hótað og að ótilgreindir aðilar hafi elt fjölskyldumeðlimi hans til að fá heimilisfang kæranda uppgefið. Kærandi hafi ekki heyrt í A eftir að honum hafi borist hótanirnar og viti ekki hvort hún sé í hættu en telji það vera líklegt.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 12. mars 2024. Hinn 14. mars 2024 barst kærunefnd tölvubréf frá nýjum talsmanni kæranda ásamt umboði. Greinargerð barst kærunefnd 27. mars 2024 ásamt fylgiskjölum. Hinn 11. september 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Svör kæranda bárust kærunefnd 15. september 2025. Með tölvubréfi, dags. 2. október 2025, óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá kæranda og hinn 6. október 2025 bárust kærunefnd svör frá kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali hjá Útlendingastofnun. Þar kemur að auki fram að kærandi óttist að verða tekinn af lífi í Írak vegna fyrrum ástarsambands síns við A sem hafi farið gegn því sem viðurkennt sé meðal ættbálka í landinu. Fjölskylda A sé valdamikil og þekkt fyrir að myrða einstaklinga. Þá sé faðir A fremst í stjórnarflokknum KDP.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Telur kærandi að meðferð stofnunarinnar á landaupplýsingum feli í sér annmarka sem varði við rannsóknarregluna, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglu um rökstuðning stjórnvalda, sbr. 22. gr. sömu laga, réttmætisreglu stjórnsýsluréttar og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Kærandi gerir sérstaka athugasemd við vinnubrögð stofnunarinnar og telur hina kærðu ákvörðun bera með sér skort á vandvirkni við vinnslu ákvörðunarinnar af hálfu Útlendingastofnunar. Vísar kærandi til þess að í hinni kærðu ákvörðun komi annars vegar tvívegis fram að kærandi sé frá Venesúela og hins vegar að kærandi eigi eiginkonu og börn. Í ljósi framangreinds telur kærandi sig ekki geta treyst því að meðferð á máli hans hafi verið háttað í samræmi við réttindi hans samkvæmt stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga. Um verulegan annmarka sé að ræða og í ljósi réttaröryggis telur kærandi sig ekki geta gert ráð fyrir því að með áframhaldandi meðferð muni mál hans hljóta tilhlýðilega úrlausn stjórnvalda á tveimur stjórnsýslustigum.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hann tilheyri þjóðfélagshópi sem þolandi líflátshótana af hálfu valdamikilla aðila í Kúrdistan, á grundvelli þjóðernis síns sem sorani Kúrdi og á grundvelli trúarbragða, sbr. b-, c- og d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi búi því við ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a – c-liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðildar að framangreindum þjóðfélagshópum. Vísar kærandi til þess að hann eigi yfir höfði sér blóðhefnd vegna ástarsambands utan hjónabands og án samþykkis fjölskyldu fyrrverandi kærustu sinnar. Þá vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar í fyrri ákvörðunum að ofsóknir á grundvelli trúarbragða í Kúrdistan beinist einkum að karlmönnum og að úrlausn stofnunarinnar í hinni kærðu ákvörðun skjóti skökku við þeirri framkvæmd, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að hann eigi undir högg að sækja sem Kúrdi í Írak, sem hafi þýðingu ef kærandi myndi leita út fyrir heimasvæði sitt vegna valda KDP og Barzani fjölskyldunnar. Um grundvöll ofsókna vísar kærandi því einnig til almennrar þjóðfélagsstöðu Kúrda í Írak og bendir á langvarandi spennu og átök á milli kúrdíska minnihlutans og yfirvalda í Bagdad, auk þess sem kæranda stafi ógn af hálfu árása Tyrkja í Kúrdistan. Þá vísar kærandi til þess að árásir, gróf mannréttindabrot og ofbeldi af hálfu ISIS þekkist á svæði Kúrdistan í Írak og nefnir sem dæmi atvik á Erbil svæðinu í janúar 2024. Fyrir liggi að kærandi hvorki hafi né geti hlotið vernd yfirvalda í Írak þar sem yfirvöld séu sjálf valdar að ofsóknum m.a. með athafnaleysi sínu og vegna tengsla við ofsóknaraðila kæranda, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi ítrekar að hafi einstaklingur átt í deilum við kúrdískan stjórnmálamann sé ekki talið að honum yrði veitt vernd af hálfu yfirvalda. Með vísan til framangreinds telur kærandi sig hafa lögmætt tilkall til alþjóðlegrar verndar á grundvelli samsafns athafna.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi lagst gegn endursendingum einstaklinga til Írak sem komi frá svæðum þar sem átök geisa eða ástand sé veikburða eða óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn ISIS. Kærandi vísar til þess að frá því að árásir hófust á Gaza í október 2023 hafi fjöldi árása átt sér stað í Írak, þ.m.t. Kúrdistan. Kærandi vísar jafnframt til þess að fjöldi heimilda samræmist frásögn hans um heiðursmorð, blóðhefndir og heiðursglæpi. Kærandi telur hvorki raunhæft né sanngjarnt að hann setjist að annars staðar í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem hann sé í hættu í öllu landinu í ljósi hótana í garð hans og umsvifa fjölskyldumeðlima fyrrverandi kærustu kæranda innan KDP.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna. Kærandi vísar til þess að fyrir liggi að langvarandi átök hafi átt sér stað í Kúrdistan í Írak sem hafi færst í aukana eftir upphaf árása á Gaza svæðinu í október 2023. Þá hafi kærandi átt í ástarsambandi við unga konu, þvert á ríkjandi trúarsiði og menningarviðhorf í Kúrdistan. Kæranda sé mörkuð sérstaklega erfið staða í ljósi þess að fjölskylda fyrrverandi kærustu hans sé valdamikil í heimaríki hans vegna pólitískra umsvifa þeirra og fyrri líflátshótana í garð kæranda af hálfu tiltekinna fjölskyldumeðlima.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. rannsóknarreglunni auk þess sem hún beri með sér skort á vandvirkni.
Kærunefnd tekur undir gagnrýni kæranda um að rökstuðningur í ákvörðun Útlendingastofnunar beri með sér að skort hafi á vandvirkni og að tilvísun til heimilda í rökstuðningi afmarkaðra þátta ákvörðunarinnar sé ekki í samræmi við tilvísun til heimilda í upphafi ákvörðunar og gefi ástæðu til að efast um að aðstæður í heimaríki kæranda hafi verið rannsakaðar á fullnægjandi hátt. Einkum er ljóst að tilvísun annars vegar til aðstæðna í Venesúela og hins vegar til tveggja heimilda, annars vegar ferðabloggs einstaklings og svo eldri skýrslu hvað varðar almennar aðstæður á heimasvæði kæranda er ekki í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Af lestri ákvörðunarinnar í heild sinni má þó ráða að hér sé annmarkinn bundinn við rökstuðning ákvörðunarinnar en að fullnægjandi rannsókn hafi farið fram á almennum aðstæðum sem og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda í heimaríki hans. Þá hefur verið bætt úr framangreindum annmarka við málsmeðferð á kærustigi og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að annmarkinn hefur ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili og að það væri mat stofnunarinnar að kærandi hefði ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Kúrdistan í Írak þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Með tölvubréfi til kærunefndar, dags. 3. desember 2024, greindi kærandi frá því að geta lagt fram persónuskilríki sitt til þess að sanna auðkenni sitt sé þess þörf. Hinn 3. september 2025 barst kærunefnd persónuskilríki kæranda. Verður því lagt til grundvallar að kærandi sé írakskur ríkisborgari og hafi sannað á sér deili við meðferð málsins hjá kærunefnd.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- ACLED Factsheet – US strikes and counter-strikes in the Middle East (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), uppfært 4. febrúar 2024);
- Annual Report on International Religious Freedom: Iraq (Covering 2022) (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
- Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum(EUAA), 29. júní 2022);
- Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum (EUAA), nóvember 2024);
- Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Union Agency for Asylum (EUAA), júní 2022);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Targeting of Individuals (European Asylum Support Office, mars 2019);
- Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Blood feuds, honour crimes and tribal violence (UK Home Office, júlí 2024, uppfært 10. september 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, október 2023);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Security situation (UK Home Office, nóvember 2022);
- Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
- Country Report on Terrorism 2022 (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Country Report on Terrorism 2021 (U.S. Department of State, 27. febrúar 2023);
- Det politiska läget och säkerhetsutvecklingen 2022 till augusti 2023 (Migrationsverket, 19. september 2023);
- DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
- Education in Iraq. Impact of Covid-19, protests, and pre-existing cries on needs (Acaps, 9. nóvember 2020);
- Ekteskap i Irak (inkludert i KRI) (Landinfo, 25. apríl 2023);
- Freedom in the World 2023 – Iraq (Freedom House, 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, janúar 2024);
- Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
- Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, 28. maí 2024);
- Iraq – Targeting of Individuals (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
- Kurdistan Region of Iraq (KRI) – Women and men in honour related conflicts. (Danish Immigration Service, nóvember 2018);
- Relevant Country of Origin Information to Assist with the Application of UNHCR’s Country Guidance on Iraq - Ability of Iraqis to Legally Access and Settle Durably in Proposed Areas of Internal Relocation (UNHCR, nóvember 2022);
- Report on the human rights situation covering 2022 (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
- The Muqawama and Its Enemies – Shifting Patterns in Iran-Backed Shiite Militia Activity in Iraq (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), 23. maí 2023);
- The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 17. september 2025);
- UNHCR Fact Sheet – Iraq (UNHCR, ágúst 2023);
- United Nations Sustainable Development Cooperation Framework IRAQ (United Nations, 6. september 2021);
- United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
- Upplýsingasíða United States Institute of Peace (Iraq Timeline: Since the 2003 War United States Institute of Peace (usip.org), sótt 25. september 2024);
- World Report 2024 – Iraq (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- Ære og æresrelatert vold (Landinfo, 10. mars 2022).
Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.
Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar Arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin. Arabíska og kúrdíska séu opinber tungumál Í Írak.
Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.
Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003, hafi nýir leiðtogar Íraks átt í erfiðleikum með að marka lýðræðislega stefnu eftir áratuga einræði og hafi einkum tvær aðgerðir átt veigamikinn þátt í því. Í fyrsta lagi hafi ákvörðun Bandaríkjanna um að útiloka Baath-flokkinn, sem hafi lengi verið við völd og hvernig það hafi verið útfært, frá stjórn ríkisins skapað pólitískt tómarúm. Í öðru lagi hafi sú aðgerð að leysa upp her landsins og útiloka hundruð þúsunda þjálfaðra manna frá störfum við varnir ríkisins, án þess að koma á fót öðrum valkostum, skilið eftir öryggistóm. Í kjölfarið hafi Írak mátt þola borgarastyrjöld, pólitíska ringulreið, víðtæka spillingu, spennu á milli flokka og öfgahópa sem hafi hertekið þriðjung landsins. Við þessa atburði hafi hið pólitíska valdajafnvægi sem ríkt hafði undir stjórn súnníta um aldir riðlast verulega. Sjítar hafi krafist forsætisráðuneytisins og haft nægilegt vald til að stjórna helstu ráðuneytum. Þá hafi í fyrsta skipti verið kúrdískur forseti í Írak og Kúrdar, sem lengi höfðu krafist sjálfsstjórnar frá Bagdad, orðið hluti af ríkinu. Stjórnarskráin viðurkenni sjálfstjórn Kúrdistan héraðs (KRG) og formlega stöðu Peshmerga herafla hennar. Súnnítar, sem höfðu drottnað yfir ríkinu undir stjórn Saddams, hafi haldið lykilstöðu forseta þingsins en misst aðrar valdastöður. Árið 2011 ákváðu Bandaríkin að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópi súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og endurnefndu þau sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Samtökin séu einnig þekkt sem ISIL (Islamic State in Iraq and the Levant (ISIL)) og Daesh (hér eftir verður notað Daesh). Í júní 2014 hafi Daesh náð þriðjungi landsins á sitt vald og hafi leiðtogi Daesh, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg Íraks, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá Daesh. Í desember 2017 lýsti Haider al-Abadi forsætisráðherra yfir sigri gegn Daesh. Í skýrslu EASO frá 2019 er fjallað um aukin yfirráð yfirvalda í Írak í kjölfar þess að sigur hafi verið unninn á Daesh. Fram kemur að íröksk yfirvöld geti, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklinga, almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad og í suðurhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 að öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt af írakska hernum, lögreglunni, hersveitum PMF (e. Popular Mobilization Forces) og ýmsum sjíta hersveitum.
Í framangreindum gögnum kemur þá fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfsstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.
Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI.Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á umdeildum svæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRIog landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRIen það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem fram fóru þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum. Í kosningum sem fram fóru í október 2024 hafi KDP haldið stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins með 39 þingsæti af 100 en PUK flokkurinn verið í öðru sæti með 23 sæti og stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn Ný kynslóð (e. New Generation) hlotið 15 sæti.
Í framangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í menningu KRI. Árið 2002 hafi kúrdísk yfirvöld breytt írökskum hegningarlögum á þann veg að heiðursmorð séu skilgreind sem manndráp og gerendur saksóttir á þeim grundvelli. Þá hafi verið samþykkt lög árið 2004 sem banni mildun refsinga fyrir heiðursglæpi. Hins vegar séu heimildir um að kúrdísk stjórnvöld hafi látið hjá líða að saksækja gerendur ofbeldisglæpa gegn konum, þar á meðal heiðursglæpa. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum, en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að í Kúrdistan sé þekkt að konur séu neyddar í hjónabönd af ýmsum ástæðum. Í skýrslum danskra útlendingayfirvalda frá nóvember 2018 og Landinfo frá mars 2022 kemur fram að karlmenn geti verið fórnarlömb heiðursglæpa í Kúrdistan, þó í minna mæli en konur. Ástæður fyrir morði á karlmanni séu einkum þegar karlmenn neiti að ganga í skipulagðan hjúskap, séu opinberlega samkynhneigðir eða tvíkynhneigðir eða neiti að taka þátt í heiðurstengdu ofbeldi gegn öðrum. Karlmenn sem séu í sambandi við konu utan hjónabands séu ekki taldir vega að heiðri fjölskyldunnar og aðstæður karlmanna í slíkum tilvikum séu ekki þær sömu og í tilviki kvenna. Karlmaður sem sé í slíkri stöðu geti oft auðveldlega komist undan eða flúið ágreining hvað þetta varðar, m.a. með vernd frá vinum sínum eða með því að breyta um nafn, sem sé auðgert fyrir karlmenn í Írak. Þrátt fyrir að það þekkist að karlmenn séu myrtir í kjölfar sambands utan hjónabands sé slíkt frekar tengt hefnd eða afleiðingum blóðhefndar en heiðri fjölskyldunnar. Hins vegar sé það vaninn að bæði fjölskyldur eða ættbálkar konunnar og karlmannsins taki ákvörðun um heiðursmorð á karlmanninum í sameiningu. Viðmælendur danskra útlendingayfirvalda vissu ekki af neinum tilvikum heiðursmorða þar sem einungis karlmaðurinn hafi verið myrtur en ekki konan.
Í skýrslu EUAA frá maí 2024 kemur fram að Erbil héraðið sé í Kúrdistan í norður Írak og að höfuðborg héraðsins, borgin Erbil, sé einnig höfuðborg Kúrdistan. Fram kemur að Erbil sé stjórnað af KDP sem hafi tengsl við Peshmerga og öryggissveitir héraðsins. Þá séu höfuðstöðvar sérstakrar stofnunar gegn hryðjuverkum (Directorate General of Counter Terrorism, CTD) í Erbil borg. Einnig séu liðsmenn frá Bandaríska hernum staðsettir í Harir herstöðinni utan Erbil borgar og á Erbil International Airport. Daesh hafi samkvæmt skýrslunni litla viðveru í Kúrdistan.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.
Þær heimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að Barzani ættin hafi verið við völd á svæðinu sem nú sé Kúrdistan í áratugi. Masoud Barzani hafi gegnt embætti forseta á árunum 2005-2017. Hann hafi tekið við formennsku í KDP flokknum af föður sínum Mustafa Barzani árið 1979. Masoud Barzani sé talinn hafa verið einn þeirra sem hafi tekist að fá Kúrdistan viðurkennt sem sjálfstjórnarhérað eftir fall Saddam Hussein árið 2003. Árið 2019 hafi elsti sonur Masoud Barzani, Masrour Barzani tekið við embætti forsætisráðherra Kúrdistan af frænda sínum Nechirvan Barzani sem nú gegni embætti forseta í Kúrdistan.
Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 og 2024 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á líflátshótunum sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki af hálfu meðlima Barzani fjölskyldunnar vegna fyrrum sambands hans við unga konu úr fjölskyldunni.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem sorani Kúrdi. Af frásögn kæranda má ráða að fjölskylda fyrrum kærustu hans hafi litið niður á kæranda sökum þessa. Heimildir um heimaríki kæranda bera ekki með sér að sorani Kúrdar tilheyri minnihlutahópi í Kúrdistan eða í Írak almennt. Sorani sé tilvísun í ákveðna tegund mállýsku kúrdísku sem þekkist einnig undir heitinu mið-kúrdíska og sé eitt af tveimur opinberum tungumálum í Írak ásamt arabísku. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kæranda sem sorani mælandi Kúrdi séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa yfirgefið heimaríki degi eftir að hafa orðið fyrir líflátshótunum af hálfu fjölskyldumeðlima fyrrum kærustu sinnar A sem tilheyri Barzani fjölskyldunni, valdamikilli ætt í Kúrdistan og innan Kúrdíska lýðræðisflokksins (KDP). Að sögn kæranda sé A dóttir nafngreinds manns sem hann kveður vera leiðtoga KDP. Kærandi og A hafi farið leynt með samband sitt sem hafi varað í hálft ár þar til fjölskylda A hafi komist á snoðir um sambandið hinn 5. janúar 2023. Í kjölfarið hafi faðir og bróðir A hringt í kæranda og hótað honum lífláti þar sem þeir hafi ekki samþykkt samband kæranda og A. Þá kvaðst kærandi hafa lagt fram kæru hjá lögreglu vegna hótana föður og bróður A sama dag og honum hafi borist umræddar hótanir en lögreglan hafi ekki aðhafst í málinu vegna valda hinna kærðu.
Kærandi lagði fram ýmis gögn til stuðnings frásagnar sinnar, m.a. fjölda ódagsettra mynda og myndbanda af sér og ungri konu sem kærandi kveður vera A, myndir af A og einstaklingi sem kærandi kveður vera bróður hennar sem og afrit af skólaskírteini A og auðkenniskorti hennar. Framlögð gögn bera með sér að kærandi hafi átt í sambandi við unga konu að nafni […], A. Ekki er hægt að útiloka að A tilheyri Barzani ættinni þrátt fyrir að ekkert í framlögðum gögnum bendi til þess að svo sé. Hafa því framangreind gögn takmarkað sönnunargildi í málinu annað en að styðja að kærandi hafi átt í ástarsambandi við A, sem ekki er hægt að útiloka að tilheyri Barzani fjölskyldunni.
Þá lagði kærandi fram skjáskot af ódagsettum skilaboðum sem hann kveður hafa verið send bróður sínum af bróður A þar sem bróðir A hóti lífi kæranda. Af vélrænni þýðingu á framangreindum skilaboðum má ráða að þau innihaldi einhvers konar líflátshótun, þó ekki í garð viðtakanda skilaboðana né einhvers annars tilgreinds aðila. Ekki má ráða ástæðu hótunarinnar af efni skilaboðanna, hvenær þau hafi verið send eða hver hafi sent þau. Skilaboðin bera ekki með sér að vísa til kæranda, A eða nokkurra atburða. Að mati kærunefndar er framangreint gagn hvorki til þess fallið að renna stoðum undir né hrekja fullyrðingu kæranda um efni skilaboðanna eða sendanda þeirra og hefur því takmarkað sönnunargildi.
Loks lagði kærandi fram afrit af fimm skjölum sem hann kveður annars vegar stafa frá lögreglustjóranum í Soran í Kúrdistan og hins vegar frá rannsóknardómstól í Soran og varða kæru á hendur föður og bróður A fyrir líflátshótanir í garð kæranda. Bera framlögð skjöl með sér að fjögur þeirra virðast vera frá forvarnadeild lögreglunnar í Soran, dags. ýmist 5., 6. og 8. janúar 2023, en eitt skjal virðist vera frá rannsóknardómstól í Soran, dags. 1. janúar 2023. Af vélrænni þýðingu framlagðra skjala má ráða að kærandi hafi lagt fram kvörtun gegn tveimur nafngreindum einstaklingum, […]og […], sem hafi hótað kæranda lífláti í gegnum símtöl eftir að hafa komist á snoðir um samband hans við […]. Lagt hafi verið hald á farsíma kæranda í þágu rannsóknar málsins og ákveðið hafi verið að handtaka hina kærðu. Um er að ræða myndir af framangreindum skjölum og er því ekki unnt að sannreyna uppruna þeirra eða áreiðanleika. Við meðferð málsins óskaði kærunefnd eftir svörum frá kæranda um ástæðu þess að framangreind skjöl hafi ekki verið lögð fram á fyrri stigum málsins og hvernig kærandi hafi fengið aðgang að umræddum skjölum. Var óskað eftir upplýsingum um af hverju kærandi hafi fullyrt í viðtali hjá Útlendingastofnun að lögreglan hafi ekki gripið til neinna aðgerða í máli hans eftir að hann hafi lagt fram kæruna þegar framlögð skjöl beri með sér hið gagnstæða. Af svari kæranda má ráða að vinur hans í Írak hafi fyrir tilviljun náð að afla sér afrita af skjölum frá lögreglunni sem hann hafi sent kæranda og kærandi hafi lagt skjölin tafarlaust fram. Kærandi kveður einstaklinginn sem hafi hótað honum ganga frjálsan í Soran og frá sjónarhorni kæranda hafi yfirvöld ekki gert neitt til að tryggja öryggi hans.
Kærunefnd telur ekki ástæðu til þess að efast um að kæranda hafi verið hótað af föður og bróður A vegna sambands kæranda og A í byrjun árs 2023. Engu að síður hefur kærandi ekki leitt að því líkum að fjölskylda A sé valdamikil eða með tengsl við yfirvöld sem valdi því að kærandi geti ekki leitað aðstoðar og verndar þeirra. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem styðja staðhæfingar hans um stöðu eða störf þeirra aðila sem hann kveður hafa hótað lífi sínu fyrir KDP stjórnarflokkinn eða tengsl þeirra við yfirvöld í Kúrdistan. Þá hefur rannsókn kærunefndar ekki leitt í ljós að sá nafngreindi maður sem kærandi kveður vera faðir A gegni nokkurs konar stöðu innan KDP flokksins né tengsl hans og bróður A við valdamikla einstaklinga af Barzani ættinni. Gögn um heimaríki kæranda benda ekki til þess að völd eða staða allra meðlima Barzani ættbálksins séu slík að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar yfirvalda af þeim sökum. Við framangreint mat hefur kærunefnd litið til þess að kærandi kvað aðeins einn dag hafa liðið frá því að honum hafi borist umræddar hótanir og þar til hann hafi yfirgefið heimaríki fyrir nærri því þremur árum síðan. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að foreldrar kæranda og systkini hans séu enn búsett í Írak og ekkert í frásögn kæranda ber með sér að fjölskyldumeðlimir hans hafi þurft að þola áreiti eða séu í hættu þar í landi af hálfu fjölskyldumeðlima A. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins og frásögn kæranda beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þrátt fyrir að gögn um Írak beri það með sér að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla geti verið að einhverju leyti ábótavant þá er það mat kærunefndar að framlögð gögn og heimildir um yfirvöld í Írak bendi til þess að þau séu fær og viljug um að veita aðstoð og vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Getur kærandi því leitað sér aðstoðar yfirvalda telji hann ástæðu til þess.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Írak og í Kúrdistan auk persónulegra aðstæðna kæranda nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því skyni til fjölda heimilda sem samræmist frásögn hans um heiðursmorð, blóðhefndir og heiðursglæpi. Þá byggir kærandi jafnframt á því að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi lagst gegn endursendingum einstaklinga til Írak sem komi frá svæðum þar sem átök geisa eða ástand sé veikburða eða óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn ISIS.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Líkt og fjallað hefur verið um í úrskurðum kærunefndar síðustu ára vegna umsækjenda frá Írak og nýlegra heimilda um aðstæður í Írak eru almennar aðstæður þar í landi ekki slíkar að allir sem þar eru staddir eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Eftir sigur írakskra stjórnvalda á Daesh hefur hæg uppbygging átt sér stað í landinu og öryggistástand batnað til muna. Hafa þær aðstæður haldist nokkuð stöðugar í lengri tíma og þrátt fyrir að á síðustu árum hafi blossað upp deilur og átök á afmörkuðum svæðum eru ekki ríkjandi vopnuð átök í landinu þar sem ekki er greint á milli borgaralegra eða hernaðarlegra skotmarka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í borginni Erbil, í Kúrdistan í Írak þar sem hann hafi jafnframt verið búsettur áður en hann hafi yfirgefið heimaríki. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum í skýrslu EUAA frá 2024 kemur fram að tyrknesk stjórnvöld hafi reglulega framkvæmt aðgerðir gegn PKK á landamærasvæðum Tyrklands og Írak en þó einnig dýpra inn í Kúrdistan. Slíkar aðgerðir hafi færst í aukana á undanförnum árum og nokkrir almennir borgarar hafi verið drepnir eða meiðst í dróna árásum, m.a. í Dohuk og Erbil héraði. Á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025 hafi verið skráðir 32 öryggisviðburðir sem hafi leitt til dauða í Erbil af vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project). Þau gögn sýna að ástandið sé ótryggt á sumum svæðum í Írak. Þótt hryðjuverkahópar séu með einhverja virkni í landinu benda gögn og heimildir engu að síður ekki til þess að aðstæður í Erbil séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur þangað eða að hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Er það mat kærunefndar að heimasvæði kæranda falli ekki undir leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna þar sem ekki sé mælt með þvinguðum endursendingum einstaklinga til ákveðinna svæða í Írak og það sé sanngjarnt og eðlilegt að ætla að einstaklingar geti snúið til baka þangað.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna. Kærandi vísar til þess að fyrir liggi að langvarandi átök hafi átt sér stað í Kúrdistan í Írak sem hafi færst í aukana eftir upphaf árása á Gaza svæðinu í október 2023.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda verði ekki ráðið að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá heilsufari sínu og kvaðst vera við fína líkamlega og andlega heilsu.
Af framburði kæranda verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiga foreldra og systkini í heimaríki og kvaðst kærandi vera í sambandi við fjölskyldu sína þar í landi. Þá kvað hann fjárhagsstöðu sína vera meðalgóða. Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi hafi starfað sem hárgreiðslumaður í heimaríki. Af gögnum málsins verður því ráðið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga gildir ákvæði 2. mgr. 74. gr. ekki um útlending sem m.a. á sjálfur þátt í því að niðurstaða fáist ekki innan tímamarka, sbr. d-lið 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 27. febrúar 2023. Frá því að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi og þar til úrskurður þessi er kveðinn upp eru liðnir meira en 18 mánuðir. Kærandi telst því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 74. gr. laga um útlendinga.
Í b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna segir að ekki skuli leika vafi á því hver umsækjandi sé. Almennt er litið svo á að ekki leiki vafi á auðkenni umsækjanda leggi hann fram persónugreinanleg, ófölsuð opinber skilríki heimaríkis sem viðurkennd eru af íslenskum stjórnvöldum, einkum vegabréf, sbr. m.a. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017 og þriðja viðauka við hana. Ekki er í ákvæðinu mælt fyrir um hvenær umsækjandi skuli ljá atbeina þess að auðkenni hans liggi ljóst fyrir svo skilyrði þess sé uppfyllt. Í ljósi markmiða ákvæðisins, þess hve þýðingarmikið auðkenni umsækjanda um alþjóðlega vernd er við málsmeðferð og þess að um undantekningarreglu er að ræða, verður að túlka skilyrðið svo að auðkenni skuli alla jafna vera ljóst strax í upphafi málsmeðferðar á lægra stjórnsýslustigi. Að því gefnu að umsækjandi greini strax rétt frá auðkenni sínu og að skortur á framlagningu skilríkja hafi ekki haft áhrif á málsmeðferðartíma eða niðurstöðu máls kann að vera forsvaranlegt að skilríki hans liggi ekki þegar fyrir við umsókn um vernd ef hann veitir greinagóðar upplýsingar í upphafi málsmeðferðar um hvar þau eru niður komin og óskar eftir atvikum liðsinnis stjórnvalda við að afla þeirra. Að öðrum kosti kann síðbúin framlagning skilríkja fyrir kærunefnd útlendingamála ekki að uppfylla skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga en þar er kveðið á um að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Skoðast framangreint í ljósi þess að ýmsar mikilvægar upplýsingar kunna að koma fram í skilríkjum, svo sem um ferðaleið og fyrri ferðalög umsækjanda. Þá er það í andstöðu við markmið laganna að útlendingur hafi hvata til að halda eftir skilríkjum og leggja þau fram seint í málsmeðferð, eftir því hvernig henni vindur fram. Slík háttsemi kann að valda töfum á málsmeðferð og rannsókn stjórnvalda og getur verið í andstöðu við skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Líkt og að framan er rakið lagði kærandi fram persónuskilríki útgefið af írökskum stjórnvöldum við málsmeðferð hjá kærunefnd. Þá liggur fyrir að við málsmeðferð Útlendingastofnunar hafði kærandi lagt fram ljósrit af íröksku vegabréfi.
Við mat á því hvort að skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt verður að líta til orðalags ákvæðisins þar sem ekki er að finna nánari útskýringar í lögskýringargögnum. Gerir ákvæðið þá kröfu að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Verður ekki annað ráðið en að hér sé gerð krafa um að útlendingur hafi veitt upplýsingar frá upphafi málsmeðferðar og aðstoðað þannig við úrlausn málsins. Í þessu máli liggur fyrir að kærandi hafi fyrst greint íslenskum stjórnvöldum frá því að honum væri fært að leggja fram skilríki til að sanna á sér deili með tölvubréfi talsmanns til kærunefndar hinn 3. desember 2024. Með tölvubréfi kærunefndar til talsmanns kæranda, dags. 3. september 2025, var óskað eftir upplýsingum um ástæðu þess að kærandi hafi ekki lagt skilríki fram á fyrri stigum málsmeðferðar og ítrekað mikilvægi þess að kærandi legði fram slík skilríki sem fyrst. Hinn 3. september 2025 lagði kærandi fram persónuskilríki sín á starfsstöð nefndarinnar. Síðar sama dag bárust þær upplýsingar frá kæranda að hann hafi ekki verið með umrætt skilríki við komu hans til landsins en hafi fengið það sent með bréfpósti frá fjölskyldu sinni. Með tölvubréfi, dags. 2. október 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda um ástæðu þess að hann hafi ekki fengið skilríkin send á fyrri stigum. Óskaði kærunefnd jafnframt eftir upplýsingum um hvers vegna nefndin hafi ekki verið upplýst um getu kæranda til að sanna á sér deili fyrr en eftir að 18 mánaða frestur 2. mgr. 74. gr. hafi verið liðinn. Svör kæranda bárust kærunefnd hinn 6. október 2025 og kemur þar fram að kærandi hafi ekki vitað af nauðsyn þess að leggja fram persónuskilríki á meðan á málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi staðið. Hann hafi áttað sig á mikilvægi þess eftir að hafa fengið ákvörðun Útlendingastofnunar í hendurnar. Þá hafi hann þurft að finna einhvern aðila sem myndi leyfa kæranda að nota heimilisfang sitt fyrir viðtöku skilríkjanna í bréfpósti. Að sögn kæranda hafi hann upplýst talsmann sinn um viðtöku skilríkjanna um leið og þau hafi borist kæranda.
Í gögnum málsins liggja fyrir ljósmyndir af umslagi því sem skilríkin voru send í til Íslands og af skráningarmerkjum og stimplum umslagsins má ráða að það hafi verið póstlagt frá Hollandi 12. apríl 2024 og móttekið á pósthúsi á Íslandi 19. apríl 2024. Ljóst er að hinn 28. ágúst 2024 hafði mál kæranda verið til meðferðar hjá stjórnvöldum í meira en 18 mánuði og kærandi ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá liggur fyrir að kærandi veitti framangreindu skilríki viðtöku rúmlega þremur mánuðum áður en mál hans hafði náð fyrrgreindu 18 mánaða tímamarki en ekki upplýst stjórnvöld um getu sína til að sanna á sér deili fyrr en í desember 2024, um átta mánuðum frá viðtöku umrædds skilríkis. Í hinni kærðu ákvörðun, dags. 29. febrúar 2024, kemur fram með skýrum hætti að þar sem kærandi hafi ekki lagt fram frumgögn til staðfestingar á auðkenni sínu sé stofnuninni ófært að staðfesta auðkenni hans. Kærandi hefur lýst því að hafa gert sér grein fyrir mikilvægi þess að leggja fram frumrit af skilríkjum eftir að hann móttók ákvörðun Útlendingastofnunar. Auk þess hefur kærandi notið hagsmunagæslu skipaðs talsmanns við meðferð máls hans á lægra stjórnsýslustigi sem og hjá kærunefnd. Var brýnt fyrir kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun að talsmanni viðstöddum, á tungumáli sem kærandi bæði talar og skilur, að leggja fram gögn sem gætu stutt mál hans sem og að segja satt frá. Þá er ljóst að þrátt fyrir að ekki sé hægt að útiloka að kærandi hafi verið í sambandi við stúlku í heimaríki hafa aðrir þættir frásagnar hans ekki verið metnir trúverðugir.
Með vísan til framangreinds og í ljósi þeirrar miklu þýðingar sem auðkenni umsækjanda um alþjóðlega vernd hefur við málsmeðferð umsóknar er það mat kærunefndar að útskýringar kæranda á seinkominni upplýsingagjöf hans til stjórnvalda um getu hans til að sanna á sér deili séu ekki trúverðugar. Með vísan til þessa er það niðurstaða nefndarinnar að kærandi hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu.
Er því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákveðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stendur því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við önnur ríki innan Schengen-svæðisins og aðspurður hvort hann teldi brottvísun og endurkomubann fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans kvaðst kærandi ekki eiga skyldmenni innan Schengen-svæðisins. Kærandi ítrekaði að líf hans væri í hættu, hann upplifi öryggi hér á landi og myndi vilja fá tækifæri til þess að hefja nýtt líf á Íslandi.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir