16 október 2025

/

Úrskurður nr. 779/2025


Hinn 16. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 779/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030147

Kæra […]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. mars 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. mars 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Belgíu 26. janúar 2023 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 27. janúar 2023. Kvaðst kærandi hafa komið einn til landsins með flugi frá Belgíu en ekki geta framvísað vegabréfi sínu þar sem það sé útrunnið og í Írak. Kærandi kvaðst hafa yfirgefið Írak 1. september 2022, farið til Tyrklands og síðan til Grikklands. Í Grikklandi hafi hann verið tekinn af lögreglunni og fluttur aftur til Tyrklands. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd hér á landi m.a. vegna þess að hann geti ekki snúið aftur til heimaríkis þar sem hann eigi á hættu að láta lífið þar í landi eftir að hafa stungið af með ungri konu sem hann hafi ætlað að giftast. Frændi umræddrar konu hafi leitað þau uppi og hótað að drepa kæranda ef hann myndi snúa aftur til Írak. Kærandi kvaðst eiga systur og bróður hér á landi. Hann glími við vandamál í öðrum fótleggnum og sé slæmur í báðum eyrum eftir barsmíðar af hálfu grísku lögreglunnar.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. mars 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Mósúl í Írak þar sem hann hafi verið búsettur áður en hann hafi yfirgefið heimaríki 1. september 2022. Kærandi hafi farið frá Mósúl til Kúrdistan og þaðan til Tyrklands. Að sögn kæranda hafi ferðalagið frá heimaríki til Tyrklands tekið tvo og hálfan dag. Frá komu kæranda til Tyrklands þar til 22. september 2022 hafi hann, ásamt smyglara, reynt að komast til Grikklands en lögregla hafi handsamað kæranda og smyglarann, lamið þá, pyntað og sent þá aftur til Tyrklands. Hinn 22. október 2022 hafi kærandi náð að komast til Grikklands og reynt að komast í burtu frá Grikklandi frá þeim tíma. Kærandi hafi farið frá Grikklandi til Belgíu 25. janúar 2023 og komið til Íslands 27. janúar 2023. Kærandi kvað fjárhag sinn ekki vera góðan og vera skuldugur vegna ferða sinna. Kærandi kvaðst tilheyra sérstöku þjóðarbroti í Írak sem arabi og tilheyra minnihlutahópi á grundvelli trúarbragða sem súnní-múslimi. Hann sé ekki aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Aðspurður um líkamlega heilsu sína kvaðst kærandi glíma við vandamál í eyrunum og vera með skot í fótleggnum. Kærandi kvaðst hafa verið skotinn í fótinn þegar hann hafi verið um [...] ára gamall af ótilgreindum meðlimi Al Hash‘d þegar meðlimir samtakanna hafi handtekið bræður kæranda vegna mótmæla sem hafi átt sér stað árið 2013 í Mósúl. Aðspurður um hvort hann hafi sætt ákæru kvað kærandi fjölskyldu kærustu sinnar (hér eftir A) hafa kært sig en ekki vita fyrir hvað. Af frásögn kæranda má ráða að formleg handtökuskipun hafi ekki verið gefin út heldur kvað kærandi einstaklinga frá Al Hash‘d hafa komið heim til fjölskyldu hans og reynt að finna kæranda en hann hafi ekki verið viðstaddur. Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans gerðu það að verkum að hann hafi yfirgefið Írak kvaðst kærandi hafa ákveðið að flýja heimaríki ásamt kærustu sinni til sex ára eftir að fjölskylda hennar hafi neitað kæranda um að giftast henni þar sem hún ætti að giftast frænda sínum. Eftir að kærandi hafi útvegað fjármuni til að smygla sér og A úr landi hafi fjölskylda A frétt af áformum þeirra og tilkynnt þau til yfirvalda. Að sögn kæranda hafi hann og A verið stöðvuð af yfirvöldum við vegatálma þegar þau hafi verið á leið úr landi, gert að yfirgefa bifreið sína og afhenda skilríki sín. Kærandi hafi þá flúið í burtu en kvað A ekki hafa getað gert hið sama. Í kjölfarið hafi kærandi farið til Tyrklands. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa heyrt í A síðan framangreint atvik hafi átt sér stað og ekkert vita um afdrif hennar. Að sögn kæranda hafi ótilgreindir meðlimir Al Hash‘d komið á heimili fjölskyldu hans að leita að kæranda, þeir hafi leitað í húsinu, öskrað á fjölskyldumeðlimi hans og sagst vera á eftir kæranda. Fjölskylda A sé þekkt í Mósúl og hafi tengsl við meðlimi Al Hash‘d. Aðspurður kvað kærandi fjölskyldu A ekki hafa vitað af sambandi þeirra í sex ár eða þar til hann hafi beðið fjölskylduna um leyfi til að giftast henni. Kærandi og A hafi verið saman í skóla frá barnsaldri, hist á veitingastöðum og lært saman og átt gott líf þar til hann hafi óskað eftir að fá að giftast henni. Að sögn kæranda hafi fjölskylda A sagt henni að hún ætti að giftast frænda sínum ellegar yrði hún drepin, læst innandyra og ekki leyft að fara í skóla. Kærandi kvað hótanir fjölskyldu A hafa komið frá frænda hennar sem hafi tjáð kæranda að fjölskyldan hafi þegar neitað beiðni hans og ef kærandi myndi koma aftur nálægt A yrði hann drepinn. Um munnlegar hótanir hafi verið að ræða. Kærandi kvað sig og A hafa ákveðið að flýja saman eftir að þrír ótilgreindir, grímuklæddir og vopnaðir menn hafi komið upp að kæranda úti á götu kvöld eitt í Mósúl og hótað að drepa hann ef hann myndi ekki hætta að umgangast A. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa orðið fyrir ofbeldi þegar honum hafi verið hótað. Kæranda hafi ekki borist hótanir eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki en fjölskyldu hans hafi verið hótað. Að sögn kæranda hafi ótilgreindir einstaklingar tjáð fjölskyldu hans að þegar þeir myndu ná kæranda myndu þeir drepa hann og að fjölskylda kæranda ætti að láta kæranda vita af framangreindu. Af frásögn kæranda má ráða að A hafi sagt honum að fjölskylda hennar hafi ætlað að kæra og láta handtaka kæranda. Kærandi viti þó ekki hvaða háttsemi fjölskylda A hafi ætlað að kæra hann fyrir. Kærandi kvaðst óttast fjölskyldu A og yfirvöld í heimaríki. Aðspurður af hverju hann óttist yfirvöld kvaðst kærandi vera eftirlýstur og af frásögn hans má ráða að hann telji sig vera eftirlýstan vegna þess að fulltrúar Al Hash‘d hafi komið heim til hans og spurt eftir kæranda. Kærandi kvaðst ekki vera viss um hvort fjölskylda hans sé í hættu í heimaríki. Hann sé í sambandi við fjölskyldu sína og kvað fjölskylduna síðast hafa orðið fyrir hótunum tveimur dögum áður en kærandi var í viðtali hjá Útlendingastofnun. Af frásögn kæranda má ráða að helstu ástæður fyrir flótta hans frá Írak hafi verið hótanir fjölskyldu A og ótti við að verða handtekinn af þeim aðilum sem hafi handtekið bræður hans árið 2017, en fjölskylda hans viti ekkert um afdrif þeirra síðan þá. Aðspurður greindi kærandi frá því að bræður hans hafi verið handteknir í fyrsta skipti árið 2013 vegna mótmæla og þá hafi kærandi verið skotinn í fótinn. Í kjölfarið hafi ISIS tekið völd í Mósúl og látið alla lausa sem hafi verið fangelsaðir. Þegar stjórnvöld hafi náð stjórn á Mósúl af ISIS árið 2017 hafi gömul mál verið opnuð á ný og þrír bræður kæranda handteknir aftur vegna mótmælanna 2013. Aðspurður af hverju hann telji að þeir sem hafi handtekið bræður hans myndu einnig handtaka kæranda kvað kærandi engin lög vera til staðar í Írak, þar væru margir stjórnmálaflokkar og hver sem er gæti búið til kæru. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa tekið þátt í mótmælum sjálfur.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 26. mars 2024. Greinargerð barst kærunefnd 4. apríl 2024 ásamt fylgiskjölum. Hinn 3. október 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Svör kæranda bárust kærunefnd 6. október 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali hjá Útlendingastofnun. Þar kemur að auki fram að ástæða fyrir flótta kæranda sé að hann sé eftirlýstur og hans bíði dauðarefsing í heimaríki sínu. Eftir flótta kæranda hafi menn á vegum skæruliðahópsins Al Hash‘d ítrekað ofsótt fjölskyldu hans í leit að kæranda, hótað þeim og beitt þau ofbeldi. Kærandi sé eftirlýstur af lögreglu og skæruliðum fyrir meint mannrán á kærustu sinni, A. Áreiti skæruliðanna hafi verið slíkt að faðir kæranda hafi fengið hjartaáfall og látið lífið. Tveir bræður kæranda hafi verið handteknir af lögreglu árið 2017 fyrir þátttöku sína í mótmælum árið 2013 og ekkert hafi heyrst af afdrifum þeirra frá þeim tíma. Kærandi eigi tvö systkini sem séu búsett hér á landi og þrái að stofna líf á Íslandi og sameinast systkinum sínum.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Kærandi gagnrýnir rannsókn Útlendingastofnunar á máli hans og telur stofnunina hafa átt að óska eftir framlagningu gagna til sönnunar á tilvist kærustu kæranda í stað þess að telja fullyrðingu hans um tilvist hennar ósannaða þar sem kærandi hafi ekki lagt fram gögn framangreindu til stuðnings.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að hann eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum í skilningi 38. gr. laga um útlendinga verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Kærandi vísar til þess að hann eigi á hættu að verða fyrir dauða- eða fangelsisrefsingu að ósekju af yfirvöldum eða skæruliðahópum sem tilheyra Al Hash‘d. Kærandi sé eftirlýstur af skæruliðum og lögreglu og er gefið að sök að hafa rænt kærustu sinni.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann aftur til Íraks. Sakir á hendur kæranda séu óljósar og vísar kærandi til þess að yfirvöld gætu búið til sakir á hendur honum til þess að dæma kæranda til fangelsis- eða dauðarefsingar.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að hann hafi sérstaka þörf fyrir vernd íslenskra stjórnvalda í ljósi yfirvofandi fangelsunar eða dauðarefsingar í heimaríki. Gögn málsins og frásögn kæranda bendi til þess að hann hafi sérstaka ástæðu til að óttast ofsóknir, sem m.a. felist í óréttmætri fangelsun og pyndingum. Kærandi vísar jafnframt til þess að hann eigi tvö systkini hér á landi.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram frumrit gagna til að sanna á sér deili og að það væri mat stofnunarinnar að kærandi hefði ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Írak þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé írakskur ríkisborgari en auðkenni hans sé að öðru leyti óupplýst.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • Country Guidance: Iraq (EUAA, nóvember 2024);
  • Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (EUAA, janúar 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: “Honour” crimes (UK Home Office, mars 2021);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs Religious (UK Home Office, janúar 2021);
  • International Protection Considerations with Regard to People fleeing the Republic of Iraq, Update I (UNHCR, 30. janúar 2024);
  • Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
  • Iraq - Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, maí 2024);
  • Irak: En kortfattet oppdatering om sikkerhetssituasjonen i Anbar og Mosul (Landinfo, 15. nóvember 2024);
  • Iraq: How the world helped Mosul rise from the rubble of war (United Nations, 6. febrúar 2025);
  • Iraq: New US$930 Million Project to Extend and Modernize Railways, Promote Regional Connectivity and Boost Growth (World Bank Group (worldbank.org), 25. júní 2025);
  • Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, EUAA, maí 2024);
  • Irak – Situasjonen i Mosul (Landinfo, 23. desember 2022);
  • Iraq Timeline: Since the 2003 War (United States Institute of Peace (usip.org), sótt 30. mars 2023);
  • Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and SyriaOctober 1, 2023 – December 31, 2023 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 9. febrúar 2024);
  • Operation Inherent Resolve and Other U.S. Government Activities Related to Iraq and SyriaApril 1, 2025 – June 30, 2025 (Lead Inspector General Report to the United States Congress, Department of Defense, 29. júlí 2025);
  • Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
  • The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 17. september 2025);
  • United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
  • World Report 2023 – Iraq (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2025 – Iraq (Human Rights Watch, janúar 2025) og
  • Ære og æresrelatert vold (Landinfo, 10. mars 2022).

Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljón íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.

Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins vegna áranna 2021 og 2022 og skýrslu Mannréttindavaktarinnar (e. Human Rights Watch) fyrir sama tímabil kemur fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem að staðsettar séu í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Í skýrslu EUAA um Írak frá árinu 2022 kemur fram að fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis. Stjórnvöld hafi m.a. gripið til þess úrræðis að hýsa konur í fangelsum vegna skorts á skýlum. Flest neyðarskýli sé að finna í stærri borgum og séu rekin af sjálfboðaliðum. Konur sem dvelji þar geti verið í viðkvæmri stöðu þar sem þær hafi ekki stuðning karlkyns ættingja. Þá lendi konur í erfiðleikum við að leita réttar síns vegna neikvæðra viðhorfa lögreglu- og opinberra starfsmanna gagnvart konum og skorti á þekkingu um réttindi kvenna.

Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að árið 2011 hafi Bandaríkin ákveðið að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópa súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og samtökin endurnefnt sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Í júní 2014 hafi ISIS náð þriðjungi Íraks á sitt vald og hafi leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg landsins, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá ISIS. Í desember 2017 lýsti forsætisráðherra Íraks yfir sigri gegn ISIS. Í skýrslu EUAA frá 2022 kemur fram að ISIS hafi ekki náð yfirráðum yfir frekara landsvæði síðan en reyni að festa sig í sessi á óaðgengilegum svæðum svo sem í dölum, fjöllum, eyðimörkum og á norður og miðsvæði landsins. Í síðustu ársfjórðungsskýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um stöðu hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn ISIS í Írak og Sýrlandi fyrir árið 2023 kemur fram að ISIS standi höllum fæti og samtökin séu ekki fær um að efna til stærri flókinna árása. Af ársfjórðungsskýrslum ársins 2024 má ekki ráða að meiriháttar breytingar hafi átt sér stað hvað varðar getu og starfshæfi ISIS samtakanna. Samkvæmt annarri ársfjórðungsskýrslu ársins 2025 hefur árásartíðni ISIS haldið áfram að vera í sögulegu lágmarki frá upphafi árs 2025 og almennum borgurum og öryggissveitum í Írak stafi einungis lágmarkshætta af ISIS.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 um trúfrelsi kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslímar og flestir þeirra séu sjíta-múslímar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní múslímar en um 15% íbúa séu súnní múslimskir Kúrdar og 24% súnní múslimskir arabar. Sjíta-múslímar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu sjíta-múslímar. Íbúar norður-og vesturhluta landsins séu flestir súnní múslímar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, Sabaean-mandaen og Jasíti séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um súnní múslima kemur fram að dæmi séu um að írakski stjórnarherinn hafi misþyrmt súnní múslimum, m.a. með beitingu gerræðislegra handtaka, varðhalds, pyndinga og annarrar vanvirðandi meðferðar vegna meintra tengsla þeirra eða stuðnings við Daesh. Þá séu dæmi um að sveitir PMU (e. Popular Mobilization Forces) hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum, pyndingum súnní múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samskonar umfjöllun er einnig að finna í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi. Samkvæmt framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er þó meðferð írakskra yfirvalda á súnní múslimum almennt ekki talin nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu til að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í Írak. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Einnig séu heimildir um að karlmenn eigi á hættu að verða þolendur heiðursglæpa en ástæður fyrir því séu einkum þegar karlmenn neiti að taka þátt í heiðurstengdu ofbeldi gegn öðrum. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Heiðursmorð séu oft tilkynnt sem slys eða sjálfsvíg og því sé erfitt að meta raunverulegt umfang glæpanna en allt bendi til þess að nokkur hundruð stúlkna og kvenna séu þolendur heiðursmorðs víðsvegar um Írak á ári hverju. Dæmi séu um að gerendur í slíkum málum séu sóttir til saka en sjaldan sé sakfellt í slíkum málum. Yfirvöld í Írak séu því ekki fær um að veita þeim sem séu í hættu á heiðursofbeldi skilvirka vernd.

Þá kemur fram í skýrslu Landinfo frá 2022 að karlmenn sem eigi í samböndum utan hjúskapar séu ekki taldir smána heiður fjölskyldunnar og að karlmenn í slíkum aðstæðum eigi að venju til auðvelt með að komast hjá deilum. Hins vegar séu karlmenn undir þrýstingi um að giftast og dæmi séu um að menn hafi verið drepnir neiti þeir því. Þá segir að þegar karlmaður sé myrtur í heiðursdeilu eigi það frekar rætur að rekja til hefndar eða blóðhefndar en heiðurs fjölskyldunnar. Í slíkum málum séu báðar fjölskyldurnar vanalega samþykkar morðinu.

Í skýrslu EUAA frá nóvember 2024 kemur fram að þrátt fyrir að handahófskennt ofbeldi eigi sér stað í Ninewa héraði, þar sem borgin Mósúl sé staðsett, sé það ekki á háu stigi. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá 2024 hefur ofbeldi gagnvart almennum borgurum í Mósúl dregist verulega saman. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir er ljóst að ráðist hafi verið í mikla uppbyggingu í Mósúl eftir að stjórnvöld hafi lýst yfir sigri á hryðjuverkasamtökunum ISIS í desember 2017. Enn sé unnið að frekari uppbyggingu í Mósúl vegna þeirrar miklu eyðileggingar sem varð á öllum innviðum borgarinnar á valdatíma ISIS frá 2014 til 2017. Með stuðningi annarra landa og Sameinuðu þjóðanna hafi enduruppbygging borgarinnar sl. sjö ár leitt til þess að borgin hafi að miklu leyti endurheimt ríkulega menningararfleið sína. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá desember 2022 hafi uppbygging heilbrigðiskerfisins í Mósúl í kjölfar stríðsloka við ISIS gengið með ágætum. Grunnheilbrigðisþjónusta í borginni sé ágæt, hinn 1. desember 2021 voru 2.650 sjúkrahúspláss í Ninewa héraði, en fyrir valdatöku ISIS árið 2014 hafi þau verið 3.900. Nýsamþykkt 930 milljón dollara verkefni World Bank Group í Írak til að stækka við og nútímavæða járnbrautakerfi, innviði og þjónustu frá suðurhluta landsins til Mósúl í norðurhluta Írak, muni koma til með að efla innanlandsviðskipti í Írak, skapa ný störf og auka fjölbreytni efnahags landsins.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum í heimaríki af hálfu yfirvalda eða skæruliðahópsins Al Hash‘d vegna sambands hans við kærustu sína, A.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera fæddur og uppalinn í Mósúl í Írak, ekki vera aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Kærandi kvaðst tilheyra minnihlutahópi í heimaríki almennt á grundvelli trúarbragða sem súnní-múslimi. Í framangreindum landaupplýsingum kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak og um 97% íbúa Íraks séu múslimar. Þá séu um 40% íbúa Íraks súnní-múslimar. Íbúar norður- og vesturhluta landsins séu flestir súnní-múslimar sem og íbúar miðsvæðisins, að undanskilinni Bagdad. Einstaklingar í íröksku samfélagi séu skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og litið sé með vanþóknun á trúleysi. Í framangreindum landaupplýsingum kemur jafnframt fram að írakski stjórnarherinn og sveitir PMU hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum og pyndingum súnní-múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er framangreind meðferð á súnní-múslimum þó almennt ekki nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh. Með vísan til þess að kærandi hafi ekki greint frá sérstökum atvikum eða aðstæðum sem tengjast honum persónulega eða setji hann í aukna hættu sem súnní-múslimi er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum á grundvelli trúar sinnar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa ætlað að yfirgefa heimaríki ásamt kærustu sinni, A, eftir að fjölskylda A hafi neitað kæranda um leyfi til að giftast henni. Að sögn kæranda hafi fjölskylda A viljað að hún myndi giftast frænda sínum og hótað henni öllu illu ef hún myndi ekki fylgja vilja fjölskyldunnar. A hafi sagt kæranda frá því að fjölskylda hennar hygðist kæra og láta handtaka kæranda. Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir munnlegum hótunum af hálfu frænda A og síðar af hálfu þriggja vopnaðra ótilgreindra grímuklædda manna sem hafi komið upp að kæranda úti á götu kvöld eitt og hótað að drepa hann ef hann myndi koma nálægt A. Í kjölfarið hafi kærandi og A ákveðið að reyna að flýja saman til Tyrklands. Þau hafi þó verið stöðvuð við vegartálma á leið sinni af fulltrúum yfirvalda sem hafi ætlað að skoða skilríki þeirra. Kærandi kvað fjölskyldu A hafa tilkynnt yfirvöldum um flótta þeirra og því hafi þau verið stöðvuð. Kærandi hafi náð að flýja en A ekki getað gert hið sama og því hafi hún orðið eftir. Kærandi kvað fjölskyldu A vera vel þekkta í Mósúl og hafi tengsl innan Al Hash‘d hópsins. Kærandi kvaðst vera eftirlýstur í heimaríki þar sem ótilgreindir meðlimir Al Hash‘d hafi komið heim til fjölskyldu hans í leit að kæranda eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki. Framangreindir aðilar hafi skammað og öskrað á fjölskyldumeðlimi kæranda og sagst ætla drepa kæranda þegar þeir myndu finna hann. Í greinargerð til kærunefndar kemur fram að faðir kæranda hafi fengið hjartaáfall og látist vegna áreitis Al Hash‘d. Loks kvaðst kærandi óttast yfirvöld heimaríkis og Al Hash‘d þar sem bræður kæranda hafi verið handteknir árið 2017 af ótilgreindum meðlimum Al Hash‘d vegna þátttöku þeirra í mótmælum í Mósúl árið 2013. Kærandi kvaðst hafa verið skotinn í fótinn þegar sú handtaka hafi átt sér stað en aðspurður kvaðst hann ekki hafa tekið þátt í mótmælum líkt og bræður hans. Hins vegar gæti hver sem er búið til kæru og handtekið kæranda þar sem engin lög séu til staðar í Írak og margir stjórnmálaflokkar að störfum þar í landi.

Kærandi lagði fram ýmis gögn til stuðnings frásagnar sinnar, m.a. ódagsetta ljósmynd af samskiptum sem kærandi kveður vera á milli sín og móður hans í febrúar 2023 og ljósmynd af handskrifuðu bréfi sem að sögn kæranda hafi að geyma yfirlýsingu móður hans en kærandi hefur ekki greint nánar frá efni bréfsins. Þar sem framangreint bréf er aðeins einhliða frásögn móður hans og ljósmyndirnar óskýrar eru þau að mati kærunefndar hvorki til þess fallin að renna stoðum undir né hrekja fullyrðingu kæranda um innihald þeirra og hafa því takmarkað sönnunargildi. Þá hefur kærandi jafnframt lagt fram skjáskot af myndsímtali á milli sín og A og í greinargerð kæranda kemur fram að hann eigi í reglulegum samskiptum við A í gegnum myndsímtöl og þau séu enn í sambandi sem er ekki í samræmi við frásögn kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem hann kvaðst ekki hafa heyrt frá A eftir að hann hafi flúið heimaríki.

Við meðferð málsins óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda um misræmi í framburði hans í viðtali hjá Útlendingastofnunar og þess sem fram komi í greinargerð kæranda til kærunefndar er varðar samskipti hans við A. Var óskað eftir upplýsingum um hvaða, ef einhverjar, afleiðingar það hafi haft fyrir A að hafa reynt að flýja heimaríki og hvernig A geti viðhaldið sambandi við kæranda í ljósi andstöðu fjölskyldu hennar við samband þeirra. Loks óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um meint tengsl fjölskyldu A við Al Hash‘d, þ. á m. um eðli þeirra tengsla og hvort kærandi gæti sýnt fram á þau tengsl með einhverjum hætti. Af svari kæranda má ráða að þegar kærandi hafi komið til Íslands hafi hann ekki haft neina vitneskju um aðstæður A. Einhverjum mánuðum síðar hafi A haft samband við kæranda en síðar meir hafi henni verið gert að ganga í hjónaband með frænda sínum. Kærandi hafi ekki haft samskipti við A í kjölfarið og kveðst því ekki vera lengur í sambandi með hana. Þá kveður kærandi það hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir A að hafa reynt að flýja og skapað talsverð vandamál fyrir þau bæði. A geti ekki viðhaldið sambandi sínu við kæranda sökum þrýstings af hálfu fjölskyldu hennar og því hafi samband þeirra endað. Þá kveður kærandi frændur A vera meðlimi Al Hash‘d. Það sé almenn vitneskja í Mósúl hverjir meðlimir Al Hash‘d séu. Kærandi kveðst ekki vita hvernig hann gæti formlega sannað meint tengsl fjölskyldu A við Al Hash‘d.

Kærandi lagði einnig fram ljósmynd af skjali sem hann kveður vera dánarvottorð föður síns ásamt ljósmyndum af tveimur skjölum sem kærandi kveður vera handtökuskipanir á hendur honum. Gæði framlagðrar ljósmyndar af því skjali sem kærandi kveður vera dánarvottorð föður síns eru slík að vélræn þýðing skjalsins er ekki möguleg. Af vélrænni þýðingu síðari tveggja skjalanna má ráða að fyrra skjalið sé dagsett 24. maí 2022, stafi frá Al-Zahour lögreglustöðinni og undirritað af yfirlögregluþjóni. Af skjalinu má ráða að nafngreindur einstaklingur hafi tilkynnt lögreglu um mannrán frænku sinnar og að farið hafi verið með hana á ókunnugan stað. Nafn kæranda kemur hvergi fyrir á skjalinu né nafn frænku umrædds einstaklings. Er ekkert í skjalinu sem gefur tilefni til að ætla að það feli í sér handtökuskipun á hendur kæranda. Síðara skjalið ber með sér að vera dagsett 5. október 2022 og stafa frá aðalskrifstofu Asa‘ib Ahl al-Haq vopnahópsins í Mósúl. Af skjalinu má ráða að kærandi sé nefndur þar með nafni og að þar sem hann hafi ekki mætt fyrir rétt hópsins þrátt fyrir fyrri tilkynningar sé nauðsynlegt að refsa honum. Því næst kemur texti sem ber með sér að geta þýtt að nærvera einhvers, mögulega kæranda, leiði til þess að sá sami verði drepinn. Ekki má ráða ástæðu eða aðdraganda skjalsins og vísar það ekki til nokkurra atburða. Þá er nafn vopnahópsins misritað vinstra megin efst í skjalinu en þar er nafnið ritað AssaebAhlul-Haq, sem er ekki í samræmi við opinberan rithátt á nafni samtakanna. Er það til þess fallið að draga úr trúverðugleika þess að skjalið stafi frá opinberri skrifstofu samtakanna. Við meðferð málsins óskaði kærunefnd eftir svörum frá kæranda um hvernig hann hafi fengið aðgang að skjölum sem hann kveður vera handtökuskipanir á hendur honum. Af svari kæranda má ráða að fulltrúar yfirvalda hafi komið á heimili hans í Mósúl í leit að kæranda og afhent móður hans umrædd skjöl. Að mati kærunefndar er framangreind umfjöllun um efni síðara skjalsins og sú staðreynd að kæranda sé hvergi getið í fyrra skjalinu til þess fallnar að draga úr trúverðugleika kæranda um að móður hans hafi verið afhent umrædd skjöl af yfirvöldum við leit að kæranda eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki. Ber fyrra skjalið t.a.m. með sér að vera dagsett í lok maí 2022, rúmlega þremur mánuðum áður en kærandi kvaðst hafa yfirgefið heimaríki og reynt að flýja úr landi ásamt A. Kærandi kvaðst geta óskað eftir því að fá frumrit skjalanna tveggja, en með vísan til niðurstöðu nefndarinnar um skort á trúverðugleika frásagnar kæranda hvað varðar þau skjöl og útgáfu þeirra var ekki talin ástæða til þess að kalla eftir frumritum þeirra.

Loks lagði kærandi fram upptöku af myndbandi sem hann kveður sýna vopnaða skæruliða koma á heimili fjölskyldu hans í leit að kæranda. Upptakan ber með sér að vera dagsett 5. nóvember 2023 og sýna frá hópi karlmanna standa við bifreið að því er virðist í innkeyrslu ótilgreinds húsnæðis á meðan einn einstaklingur virðist halda á pappírum og vinna í fartölvu. Meðal framangreindra manna má sjá tvo einstaklinga klæddir einhvers konar einkennisbúningi og er annar þeirra vopnaður byssu. Af upptökunni má ráða að komið hafi til orðaskipta meðal einhverra einstaklinga innan hópsins og virðist einn einstaklingur fara úr innkeyrslunni ásamt einkennisklæddum manni og stíga inn í pallbifreið sem bíður þar fyrir utan. Fjórir einstaklingar úr hópnum fara einnig um borð í bifreiðina á meðan einkennisklæddi einstaklingurinn sest niður á pall bifreiðarinnar sem síðar keyrir í burtu. Upptakan ber með sér að áður en bíllinn keyrir burt standi sjö einstaklingar, þ. á m. tvö börn, fyrir utan bifreiðina og ræða við einstaklingana inni í bílnum. Af myndbandinu verður ekki ráðið um hvaða einstaklinga er að ræða eða hvar framangreind atburðarrás á sér stað. Er framangreint myndband ekki til þess fallið að styðja við málatilbúnað kæranda.

Í ljósi heimilda um heimaríki kæranda er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi og fjölskylda hans hafi mögulega á einhverjum tímapunkti orðið fyrir áreiti í heimaríki af hálfu ótilgreindra einstaklinga sem hafi tengsl við vopnahópa eða yfirvöld. Þá er ekki hægt að útloka að faðir kæranda hafi látist eftir að kærandi hafi yfirgefið heimaríki en ekkert liggur fyrir um að það hafi tengst flótta kæranda frá heimaríki. Þá er ekki unnt að útiloka að bræður kæranda hafi verið handteknir árið 2017 og að kærandi hafi hlotið skotsár á fæti við það atvik. Kærandi hefur þó ekki lagt fram gögn sem styðja staðhæfingar hans um ítrekað áreiti vopnahóps í garð fjölskyldumeðlima sinna eftir að upp hafi komist um samband kæranda og A. Ennfremur hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem styðja staðhæfingar hans um völd fjölskyldu A eða tengsl þeirra við yfirvöld í Mósúl eða vopnahópinn Al Hash‘d eða á annan hátt leitt rökstuddum líkum að þeim tengslum. Þá hafa framlögð gögn hans ekki stutt við trúverðugleika frásagnar hans um að hann eigi á hættu hefndaraðgerðir vegna sambands síns við A heldur þvert á móti dregið úr trúverðugleika kæranda hvað varðar ástæður flótta hans frá heimaríki.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að frásögn hans hvað varðar ástæðuríkan ótta hans við hefndaraðgerðir valdamikillar fjölskyldu fyrrverandi kærustu sinnar verði ekki lögð til grundvallar. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi sætt ofsóknum eða að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu yfirvalda í Írak sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þrátt fyrir að gögn um Írak beri það með sér að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla geti verið að einhverju leyti ábótavant þá er það mat kærunefndar að framlögð gögn og heimildir um yfirvöld í Írak bendi til þess að þau séu fær og viljug um að veita aðstoð og vernd gegn athöfnum sem feli í sér ofsóknir, hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Getur kærandi því leitað sér aðstoðar yfirvalda telji hann ástæðu til þess.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Írak auk persónulegra aðstæðna kæranda nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til fjölda landaheimilda sem beri með sér að yfirvöld í Írak séu ekki í stakk búin að vernda þegna sína gegn ofbeldisbrotum og glæpum auk þess að yfirvöld skorti stjórn á vopnahópum á borð við Al Hash‘d.

Líkt og fjallað hefur verið um í úrskurðum kærunefndar síðustu ára vegna umsækjenda frá Írak og nýlegra heimilda um aðstæður í Írak eru almennar aðstæður þar í landi ekki slíkar að allir sem þar eru staddir eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Eftir sigur írakskra stjórnvalda á ISIS hefur hæg uppbygging átt sér stað í landinu og öryggisástand batnað til muna. Hafa þær aðstæður haldist nokkuð stöðugar í lengri tíma og þrátt fyrir að á síðustu árum hafi blossað upp deilur og átök á afmörkuðum svæðum eru ekki ríkjandi vopnuð átök í landinu þar sem ekki er greint á milli borgaralegra eða hernaðarlegra skotmarka. Þar sem það er niðurstaða kærunefndar að aðstæður á heimasvæði kæranda í Mósúl og almennt í Írak séu ekki með þeim hætti að þær nái því marki að hver sá einstaklingur sem þar er staddur eigi á hættu að sæta meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þurfa frekari persónubundnir þættir að koma til svo einstaklingur uppfylli skilyrði ákvæðisins og eigi rétt á viðbótarvernd.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kæranda verði ekki ráðið að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá heilsufari sínu og kvaðst glíma við vandamál í eyrum og vera með skot í fætinum. Kærandi kvaðst vera vinnufær en finna meira fyrir skotsárinu stundum í kulda. Eyrnaverkurinn hafi áhrif á daglegt líf kæranda og hann hafi ekki enn fengið tíma hjá lækni hér á landi vegna verksins.

Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa ekki verið í starfi áður en hann hafi yfirgefið heimaríki þar sem hann hafi verið í námi í menntaskóla. Af frásögn kæranda má ráða að hann eigi systkini í heimaríki og kvaðst kærandi vera í sambandi við fjölskyldu sína þar í landi.

Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. febrúar 2023.

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem eru til þess fallin að sanna á honum deili. Vert er að nefna að kærandi hefur lagt fram ljósmynd sem hann kveður vera af útrunnu íröksku vegabréfi sínu. Slíkt gagn getur ekki talist fullnægjandi staðfesting á auðkenni svo skilyrði b. liðar 2. mgr. 74. gr. um staðfestingu auðkennis teljist uppfyllt.

Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, eru því ekki uppfyllt.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst eiga tvö systkini hér á landi og telja brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun eftir alla þá erfiðleika sem hann hafi upplifað í heimaríki og á leið sinni til Íslands. Kærandi hafi verið mánuðum saman úti í skógi og komið til Íslands þar sem það væri öruggt land. Kærandi kvaðst frekar svipta sig lífi en að fara aftur til heimaríkis þar sem það væri ómögulegt fyrir hann að snúa þangað aftur.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, enda teljast systkini ekki sem nánustu aðstandendur skv. lögum um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir