21 október 2025

/

Úrskurður nr. 815/2025


Hinn 21. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 815/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100202

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 31. október 2024 kærði [...] , fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja henni og börnum hennar, [...], fd. [...]. (hér eftir A) og [...], fd. [...]. (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kærandi krefst þess eftir atvikum að henni verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir jafnframt kröfu um að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 27. júní 2024. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðleg vernd á Íslandi ásamt börnum sínum tveimur vegna þess að hún væri að sækjast eftir betra lífi. Eiginmaður hennar og barnsfaðir (hér eftir M) hafi komið á undan þeim og búi hér á landi. Þá búi foreldrar kæranda og systkini einnig hér á landi. Systir kæranda hafi fjármagnað kaupin á flugmiðunum. Kærandi sé hraust en börn hennar séu bæði með þunglyndi og kvíða og taka lyf við því. B væri einnig með astma.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 1. ágúst 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi fædd í Kólumbíu og hafi búið þar til tólf ára aldurs en hafi flúið ásamt fjölskyldu sinni til Venesúela og verið búsett þar síðan. Kærandi hafi búið í einbýlishúsi í eigu tengdamóður systur sinnar í Miranda fylki í Venesúela áður en hún flúði heimaríki. Kærandi eigi systur, systurdóttur og mág í heimaríki. Kærandi kvaðst ekki hafa verið í launuðu starfi og hafi ekki þegið aðstoð frá stjórnvöldum eða frá mannúðar- eða hjálparsamtökum en hún hafi fengið aðstoð frá fjölskyldu sinni. Kærandi hafi þá unnið við að gera neglur. Börn kæranda hafi ekki gengið í skóla í heimaríki heldur verið í heimakennslu. Kærandi kvaðst vera með sykursýki og offitu vandamál og hafi verið greind með þunglyndi og kvíða ári áður. Börn hennar væru bæði með þunglyndi og kvíða. B væri einnig með astma sem hún hafi fengið viðeigandi meðferð við í heimaríki. Aðspurð hvort kærandi hafi hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað kvaðst kærandi hafa verið handtekin í mótmælagöngu ásamt M. Lögreglumennirnir hafi plantað á þau eiturlyf og haldið þeim ólöglega í gíslingu. Þetta sé hvergi skráð í heimaríki en þegar M hafi strokið hafi hann verið eftirlýstur og nafn hans sett á svokallaðan Tascón lista. Kærandi og M hafi vegna þessa verið ofsótt og mismunað í Venesúela. Kærandi kvaðst ekki tilheyra sérstöku þjóðarbroti eða aðhyllast nein trúarbrögð. Hún teldi sig ekki lengur vera aðili að stjórnmálaflokki en kvaðst hafa verið virk í þágu frelsis og stjórnarandstöðu í heimaríki. Hún hafi sagt sína skoðun og skipulagt og tekið þátt í mótmælum fyrir stjórnmálaflokkinn Grupo de la Unidad (Gestion) með M. Fylgst hafi verið með M og hann eltur fyrir að vera í stjórnarandstöðu og brotist hafi verið inn á heimili þeirra og það látið líta út fyrir vera innbrot. Þá hafi hús þeirra verið brennt 1. janúar 2014. Kvað kærandi það hafa verið los collectivos sem hafi staðið að framangreindum ofsóknum. Kærandi hafi leitað eftir aðstoð og vernd yfirvalda sem hafi ekkert aðhafst. Það sé mikil spilling innan opinberra stofnana í Venesúela. Kærandi og M hafi flutt til tengdamóður hennar eftir að hús þeirra hafi verið brennt. Nágrannar þeirra þar hafi vitað að þau hafi verið stjórnarandstæðingar og hafi þeim verið hótað vegna þess. Hrópað hafi verið á kæranda úti á götu að hún tilheyrði ekki og ætti ekki heima þarna. Í apríl 2015 hafi þeim verið hótað af nágrönnum þeirra og beint hafi verið að þeim byssu og þeim sagt að flytja burt ella yrðu þau læst inni og hús þeirra brennt. Ráðist hafi verið á M þegar hann hafi reynt að verja þau. Eftir þetta hafi þau verið á flótta innanlands og stöðugt flutt á milli heimila. M hafi farið til Kólumbíu til að starfa og hafi svo flúið til Íslands árið 2022.

Kvað kærandi að framangreindar hótanir hafi einungis borist í myndsímtölum til M og honum hafi borist hótanir allt þar til til hún og börn hennar hafi flúið til Íslands. M hafi fengið myndsímtöl hér á landi þar sem honum hafi verið hótað að vitað væri að eiginkona hans og börn væru ennþá í Venesúela. Kærandi greindi þá frá því að hún og M hafi einu sinni fengið sent bréf þar sem þeim hafi verið boðið að tilkynna sig væru þau fyrirtækjaeigendur og greiða verndargjald (s. Vacuna).Kærandi hafi vegna ótta greitt framangreint gjald tvisvar. Aðspurð hvort hún hafi leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda kvað kærandi það ekki hafa neinn tilgang. Kærandi kvaðst ekki hafa fengið hótanir eftir að hún flúði til Íslands enda hafi hún breytt um símanúmer og tölvupóstfang.

Kærandi kvað að hún og börn hennar yrðu í mikilli hættu yrði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá teldi hún sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki en áður og verið örugg. Hún geti ekki leitað til lögreglu eða yfirvalda í heimaríki og þau geti ekki veitt henni aðstoð eða vernd. Þá væri það ekki möguleiki fyrir fjölskylduna að fara til Kólumbíu og leita þar öryggis vegna glæpastarfsemi glæpahópsins Tren de Aragua sem væri búinn að ná fótfestu þar eins og annars staðar í Suður Ameríku.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A kom fram að beiðni stofnunarinnar um að taka viðtal við A hafi verið hafnað af kæranda og því ekki tekið viðtal við hana. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli B kom fram að ekki væri tilefni til að taka sjálfstætt viðtal við hana með vísan til ungs aldurs hennar og framburðar móður hennar.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 31. október 2024. Greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum bárust kærunefnd 12. nóvember 2024. Viðbótargreinargerð barst kærunefnd 14. janúar 2025. Viðbótargögn og tilkynning um nýjan talsmann kæranda bárust kærunefnd 21. mars 2025. Viðbótargögn bárust kærunefnd 5. júní 2025

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðunum er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali hjá Útlendingastofnun.

Í greinargerðum kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærandi vísar til þess að samkvæmt árlegri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, útgefinni 28. júní 2024, hafi mannúðarkrísan ekkert minnkað síðustu ár í Venesúela, þvert á málflutning íslenskra stjórnvalda. Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi gerir m.a. athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að ótrúverðugt hafi verið að eiginmaður hennar hafi starfað fyrir herinn í Venesúela og bendir á fyrirliggjandi heimildir um ofsóknir á hendur fyrrum hermenn og starfsmenn annarra öryggisveita og fjölskyldur þeirra. Með vísan til þess hafi kærandi ástæðuríkan ótta að verða ofsótt vegna fyrri starfa maka síns og eigi á hættu að verða sérstakt skotmark stjórnvalda verði hún endursend til Venesúela. Þá veiki það félagslega stöðu hennar til muna og ekkert sem bendi til þess að hún muni hafa aðgang að grundvallarþjónustu í landinu verði hún endursend. Ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi því brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga sem og gegn jafnræðisreglu 11. gr. sömu laga. Þeir annmarkar eigi að leiða til þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda og barna hennar til nýrrar meðferðar.

Að mati kæranda fái fullyrðingar Útlendingastofnunar um að einungis háttsettir leiðtogar eða einstaklingar sem séu áberandi í andstöðu sinni við stjórnvöld eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvald fái ekki stuðning í fyrirliggjandi heimildum. En heimildir sýni að það sé miklu breiðari hópur sem eigi á hættu að verða ofsóttur af stjórnvöldum við endurkomu. Kærandi gerir athugasemdir við mat stofnunarinnar um aðstæður barna í Venesúela og telur að þær séu sérstaklega slæmar í landinu. Að mati kæranda bendi margt til þess að hún og börn hennar séu berskjaldaðri en almenningur í Venesúela fyrir ofbeldi og áreiti stjórnvalda eða annarra aðila, m.a. vegna stjórnmálaskoðana, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi og samsafni athafna. Þá hafi kærandi flúið heimaríki sem leiði líkur til þess að stjórnvöld í landinu muni líta á hana sem andstæðing stjórnvalda og föðurlandssvikara. Kærandi gerir athugasemdir við að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið fjallað nægilega um einstaklingsbundnar aðstæður hennar og barna hennar. Telur kærandi að stofnunin hafi ekki rannsakað nægilega vel hvort endursending þeirra til Venesúela brjóti gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá er í greinargerð umfjöllun um stöðu kvenna í Venesúela og vísað til þess að venesúelskar konur eigi í mikilli hættu á að verða fyrir kynbundnu ofbeldi.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hún og börn hennar tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi, sbr. d-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi þar sem þau séu berskjölduð fyrir kynbundnum ofsóknum verði þau endursend til Venesúela og geti ekki fengið vernd eða aðstoð frá stjórnvöldum. Í öðru lagi tilheyri þau tilteknum þjóðfélagshópi þar sem heimildir bendi til þess að þau eigi á hættu að verða ofsótt af yfirvöldum og glæpagengjum í Venesúela vegna fyrri starfa M fyrir herinn. Í þriðja lagi byggir kærandi á því að hún og börn hennar eigi á hættu að verða ofsótt af glæpagengjum í Venesúela og teljist þau þar af leiðandi aðilar að tilteknum þjóðfélagshópi. Heimildir um aðstæður í landinu styðji við ótta þeirra um að verða þolendur gengjatengdra glæpa. Í fjórða lagi teljist kærandi og börn hennar aðilar að tilteknum þjóðfélagshópi með vísan til þess að þau séu einstaklingar sem flúið hafi frá Venesúela. Vísar kærandi til heimilda um að þeir sem snúi til baka til Venesúela eigi erfitt með að fá aðgang að félagsþjónustu, húsnæði og störfum. Vísar kærandi einnig til endursendingar venesúelskra ríkisborgara til Venesúela 16. nóvember 2023 á vegum íslenskra stjórnvalda og hvernig tekið hafi verið á móti þeim við komuna.

Kærandi byggir kröfu um alþjóðlega vernd einnig á því að hún eigi á hættu að verða ofsótt vegna stjórnmálaskoðana, sbr. e-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji sig tilheyra minnihlutahópi vegna stjórnmálaskoðana. Hún hafi skipulagt og mætt í mótmæli á vegum stjórnarandstöðunnar. Þá hafi M verið skráður á sérstakan lista yfir stjórnarandstæðinga, Tascon-listann, og þau hafi upplifað ofsóknir vegna þess, m.a. frá Collectivos. Þá hafi mágur kæranda tilheyrt stjórnarandstöðunni og verið háttsettur meðlimur í Gestion stjórnmálaflokknum. Raunhæf ástæða sé til að ætla að snúi kærandi aftur til Venesúela eigi hún á hættu á auknar ofsóknir, áreiti, hótanir og að verða tekin af lífi.

Kærandi byggir jafnframt á því að hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli samsafns athafna, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til fyrirliggjandi heimilda um að öryggisástandið í Venesúela sé slæmt og yfirvöld veiti borgurum landsins enga vernd og beiti almenna borgara kúgun og mismunun. Líta verði sérstaklega til stöðu hennar, þ.e. kyns, aldurs barna hennar, fyrri starfa eiginmanns hennar fyrir herinn, þátttöku og skipulagningu mótmæla og fyrri ofsókna af hálfu yfirvalda og glæpagengja og hvernig hún óttist bæði ofsóknir af hálfu glæpahópa og stjórnvalda. Þessir þættir geri stöðu hennar sérstaklega viðkvæma. Nýlegar heimildir bendi ekki til þess að yfirvöld hafi náð að stemma stigum við glæpum glæpagengja í Venesúela. Kærandi hafi lagt fram gögn sem styðji frásögn hennar um að hafa orðið fyrir ofsóknum og að hún eigi á hættu slíka meðferð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að það sé raunhæf hætta á að hún og börn hennar láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna almenns ástands í landinu. Byggir kærandi jafnframt á því að raunhæf hætta sé á að hún og börn hennar verði fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna vopnaðra átaka glæpahópa í landinu eða ofbeldisfullra viðbragða stjórnvalda við gagnrýni. Kærandi gerir athugasemdir við nýlega úrskurði kærunefndar útlendingamála hvað varðar mat á skilyrðum viðbótarverndar, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í málum umsækjenda frá Venesúela.

Kærandi telur óraunhæft og ósanngjarnt að ætla þeim að búa annars staðar í Venesúela, í skilningi 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vegna persónubundinna þátta geti kærandi og börn hennar hvergi flutt innan Venesúela og fengið þar vernd. Þjóðfélagsleg staða þeirra geri það að verkum að þau verði hvergi óhult innan Venesúela. Vísar kærandi til heimilda um að fólk sem sæki um alþjóðlega vernd og snýr aftur sé stimplað svikarar og það eigi á hættu að verða fyrir slæmri meðferð við endurkomuna af hálfu yfirvalda og vopnaðra hópa.

Kærandi byggir á því að verði þeim gert að snúa aftur til Venesúela yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Slík ákvörðun myndi brjóta gegn 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Til þrautavara er þess krafist að kæranda og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Aðstæður í Venesúela nái því alvarleikastigi sem orðalag 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga geri kröfu um. Kærandi hafi verið atvinnulaus vegna stjórnmálatengsla hennar og hafi þurft að treysta á aðstoð frá ættingjum. Félagsleg staða hennar hafi verið slæm í Venesúela og megi ætla að félagsleg staða hennar muni versna við endursendingu til Venesúela vegna persónulegra þátta. Verði kæranda synjað um vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði fjölskyldu hennar tvístrað í sundur og félagsleg staða hennar versna verulega. Kærandi gæti ekki framfleytt sjálfri sér og börnum sínum í Venesúela og undirstrikar framfærsluskyldu hjóna og foreldra. Yrði kærandi endursend til Venesúela ætti M í erfiðleikum með að sinna framangreindum skyldum sínum og yrði félagsleg staða kæranda sérstaklega veik.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að þeim verði veitt dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Með vísan til þess að M eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sé ljóst að kærandi og börn hennar uppfylli skilyrði fyrir dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningu, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Uppfylli kærandi og börn hennar skilyrði fjölskyldusameiningar þrátt fyrir breytingarlög nr. 68/2024. Hafi breytingarlög nr. 68/2024 verið birt í Stjórnartíðindum þann 3. júlí 2024 og því tekið gildi 4. júlí sama ár. Kærandi og börn hennar hafi sótt um alþjóðlega vernd og fjölskyldusameiningu áður en lagabreytingarnar tóku gildi og eigi því rétt á fjölskyldusameiningu á grundvelli 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Eigi lagabreytingar um endurnýjun dvalarleyfis, sbr. 7. gr. breytingarlaga ekki við um umsóknir þeirra líkt og stofnunin haldi fram. Kærandi og börn hennar þarfnist umönnunar og aðstoðar. Börn hennar séu m.a. greind með astma, þunglyndi og kvíða. Kærandi sé greind með þunglyndi og kvíða og geti ekki vegna andlegra veikinda séð um börnin án aðstoðar M. Þau þarfnist aðstoðar og umönnunar frá M sem þau geti fengið hér á landi. Ríkar sanngirnisástæður mæli með því að veita undanþágu frá kröfu um endurnýjun, sbr. 7. gr. laga nr. 68/2024 um breytingu á útlendingalögum, og uppfylli þau því skilyrði 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á að undanþágan um ríkar sanngirnisástæður eigi við í máli kæranda og barna hennar telur hún að ákvæði 7. gr. laga nr. 68/2024 um breytingu á útlendingalögum brjóti í bága við ákvæði 71. gr. stjórnarskrá lýðveldisins nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá brjóti framangreint breytingarákvæði einnig á meginreglu barnaréttar um bestu hagsmuni barnsins, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2002.

Lokakrafa kæranda snýr að brottvísun og endurkomubanni til Íslands en kærandi telur það ósanngjarnt að þeim verði gert að sæta brottvísun og endurkomubanni til Íslands, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Með vísan til atvika málsins, tengsla kæranda við landið, þeirri staðreynd að kærandi hafi leitað til Íslands í neyð sinni og að umsókn hennar sé ekki á nokkurn máta bersýnilega tilhæfulaus, telji kærandi að þeim skuli ekki ákveðin brottvísun. Þá myndi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann koma í veg fyrir að fjölskyldan gæti sameinast hér á Íslandi og aðlagast samfélaginu sem fyrst. Kærandi undirstrikar framfærsluskyldu hjóna og umönnunarskyldu foreldra og að slík ákvörðun yrði ekki í samræmi við 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og færi í bága við bestu hagsmuni barnsins, sbr. m.a. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og jafnræðisreglu, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og börn hennar séu venesúelskir ríkisborgarar. Kærandi greindi jafnframt frá því að hafa ríkisborgarrétt í Kólumbíu en lagði ekki fram gögn því til stuðnings. Ekki er ástæða til annars en að leggja það til grundvallar. Þar sem kærandi er ríkisborgari Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kæranda í Venesúela, sbr. 2. mgr. A.-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 1. október 2025);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 7. október 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 12. október 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs og hafi samningurinn gert ráð fyrir alþjóðlegu eftirliti með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Yfirvöld í Venesúela hafa enn ekki birt þær tölur.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og einstaklingar enn í haldi að ósekju, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni þess árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem geri þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verði í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, fór í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Íávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2023 kemur fram að Tascón listinn hafi verið notaður gegn þeim einstaklingum sem höfðu skrifað nafn sitt á hann í valdatíð Hugo Chávez. Rekja megi uppruna listans, sem um þrjár milljónir manna skrifuðu undir, til undirskriftarsöfnunar frá árinu 2003 um hvort svipta ætti Hugo Chávez forsetaembætti með því að afturkalla umboðið sem hann hlaut í kosningum árið 2000. Listinn hafi verið settur fram árið 2004 en í apríl 2005 hafi Hugo Chávez fyrirskipað að listinn skyldi ,,grafinn‘‘. Í kjölfarið hafi ríkislögmaður Venesúela hafið rannsókn til athugunar á því hvort að vinnuveitendur í einka- og opinbera geiranum væru að mismuna fólki á grundvelli þess að það væri á listanum. Enginn hafi þó verið ákærður.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.

Í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem hafi verið aflétt hafi verið komið á á ný eða nýjar settar á í kjölfar forsetakosninganna í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið sem geti haft áhrif á efnahag landsins.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 kemur fram að þrátt fyrir viðvarandi stjórnarkreppu í landinu og vaxandi efnahagslegar áskoranir, sem hafi aukist vegna yfirvofandi viðskiptaþvingana, þá hafi straumur yfir landamærin verið stöðugur, bæði inn í Venesúela sem og út úr landinu. Þá hafi á landamærastöðvum við Kólumbíu fleiri snúið til baka inn í landið en hafi yfirgefið það en á landamærastöðvum við Brasilíu væru enn fleiri sem leituðu til Brasilíu með von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria, auk þess sem einstaklingar hafi verið fluttir frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) áætli að nemi um 6,5 % af landsframleiðslu árið 2024, hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins haft áhrif á kaupmátt og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna. Það hafi leitt til félagslegrar óánægju, sérstaklega á meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli og stuðlað að flótta einstaklinga innan lands sem leiti bættra lífskjara. Flóttamannastofnun leitist við að aðstoða þá sem séu verst settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni endurkomu fólks til Venesúela. Vinni stofnunin ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og öðrum samtökum að sérstökum verkefnum til þess að aðstoða einstaklinga sem snúi aftur til Venesúela, s.s. með kennslu, heilbrigðisþjónusta, sálrænni og félagslegri aðstoð og skjóli. Séu þessi verkefni starfrækt í höfuðborg landsins Karakas, Tachira, Zulia og Bólívar fylkjum. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Í kjölfarið settu íslensk stjórnvöld sig í samband þá einstaklinga sem hægt var og óskað upplýsinga um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að sérstökum þjóðfélagshópi. Hún byggir einnig á því að eiga á hættu að verða ofsótt vegna stjórnmálaskoðana. Jafnframt byggir hún á almennu ástandi í Venesúela.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki vegna almenns ástands þar í landi og til að veita dætrum sínum öryggi. Þá hafi hún viljað sameinast eiginmanni sínum, M, sem búi hér á landi. Nafn M hafi verið skráð á hinn svokallaða Tascón lista fyrir að vera stjórnarandstæðingur og hafi þau þurft að þola ofsóknir og mismunun af þeim sökum. Fylgst hafi verið með M, brotist inn á heimili þeirra, heimili þeirra brennt og þá hafi þeim borist hljóðskilaboð með hótunum. Greindi kærandi einkum frá atvikum sem hafi átt sér stað árin 2014 og 2015 en kvað M hafa borist hótanir allt þar til kærandi og börn hennar hafi yfirgefið landið. Telji kærandi að meðlimir los collectivos hafi staðið að framangreindum ofsóknum en greindi jafnframt frá því að nágrannar þeirra og aðrir aðilar hafi komið illa fram við þau og sagt að þau tilheyrðu ekki samfélaginu. Kærandi hafi leitað eftir aðstoð og vernd yfirvalda en ekkert hafi verið aðhafst. Eftir að hús þeirra hafi verið brennt og ráðist hafi verið á M árið 2015 hafi kærandi, M og börn þeirra verið á flakki innanlands í Venesúela til þess að forðast frekara áreiti, þá hafi M farið til Kólumbíu til að vinna og lítið getað verið með fjölskyldu sinni. Kærandi hafi átt erfitt með að fá vinnu en unnið við að gera neglur og notið aðstoðar fjölskyldu sinnar við framfærslu. Hún hafi ekki sóst eftir aðstoð yfirvalda sem í boði var. Þá kvað kærandi að börn hennar hafi ekki gengið í skóla heldur hafi stelpa sinnt kennslu þeirra heimavið þar sem kærandi vildi ekki að börnin lærðu um einveldið.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn m.a. afrit af hjónavígsluvottorði, dags. 4. apríl 2017, sem ber með sér vera staðfesting á að kærandi sé í hjónabandi með M. Þá lagði kærandi fram frekari gögn hjá kærunefnd m.a. skjáskot af myndsímtali sem hún kveður sýna símtal þar sem M hafi verið hótað. Ekki verður af skjáskotinu ráðið hvaða menn er um að ræða, hvar eða hvenær skjáskotið hafi verið tekið. Er því ekkert sem rennir stoðum undir fullyrðingar kæranda um efni myndsímtalsins. Hefur skjáskotið því ekkert sönnunargildi hvað varðar meintar hótanir. Þá lagði kærandi fram ýmis gögn varðandi heilsufar sitt og barna sinna.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi sé á móti stjórnvöldum í heimaríki og hafi mætt á mótmæli á einhverjum tímapunkti. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða aðilar að samtökum sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Með vísan til frásagnar kæranda og gagna málsins er ekkert sem bendir til þess að kærandi sé í áberandi stöðu vegna skoðana sinna eða eigi frekar á hættu að verða fyrir ofsóknum en aðrir einstaklingar í heimaríki hennar sem séu mótfallnir stjórnvöldum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa orðið fyrir mismunun í heimaríki vegna þess að nafn M hafi verið skráð á Tascón listann. Með vísan til upplýsinga um heimaríki kæranda verður ekki hægt að útiloka að kærandi og M hafi orðið fyrir einhvers lags mismunun vegna framangreinds lista. Heimildir bera þó með sér að núverandi stjórnvöld í Venesúela séu ekki með virkum hætti að notfæra sér Tascón listann og þá greindi kærandi frá því að bæði hún og M hafi unnið ýmis störf í heimaríki og m.a. rekið fyrirtæki. Þrátt fyrir að þau hafi ekki getað unnið fyrir stjórnvöld verður ekki séð að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þá er í greinargerð byggt á því að kærandi og börn hennar tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi þar sem heimildir benda til þess að þau eigi á hættu að verða ofsótt af yfirvöldum og glæpagengjum í Venesúela vegna fyrri starfa M fyrir herinn. Af frásögn kæranda að ráða hefur hún ekki orðið fyrir áreiti vegna fyrrum starfa eiginmanns hennar fyrir herinn en í gögnum í máli M og af frásögn hans mátti ráða að hann hefði hætt störfum sem hermaður árið 2007 og dvalið í Venesúela í um níu ár eftir það án þess að hafa sætt áreiti eða mismunun af þeim sökum. Er því ekkert sem bendir til þess að kærandi og börn hennar eigi slíkt á hættu. Þá horfir kærunefnd til þess að í gögnum málsins liggur fyrir venesúelsk vegabréf kæranda og barna hennar, útgefin 22. maí 2024, með útstimplum frá Simon Bolívar International flugvellinum, dags. 25. júní 2024. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að kærandi hafi verið eða sé eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð er byggt á því að kærandi og börn hennar tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi þar sem þau séu berskjölduð fyrir kynbundnum ofsóknum verði þau endursend til Venesúela og geti ekki fengið vernd eða aðstoð frá stjórnvöldum. Af frásögn kæranda og málsgögnum verður ekki ráðið að kærandi og börn hennar hafi orðið fyrir kynbundnu áreiti eða mismunun á grundvelli kyns síns og er ekkert sem bendir til þess að þær séu sérstaklega útsettar fyrir slíku. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun þar í landi sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Sett hafi verið saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Í desember 2021 hafi verði gerð breyting á lögum um rétt kvenna til lífs án ofbeldis þar sem refsingar hafi m.a. verið þyngdar og sérhæfðir dómstólar sem fást við mál er varða kynbundið ofbeldi hafi verið settir á fót og starfi víðsvegar í Venesúela. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Af málatilbúnaði kæranda má ráða að hún óttist almennt ástand og starfsemi glæpahópa í heimaríki. Með vísan til landaupplýsinga er ekki ástæða til að draga í efa þann ótta kæranda. Af heimildum um heimaríki kæranda má ráða að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa þar í landi. Heimildir bera ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Getur kærandi því leitað aðstoðar yfirvalda telji hún ástæðu til þess.

Jafnframt byggir kærandi á því að hún og börn hennar teljist aðilar að tilteknum þjóðfélagshópi með vísan til þess að þau séu einstaklingar sem flúðu frá Venesúela. Vísar kærandi til heimilda um að þeir sem snúi til baka til Venesúela eigi erfitt með að fá aðgang að félagsþjónustu, húsnæði og störfum. Vísar kærandi einnig til endursendingar venesúelskra ríkisborgara til Venesúela 15. nóvember 2023 og hvernig tekið hafi verið á móti þeim við komuna. Kærunefnd bendir á að samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Það séu því aðeins einstaklingar sem þegar séu undir sérstöku eftirliti stjórnvalda sem séu í hættu við endurkomu til heimaríkis.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að A og B fylgi foreldri sínu aftur til heimaríkis. Börnin sem um ræðir eru í fylgd móður sína sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings hennar. Jafnframt sem þau hafi notið stuðnings föður síns þrátt fyrir búsetu hans í Kólumbíu og síðar á Íslandi. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að þau muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það þeim fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún og börn hennar eigi rétt á viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem það sé raunhæf hætta á að þau láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna almenns ástands í Venesúela. Byggir kærandi jafnframt á því að raunhæf hætta sé á að hún og börn hennar verði fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna vopnaðra átaka glæpahópa í landinu eða ofbeldisfullra viðbragða stjórnvalda við gagnrýni. Þá brjóti ákvarðanir Útlendingastofnunar gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu og starfi nú ýmis innlend og erlend frjálsfélagasamtök og alþjóðastofnanir í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Þá er ljóst að þrátt fyrir áframhaldandi viðskiptaþvinganir og takmörkum á olíuviðskipti í landinu sé áframhaldandi hægur hagvöxtur í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Miranda fylki í Venesúela þar til hún hafi flúið heimaríki sitt 27. júní 2024. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki staðsett í norðurhluta Venesúela og er borgin Miranda höfuðborg þess. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og barna hennar og aðstæður í heimaríki þeirra benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda og barna hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveður á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera með sykursýki sem hún væri að halda í skefjum með breyttu mataræði. Hún kvaðst vera með og kirtla og eitlavandamál og offitu vandamál. Þá hafi hún verið greind með þunglyndi og kvíða sem hún hafi fengið viðeigandi lyf við í heimaríki. Börn kæranda væru bæði með þunglyndi og kvíða. Þau hafi fengið sálfræðiviðtöl, geðlæknisþjónustu og viðeigandi lyf í heimaríki. A hafi sýnt sjálfskaðandi hegðun og hafi ekki getað sofið sem hún hafi fengið viðeigandi lyf við í heimaríki. Þá væri B með astma sem hún hafi fengið viðeigandi meðferð og lyf við í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa fengið læknisaðstoð frá vini móður sinnar sem hafi verið læknir og hafi meðhöndlað kæranda og börn hennar í greiða skyni. Aðspurð kvað kærandi að meðferð væri aðgengileg í heimaríki en að það þurfi að greiða fyrir hana og að það væru langir biðlistar. Þá kvaðst hún hafa haft aðgang að viðeigandi lyfjum í heimaríki en að þau væru dýr og að stundum hafi verið skortur á þeim. Það hafi verið auðveldara að fá læknisaðstoð í Kólumbíu og hafi kærandi m.a. farið til Cúcuta og Bógóta til að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Kærandi kvaðst ekki taka lyf að staðaldri.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram heilsufarsgögn. Kærandi lagði fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. júní 2024 til 21. október 2024, þar sem fram kemur að kærandi sé almennt heilsuhraust og taki engin lyf. Hún hafi verið greind með forsykursýki í heimaríki sem hún hafi tekið lyfin Metformin við en hún hafi hætt að taka þau vegna þess að hún hafi ekki haft efni á þeim. Kærandi væri með miðlungs alvarleg einkenni þunglyndis og alvarleg kvíðaeinkenni sem hún hafi fengið viðeigandi lyfjameðferð við. Hún hafi hætt lyfjameðferðinni af sjálfsdáðum. Í framlögðu vottorði sálfræðings sem er ódagsett, kemur fram að kærandi hafi við sálfræðimatsathugun sýnt einkenni sem bentu til alvarlegs þunglyndis, almennrar kvíðaröskunar og áfallastreituröskunar. Þá sé það faglegt mat sálfræðingsins að það myndi stefna geðheilsu kæranda í hættu að stöðva sálfræðimeðferð hennar. Þá myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir kæranda að endursenda hana í aðstæður þar sem hún væri ekki örugg. Þá lagði kærandi fram uppfærðan samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. nóvember 2024 til 21. febrúar 2025, þar sem m.a. kemur fram að kærandi þjáist af alvarlegu þunglyndi, kvíða og svefnleysi og sé í hópmeðferð hjá sálfræðingi og lyfjameðferð vegna þess.

Kærandi lagði fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna vegna A, dags. 27. júní 2024 til 10. september 2024, þar sem fram kemur að A hafi verið greind með þunglyndi og svefnleysi fyrir ári síðan sem hún hafi fengið viðeigandi lyfjameðferð við. Hún hafi þá sýnt tilhneigingu til sjálfsskaða, aðallega klórað sig sem hún hafi ekki sýnt síðan. Hún sé með ýmis einkenni sem stemma við ADHD. Hún hafi farið í ómskoðun vegna hnúðar í vinstra brjósti sem hafi komið eðlilega út. Jafnframt lagði kærandi fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna vegna B, dags. 27. júní 2024 til 12. júlí 2024 þar sem fram kemur að B sé almennt heilsuhraust og sé greind með astma sem hún hafi fengið viðeigandi lyf við sem hún taki eftir þörfum.

Samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu heilbrigðisráðuneytis Venesúela (sp. Ministerio del Poder Popular para la Salud), birt 17. apríl 2024, eru starfrækt 500 samfélagsapótek í landinu. Frá stofnun samfélagsapótekanna (FC) árið 2019 hafi þau gert ríkisstjórninni, í gegnum heilbrigðisráðuneytið, kleift að sinna beiðnum borgara um ókeypis lyf. Nái apótekin til meira en 57,49% af þjónustusvæðum heildstæðrar samfélagsheilbrigðisþjónustu (ASIC). Í Miranda fylki sem er heimafylki kæranda séu starfrækt 20 samfélagsapótek. Samstarf almannaheilbrigðiskerfisins (SPNS) undir forystu ráðherra heilbrigðismála hafi tekist að afhenda lyf á skilvirkan hátt til lang- og bráðveikra sjúklinga. Aðgengi lang- og bráðveika sjúklinga að meðferð sé tryggt, svo sem aðgengi sykursjúkra að insúlíni. Skrifstofa lyfjadreifingar vinn að því að koma lyfjum til samfélagsins í samræmi við fyrirmæli forseta landsins og heilbrigðisráðherra með það að markmiði að styrkja opinbera heilbrigðiskerfið (SPNS). Þrátt fyrir mótlæti og efnahagslega einangrun hafi samfélagsapótekin veitt mikilvæga þjónustu innan heilbrigðisgeirans, sem geri berskjölduðustu þjóðfélagshópunum kleift að fá aðgang að lyfjum án kostnaðar með beinum og skilvirkum hætti. Hafi stjórnvöld unnið að því að tryggja aðgengileg og ókeypis lyf fyrir alla venesúelska borgara. Ríkið niðurgreiði og tryggi jafnan aðgang að nauðsynlegri meðferð fyrir lang- og bráðveika sjúklinga í landinu.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi haft aðgang að meðferð og viðeigandi lyfjum í Venesúela en þau hafi verið dýr. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi og börn hennar glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi og börn hennar þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki fyrir sig og börn sín og fengið hana, þ. á m. sálfræðiþjónustu. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eða börn hennar hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi búið í einbýlishúsi í eigu tengdamóður systur sinnar í Miranda héraði í Venesúela áður en hún flúði heimaríki. Kærandi eigi systur, systurdóttur og mág í heimaríki. Kærandi kvaðst ekki hafa verið í launuðu starfi en greindi þó frá því að hafa unnið við að gera neglur. Hún kvaðst ekki hafa leitast eftir eða þegið aðstoð frá stjórnvöldum eða frá mannúðar- eða hjálparsamtökum en hún hafi fengið aðstoð frá fjölskyldu sinni. Þá greindi kærandi frá því að eiginmaður hennar hafi unnið í Kólumbíu og verður ekki annað ráðið en að hann hafi aðstoðað við framfærslu fjölskyldu sinnar. Er ljóst að hann mun áfram geta sinnt framfærsluskyldu sinni við eiginkonu og börn sín hvort sem er frá Íslandi eða Venesúela. Börn kæranda hafi ekki gengið í skóla í heimaríki en hafi fengið heimakennslu. Kærandi er almennt heilsuhraust og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún eða börn hennar hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 27. júní 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Í 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimild til að víkja frá skilyrðum 2. mgr. þegar sérstaklega stendur á. Í athugasemdum við frumvarp það er varð að gildandi lögum um útlendinga kemur fram að framangreind undanþága eigi t.d. við þegar ekki sé mögulegt fyrir útlending, sem að öðru leyti sé samvinnuþýður, að afla nauðsynlegra gagna, t.d. til að upplýsa um auðkenni sitt.

Ákvæði 69. gr. laga um útlendinga kveður á um skilyrði dvalarleyfis vegna fjölskyldusameiningar en í 2. mgr. ákvæðisins er fjallað um heimild til fjölskyldusameiningar til þeirra er fengið hafa leyfi á grundvelli 74. gr. laganna. Með lögum nr. 68/2024 um breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, var m.a. gerð sú breyting á ákvæðum 69. gr. laganna að aðstandendur útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis samkvæmt 74. gr. geti með umsókn fengið dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar hafi sá sem umsóknin sé byggð á fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað tvívegis fyrir framlagningu umsóknar, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þar kemur jafnframt fram að heimilt sé að víkja frá kröfu um endurnýjun mæli ríkar sanngirnisástæður með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða. Hvað falli undir ríkar sanngirnisástæður vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða hefur verið skilgreint í reglugerð um útlendinga. Þar segir í 51. gr. að með aðkallandi umönnunarsjónarmiðum skv. 2. mgr. 69. gr. sé að jafnaði aðeins átt við þau tilvik þegar sá sem rétturinn byggir á hafi verið umönnunaraðili maka síns áður en hann yfirgaf heimaríki sitt eða ef viðkomandi á barn í heimaríki sem sé í bráðri hættu, sé barn þar án forsjáraðila eða ef barn eigi við alvarleg veikindi að stríða. Af athugasemdum sem fylgdu frumvarpi því er varð að lögum nr. 68/2024 verður ekki annað ráðið en að markmið þeirra breytinga sem gerðar voru á 69. gr. hafi verið þær að auka þær kröfur sem gerðar eru til útlendinga áður en fjölskyldusameining á sér stað með því að koma í veg fyrir að aðstandendur útlendinga sem hér fá dvalarleyfi af mannúðarástæðum geti sameinast þeim hér á landi strax í kjölfar útgáfu dvalarleyfis.

Við túlkun á því hvað falli undir sérstakar ástæður í skilningi 3. mgr. 74. gr. verður að líta til sjónarmiða um hvað telst til ríkra sanngirnisástæðna vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða í 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Þegar tekið er mið af ákvæðum laga nr. 68/2024 um breytingar á 69. gr. laga um útlendinga og markmiðum þeirra breytinga verður ekki fallist á að undanþága 3. mgr. 74. gr. nái utan um tilvik þar sem lögbundnir tímafrestir hafi ekki liðið. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að M hafi verið aðal umönnunaraðili barna sinna í heimaríki þeirra eða að A og B eigi við alvarleg veikindi að stríða. Þá hefur í úrskurði þessum verið komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og börn hennar séu ekki í bráðri hættu í heimaríki þeirra og ljóst að A og B verða ekki án forsjáraðila í heimaríki. Við framangreint mat hefur verið höfð hliðsjón af meginreglunni um einingu fjölskyldunnar og það sem telst A og B fyrir bestu. Kærandi og börn hennar komu hingað til lands og sóttu um alþjóðlega vernd tveimur árum eftir M. Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að fjölskyldan geti sameinast í heimaríki kærenda kjósi þau svo.

7 Fjölskyldusameining samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð kæranda er þess krafist að hún og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að kærunefnd útlendingamála hafi veitt M dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þann 18. desember 2024. Þá hafi kærandi og börn hennar sótt um alþjóðlega vernd og fjölskyldusamningu 27. júní 2024, áður en lög nr. 68/2024, um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016, hafi tekið gildi. Eigi því lagabreytingar um endurnýjun dvalarleyfis, sbr. 7. gr. breytingarlaganna ekki við um umsókn kæranda líkt og Útlendingastofnun haldi fram.

Í lögum um útlendinga er gert ráð fyrir því að við vinnslu umsóknar um alþjóðlega vernd geti komið til skoðunar hvort umsækjandi uppfylli kröfur dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr., dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals, sbr. 75. gr. og dvalarleyfi fyrir fórnarlamb mansals, sbr. 76. gr. Að auki kann að vera tekin afstaða til réttar til fjölskyldusameiningar skv. 2. mgr. 45. gr. laganna sé tilefni til þess. Um aðrar tegundir dvalarleyfa, þ. á m. dvalarleyfi á grundvelli VIII. kafla, er gerð sú krafa að sótt sé sérstaklega um þau leyfi. Í 9. gr. reglugerðar um útlendinga kemur og fram að sækja skuli um dvalarleyfi á sérstöku eyðublaði sem Útlendingastofnun útbýr og skal umsækjandi almennt skrifa undir umsókn með eigin hendi. Þá er jafnframt gerð sú krafa að greitt sé fyrir umsókn um dvalarleyfi, sbr. 6. tölul. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Kærandi hefur hvorki lagt fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli 69. gr. né greitt lögbundið afgreiðslugjald. Kröfu kæranda um útgáfu dvalarleyfis á þeim grundvelli er því vísað frá.

Kæranda er leiðbeint um að leggja fram umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun á framangreindum grundvelli, telji hún sig fullnægja skilyrðum fyrir útgáfu þess. Með þessum leiðbeiningum er kærunefnd þó ekki að taka afstöðu til þess hvernig slík umsókn verður afgreidd.

8 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

8.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

8.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda og barna hennar falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi og börn hennar eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.

9 Brottvísun og endurkomubann

9.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

9.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni og börnum hennar frá Íslandi og ákvarða henni endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvað að einu tengslin hennar væru á Íslandi. Eiginmaður hennar, foreldrar og systkini væru hér á landi. Kærandi taldi brottvísun og endurkomubann ósanngjarna ráðstöfun. Þá er í greinargerð byggt á því að með brottvísun kæranda og barna hennar verði fjölskyldan aðskilin og eiginmanni kæranda gert ómögulegt að sinna framfærsluskyldu sinni. Yrði því brotið gegn ákvæðum og friðhelgi einkalífs og fjölskyldu, skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Taka verður mið af hagsmunum barna kæranda við ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda. Litið er til þess að kærandi og börn hennar hafi komið hingað til lands og sótt um alþjóðlega vernd tveimur árum eftir M. Þá hafi kærandi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að M hafi flutt til Kólumbíu 2016 og búið þar í fimm ár áður en hann hafi komið hingað til lands árið 2022 og verður ekki betur séð en að hann hafi verið fær um að sinna framfærsluskyldu sinni á þeim tíma. Þá sé ekkert í gögnum málsins sem bendi til annars en að fjölskyldan geti sameinast í heimaríki kæranda kjósi þau svo. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn og nýtt sér áritanafrelsi sem ríkisborgarar Venesúela njóta til að rækta tengsl við fjölskyldu sína hér á landi.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

10 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, her re-entry ban will be revoked.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Vera Dögg Guðmundsdóttir