23 október 2025
/
Mál nr. 11/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. júní 2025
í máli nr. 11/2025:
Handlæknastöðin ehf.
gegn
Sjúkratryggingum Íslands
Lykilorð
Stöðvunarkröfu hafnað.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um að hið kærða útboð yrði stöðvað um stundarsakir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. apríl 2025 kærði Handlæknastöðin ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins“.
Kærandi krefst þess aðallega að hið kærða innkaupaferli verði fellt úr gildi, að varnaraðila verði gert að sæta viðurlögum samkvæmt 118. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og bjóða innkaupin út með löglegum hætti þar sem ólögmætir skilmálar í innkaupaskilmálum hafa verið felldir á brott. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun varnaraðila um að vísa frá tilboði kæranda í hinu kærða innkaupaferli verði felld úr gildi. Í báðum tilvikum krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Loks krefst kærandi þess að innkaupaferli varnaraðila verði stöðvað um stundasakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.
Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Í greinargerð varnaraðila 20. maí 2025 er þess krafist að öllum kröfum kæranda verði vísað frá eða hafnað. Varnaraðili lagði fram viðbótarupplýsingar með tölvupósti degi síðar.
Í ákvörðun þessari verður tekin afstaða til kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila verði stöðvað um stundarsakir en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.
Með auglýsingu 6. desember 2024 óskaði varnaraðili eftir tilboðum í valdar aðgerðir utan heilbrigðistofnana ríkisins. Um var að ræða liðskiptaaðgerðir, augasteinsaðgerðir o.fl. Tilboð munu hafa verið opnuð 25. febrúar 2025 og bárust þar tilboð frá þremur fyrirtækjum, þ.m.t. kæranda.
Með tölvupósti 10. mars 2025 tilkynnti varnaraðili að hann hygðist ganga til samninga við nánar tiltekin fyrirtæki. Með tölvupósti sama dag til kæranda upplýsti varnaraðili að tilboð kæranda hefði verið haldið nánar tilteknum annmörkum og varnaraðili hefði ákveðið að vísa tilboðinu frá.
Kærandi óskaði eftir nánari upplýsingum um grundvöll ákvörðunarinnar með fyrirspurn í þremur liðum. Varnaraðili rökstuddi ákvörðunina nánar í ódagsettu skjali sem mun hafa verið afhent kæranda 11. mars 2025. Með bréfi 17. mars 2025 krafðist kærandi þess að varnaraðili félli frá frávísun tilboðsins og að kæranda yrði gert kleift að afhenda gögn og upplýsingar til að bæta úr ætluðum annmörkum á tilboðinu. Í niðurlagi bréfsins áskildi kærandi sér rétt til að leggja fram kæru til kærunefndar útboðsmála. Varnaraðili svaraði bréfinu 8. apríl 2025 og hafnaði kröfum kæranda. Með tölvupósti 8. apríl 2025 óskaði kærandi eftir upplýsingum kæruheimild, kæruleiðir og kærufresti. Varnaraðili svaraði póstinum sama dag og veitti umbeðnar upplýsingar.
Kærandi byggir í meginatriðum á að innkaupaferli varnaraðila falli undir valdsvið kærunefndar útboðsmála og að varnaraðili hafi vanrækt að bjóða út innkaupin í samræmi við lög nr. 120/2016 auk þess sem tilteknir innkaupaskilmálar varnaraðila hafi verið ólögmætir. Þá byggir kærandi á að varnaraðila hafi verið óheimilt að vísa tilboðinu hans frá í útboðinu. Í kæru er að finna nánari rökstuðning fyrir framangreindum röksemdum kæranda.
Varnaraðili byggir meðal annars á að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 hafi verið liðinn við móttöku kæru. Kæranda hafi verið tilkynnt um höfnun tilboðs hans 10. mars 2025 og hafi ítarlegri útskýring á annmörkum á tilboði hans verið send honum degi síðar. Kærufrestur hafi byrjað að líða 10. mars 2025 enda hafi ekkert nýtt komið fram um ástæður höfnunar tilboðsins í síðari bréfaskrifum milli aðila. Þá megi ráða af bréfi lögmanns kæranda 17. mars 2025 að kæranda hafi mátt vera ljóst að hann yrði á þeim tímapunkti að gæta að kærufrestum samkvæmt lögum nr. 120/2016 enda þótt varnaraðili hafi talið að þau lög hafi ekki átt við um innkaupaferlið. Þá lúti flestar málsástæður kæranda að innkaupaskilmálum sem hafi verið birtir á vef varnaraðila 6. desember 2024 en þegar kæra hafi borist nefndinni hafi verið liðnir tæpir fimm mánuðir frá birtingu þeirra.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Áður var fjallað um kærufrest í 94. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og sagði í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi að þeim lögum að við opinber innkaup sé oft og tíðum sérlega mikilvægt að ekki sé fyrir hendi óvissa um gildi tiltekinna ákvarðana kaupanda, jafnvel þótt þær kunni að vera ólögmætar og leiða til bótaskyldu.
Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar útboðsmála hefur verið litið svo á að bjóðendur hafi skamman frest til að kynna sér útboðsgögn eftir að þau hafa verið gerð aðgengileg og þar til kærufrestur vegna athugasemda sem varðar efni þeirra byrjar að líða.
Svo sem fyrr segir er málatilbúnaður kæranda í meginatriðum á því byggður að varnaraðili hafi vanrækt að auglýsa innkaupin í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016 og að tilteknir skilmálar útboðsgagna hafi verið ólögmætir. Þá byggir kærandi á að ákvörðun varnaraðila um að vísa frá tilboði hans hafi verið ólögmæt.
Hið kærða útboð var auglýst 6. desember 2024 og þykir mega ráða af fyrirliggjandi gögnum að útboðsskilmálar hafi verið aðgengilegir þátttakendum frá þeim degi. Í útboðsskilmálum komu fram þeir skilmálar sem kærandi telur ólögmæta. Þá komu fram upplýsingar um að innkaupin væru að áliti varnaraðila undanskilin ákvæðum laga nr. 120/2016 með vísan til 3. málsl. 2. mgr. 92. gr. laganna, sbr. grein 1.2. Af þeim sökum mátti kærandi skömmu eftir birtingu útboðsgagna gera ráð fyrir að auglýsingar vegna innkaupanna kynnu að verða með öðrum hætti en lögin miða við. Frestur 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 til að koma á framfæri kæru vegna þessara atriða var því löngu liðinn þegar kæra barst nefndinni 28. apríl 2025.
Eins liggur fyrir að varnaraðili tilkynnti kæranda um ákvörðun um frávísun á tilboði hans með tölvupósti 10. mars 2025 og rökstuddi ákvörðunina nánar í ódagsettu skjali sem mun hafa verið afhent kæranda degi síðar eða 11. mars 2025. Bjó kærandi því á þessum tíma yfir þeirri vitneskju sem leiddi til þess að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. byrjaði að líða gagnvart þessum atriðum. Sá frestur var liðinn þegar kæra barst nefndinni og ekki verður séð að þær tafir sem urðu á framsetningu kæru verði réttlættar með hliðsjón af atvikum málsins.
Samkvæmt framangreindu þykir mega miða við, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga um opinber innkaup hafi verið liðinn þegar kæra barst nefndinni 28. apríl 2025. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Ákvörðunarorð:
Hafnað er kröfu kæranda, Handlæknastöðvarinnar ehf., um að útboð varnaraðila, Sjúkratrygginga Íslands, auðkennt „Valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins“, verði stöðvað um stundasakir.
Reykjavík, 16. júní 2025.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir