23 október 2025
/
Nr. 806/2025 Úrskurður
Hinn 23. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 806/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25060206
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. júní 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. júní 2025, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi kom til Íslands 26. júní 2025, með flugi frá Mílanó, Ítalíu. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsett sama dag, var kæranda vísað frá landinu.
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hefði ekki næg fjárráð auk þess sem tilgangur dvalar hans væri óljós.
Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 27. júní 2025, hafi kærandi verið í skoðun hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Lögregla hafi verið kölluð til og hafi hún boðið kæranda til viðtals í aðstöðu lögreglu. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann væri kominn til landsins sem ferðamaður og myndi dvelja til 29. júní 2025. Meðferðis hefði hann [...] evrur í reiðufé en hann væri ófær um að framvísa bankareikningi sínum. Að sögn kæranda myndi móðir hans millifæra á hann peninga og kvaðst hann munu hafa samband við hana. Kærandi kvaðst vera að koma til Íslands í fyrsta sinn og að hann þekkti engan hér á landi. Hann hafi upplýst lögreglu um gistiheimili sitt og kvaðst ætla að heimsækja Bláa Lónið auk þess að skoða íslensk söfn. Kærandi kvaðst búsettur á Ítalíu en hafði einnig meðferðis kennivottorð frá Rúmeníu hvar hann ætti tvö börn. Að sögn kæranda kæmi kærasta hans, sem búsett væri á Ítalíu, mögulega til landsins degi síðar.
Í skýrslunni kemur fram að kærandi hafi framvísað staðfestri bókun í Bláa Lónið, sem greidd hafi verið af kærustu hans. Þá hafi kærandi sýnt lögreglu skjáskot af nokkrum söfnum sem hann vildi heimsækja og skoða, þ. á m. Þjóðminjasafnið, Perluna, og Hallgrímskirkju. Kærandi hafi ætlað að ferðast um landið með rútu eða leigubílum, hefði hann tök á. Aðspurður um fjármögnun kvaðst kærandi munu nota greiðslukort en hann kæmist þó ekki inn á bankareikning sinn. Kærandi sýndi lögreglu skjáskot af millifærslu frá móður hans að fjárhæð [...] evra. Kærandi hafi ekki vitað nákvæmlega hvar umrædd söfn sem hann vildi heimsækja væru, en hann myndi finna út úr því á gististaðnum. Þá hafi hann talið að gististaðurinn væri um 50 kílómetra frá Keflavíkurflugvelli. Því næst hafi lögregla borið landakort undir kæranda og beðið hann að benda á Reykjavík sem hann hafi ekki getað gert.
Aðspurður hafi kærandi vonast til að kærasta hans myndi koma til landsins einum eða tveimur dögum síðar en hún hefði aldrei komið til Íslands. Hafi kærandi greint frá starfi, ríkisfangi, og búsetu kærustu sinnar. Fram kemur að kærasta kæranda hefði keypt farmiða fyrir kæranda en hann þekkti ekki hvaða ferðaþjónustufyrirtæki hefði haft milligöngu um það. Samkvæmt kerfum lögreglu hafi nafngreindur íslenskur maður keypt farmiða fyrir kæranda til landsins en kærandi kvaðst ekki þekkja til aðilans. Aðspurður starfi kærandi á Ítalíu sem iðnaðarmaður og greindi lögreglu frá tekjum sínum. Hann væri ekki kominn til landsins í þeim tilgangi að vinna. Aðspurður hafi kærandi einnig ætlað að ferðast um landið með lest. Þá hafi lögregla fengið bókanir kæranda fyrir gistingu og flugi úr landi staðfestar, þar af væri gistibókun hans fullgreidd.
Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi síðan yfirgefið landið til Amsterdam, Hollandi.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 30. júní 2025. Sama dag var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 2. júlí 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 10. júlí 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi komið til landsins með flugi frá Mílanó, Ítalíu. Lögregla hafi haft afskipti af honum og spurt út í tilgang ferðar hans. Kærandi hafi upplýst lögregluna að hann væri með bókaða gistingu, bókaðan miða í Bláa Lónið og ætti bókað flug úr landi 29. júní 2025. Að auki hafi kærandi tjáð lögreglu að hann væri með næga fjármuni í formi reiðufjár og bankainnistæðna. Þá hafi hann fengið staðfestingu á að búið væri að millifæra [...] evrur á bankareikning hans, sem væri rétt ókomið á reikninginn. Um kvöldið hafi kæranda verið birt ákvörðun lögreglunnar um frávísun. Athygli veki að birting ákvörðunar hafi farið fram átta klukkustundum eftir töku ákvörðunarinnar. Þá hafi ákvörðunin hvorki innihaldið efnislegan rökstuðning né hafi kæranda verið leiðbeint um rétt sinn til að óska eftir rökstuðningi. Við birtingu ákvörðunar hafi kæranda fyrst verið kynntur réttur sinn til að leita aðstoðar lögmanns á eigin kostnað.
Kærandi byggir á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni hér á landi í skilningi c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar með því að meina honum inngöngu í landið sökum óljóss tilgangs þegar hann hafi framvísað fullnægjandi gögnum um fyrirhugað ferðalag sitt til Íslands, þ.m.t. gögnum um gistingu, ferðaplan og farmiða úr landi. Kærandi byggir einnig á því að hann hafi haft næg fjárráð til dvalar hér á landi og heimferðar. Byggt er á því að lögregla hefði átt að bíða eftir því að umrædd millifærsla bærist kæranda, enda ætti hann rétt á að fá máli sínu frestað til að koma að andmælum. Telur kærandi að lögregla hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar og brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Framangreind brot feli í sér efnislegan annmarka sem leiði til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar. Að auki er byggt á því að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýsluréttar um markhæfni, þar sem ákvörðunin falli ekki að markmiðum 106. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að markmiðið sé að koma í veg fyrir að einstaklingar komi til landsins á fölskum forsendum með það fyrir augum að dvelja og vinna án leyfis. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi komið í öðrum tilgangi en sem ferðamaður.
Kærandi byggir einnig á verulegum málsmeðferðarannmörkum, efnislegum annmörkum og skorti á rökstuðningi. Hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, með því að leiðbeina kæranda ekki um hvaða gögnum hún hafi óskað eftir og veita honum ekki leiðbeiningar um þær réttarheimildir sem reynt hafi á við úrlausn málsins. Með framangreindu hafi lögregla að auki brotið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga.
Kærandi vísar til þess að lögregla hafi brotið gegn skýlausum rétti hans samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga þar sem kæranda hafi ekki verið leiðbeint um rétt sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað í upphafi málsins. Kærandi vísar til tiltekinna úrskurða máli sínu til stuðnings. Hann telur að framangreindir annmarkar hafi leitt til þess að mál hans hafi ekki verið rannsakað í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Í hinni kærðu ákvörðun sé jafnframt ekki að finna rökstuðning og ekki sé tilgreint hvaða gögn hafi skort eða hafi leitt til niðurstöðu lögreglu í málinu. Hafi ákvörðunin heldur ekki innihaldið leiðbeiningar um rétt til rökstuðnings í samræmi við 1. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Ákvörðunin hafi því ekki verið nægilega skýr til að kærandi geti metið réttarstöðu sína.
Kærandi byggir á því að birting ákvörðunarinnar hafi ekki verið í samræmi við birtingarreglu 20. gr. stjórnsýslulaga og kveður hana hafa verið birta átta klukkustundum eftir töku hennar. Vísar kærandi til athugasemda við 20. gr. í frumvarpi til stjórnsýslulaga þess efnis að stjórnvaldsákvörðun skuli kynnt aðilum máls án ástæðulausrar tafar. Töf á birtingu fyrir kæranda hafi ekki verið réttlætanleg, einkum í ljósi þess að frávísunarmál skuli afgreidd með hraði til að koma í veg fyrir frekari réttarspjöll.
Loks byggir kærandi á því að frávísun hafi falið í sér brot gegn meginreglunni um réttarmætar væntingar þar sem hann hafi talið að hann ætti að fá inngöngu í landið og uppfyllt öll skilyrði fyrir komu til landsins.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 26. júní 2025, byggir á c, og d-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi sem ferðamaður í fjóra daga frá 26. til 29. júní 2025. Kærandi sýndi fram á farmiða úr landi og gistingu á meðan dvölinni stæði og fékk lögregla bókanir hans staðfestar. Þá hafi kærandi framvísað bókun í Bláa Lónið og ætlaði auk þess að skoða söfn og tiltekna staði í Reykjavík á borð við Þjóðminjasafnið, Perluna og Hallgrímskirkju. Hafi kærandi framvísað [...] evrum í reiðufé til sönnunar á framfærslu sinni hérlendis en hann hafði ekki aðgang að bankareikningi sínum. Ljóst er af ákvæði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri að útlendingar þurfi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og leggja fram viðhlítandi gögn þar að lútandi. Meðal gagna sem talin eru upp í ákvæðinu er nægt fé til framfærslu en ljóst er að fjármagn verði að taka mið af ferðaáætlun, bæði er varðar lengd dvalar en einnig fyrirhugaða afþreyingu. Að framangreindu virtu verður því ekki fallist á að sú ferðaáætlun sem kærandi lýsti fyrir lögreglu teljist trúverðug, m.a. með hliðsjón af því fjármagni sem kærandi hafði til framfærslu. Með vísan til þess hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni, sbr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi [...] evrur í reiðufé þegar lögregla hafði afskipti af honum. Þá kvaðst hann ekki hafa aðgang að bankareikningi sínum. Að sögn kæranda hefði móðir hans millifært á hann [...] evrur og sýndi hann skjáskot þar að lútandi. Á kærustigi hafi framburður kæranda breyst á þá leið að fjárhæðin hefði hækkað í [...] evrur. Þó hafi kærandi bent á að fjármunirnir hefðu ekki verið mótteknir en væru rétt ókomnir. Af 106. gr. laga um útlendinga leiðir að ákvarðanir um frávísun verða að byggja á haldbærum forsendum sem liggja fyrir við töku stjórnvaldsákvarðana. Af 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri má jafnframt leiða að forsendur fyrir því að útlendingum sé heimiluð landganga séu byggðar á gögnum og upplýsingum sem þeir leggja sjálfir fram við skoðun á landamærunum. Líkt og fram kemur í skýrslu málsins hafði kærandi ekki aðgang að bankareikningum og gat því ekki sýnt fram á nægt fjármagn til dvalarinnar. Skjáskot stakrar millifærslu er ekki áreiðanlegt málsgagn varðandi fjárráð án þess að það sé sannreynt með bankareikningi eða öðrum gögnum sem sýni fram á að fjármunirnir séu kæranda sannarlega aðgengilegir. Líkt og að framan greinir takmarkaðist reiðufé kæranda við [...] evrur og þá hefur hann ekki borið fyrir sig aðgengi að ferðatékkum. Að framangreindu virtu er lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Kærandi vísar til þess að málsmeðferð lögreglunnar hafi brotið gegn 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar m.a. til úrskurða kærunefndar nr. 161/2025 frá 26. mars 2025, nr. 160/2025 frá 26. mars 2025, nr. 257/2025 frá 26. mars 2025, og nr. 256/2025 frá 26. mars 2025 sem hann telur sambærilega máli hans þar sem felldar hafi verið úr gildi ákvarðanir lögreglunnar þar sem aðilum hafi ekki verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns við upphaf máls. Fyrir liggur að kæranda var leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við upphaf málsins samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Verður ekki fallist á að málin séu sambærileg máli kæranda.
Kærandi telur að lögregla hafi brotið gegn 20. gr. stjórnsýslulaga varðandi birtingu ákvörðunar. Að sögn kæranda hafi ákvörðunin verið birt átta klukkustundum eftir að hún var tekin. Samkvæmt gögnum málsins liðu um átta klukkustundir frá komu kæranda til landsins og þar til ákvörðun var birt fyrir honum. Ljóst er af gögnum málsins, einkum skýrslu lögreglu, að lögregla átti í samtölum við kæranda, m.a. með aðkomu túlks, sem tók nokkurn tíma. Í lok þess samtals hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda og birt hana fyrir honum í beinu framhaldi. Verður ekki fallist á með kæranda að málsmeðferð lögreglu hafi brotið gegn 9. eða 20. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi vísar jafnframt til þess að málsmeðferð og ákvörðun lögreglunnar hafi brotið gegn 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga. Með tilliti til framangreinds er að öðru leyti ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglunnar í máli kæranda.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfest.
Athugasemdir við störf lögreglu
Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir