24 október 2025

/

Frávísun á kæru vegna veiðileyfissviptingar

Föstudaginn, 24. október 2025, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Með bréfi, dags. 23. september 2025, bar Y fram kæru f.h. X ehf. (kærandi) vegna ákvörðunar Fiskistofu frá 9. september 2025 um að svipta fiskiskipið A leyfi til strandveiða í tvær vikur.

Stjórnsýslukæran er byggð á 24. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og barst innan kærufrests.

Kröfur

Ráðuneytið leggur þann skilning í kæru málsins að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Málsatvik og ágreiningsefni málsins

Kærandi er eigandi fiskiskipsins A samkvæmt skráningu í skipaskráningar- og lögskráningarkerfi Samgöngustofu. Þann 9. september sl. tilkynnti Fiskistofa honum að við athugun á skráningu skipsins hefði komið í ljós að meirihlutaeigandi kæranda hafi ekki verið lögskráður um borð í strandveiðiferðum tiltekna daga strandveiðitímabilsins. Bent var á að slíkt fæli í sér brot gegn 3. og 4. málsl. 4. mgr. 3. gr. og 6. tölul. 5. gr. reglugerðar nr. 460/2024, sbr. 3. málsl. 3. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006. Í ljósi þessa hefði Fiskistofa tekið þá ákvörðun að svipta fiskiskipið A leyfi til strandveiða í tvær vikur frá og með gildistöku næsta strandveiðileyfis með heimild í 1. mgr. 15. gr. laga nr. 57/1996, sbr. 24. gr. laga nr. 116/2006. Með vísan til þess að ákvörðun Fiskistofu væri byggð á hlutlægum gögnum tók Fiskistofa fram í hinni kærðu ákvörðun að ekki hafi verið talin þörf á að veita andmælarétt í málinu. Hins vegar var athygli kæranda vakin á endurupptökuheimild 24. gr. stjórnsýslulaga ef hann teldi ákvörðunina byggja á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef ákvörðunin hefði byggst á atvikum sem breyst hefðu verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Degi eftir framangreinda ákvörðun, þ.e. þann 10. september, sendi einn af eigendum kæranda fyrir hönd hans erindi á Fiskistofu ásamt gögnum úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Benti hann á það sem hann taldi villu í uppflettingum Fiskistofu og fór fram á að farið yrði aftur yfir þær skráningar sem Fiskistofa hefði aðgang að og hin kærða ákvörðun yrði leiðrétt. Fiskistofa svaraði erindi þessu þann 11. september og tilkynnti kæranda að í ljósi þeirra upplýsinga sem þar hefðu komið fram yrði það tekið til skoðunar hvort grundvöllur væri fyrir endurupptöku málsins.

Þann 23. september sl. var fyrrgreind ákvörðun Fiskistofu, um að hafna beiðni um flutning veiðireynslu, kærð til ráðuneytisins. Í kjölfarið var óskað eftir upplýsingum frá Fiskistofu um stöðu málsins. Svör við því bárust 9. október sl. en í ljósi niðurstöðu málsins þótti ekki ástæða til að óska eftir frekari athugasemdum frá kæranda.

Í kæru eru ekki sérstaklega rakin þau sjónarmið sem búa að baki henni en gera má ráð fyrir að þau séu þau sömu og finna má í erindi eiganda kæranda til Fiskistofu þann 10. september, sem rakið er að ofan. Í svari Fiskistofu til ráðuneytisins er upplýst að málið sé enn til skoðunar hjá stofnuninni og að beðið sé eftir svörum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra um hvers vegna gögn sem Fiskistofa fékk afhent séu ekki sambærileg þeim sem fylgdu erindi eiganda kæranda.

Forsendur og niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Fiskistofu um að svipta fiskiskipið A leyfi til strandveiða í tvær vikur. Fyrir liggur að til skoðunar er hjá Fiskistofu að endurupptaka málið á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Eins og erindi kæranda til Fiskistofu þann 10. september var sett fram fær ráðuneytið ekki annað séð en að í því hafi falist beiðni um endurupptöku málsins.

Í 24. gr. stjórnsýslulaga segir að eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt eigi aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Í skýringum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að ef óskað er eftir endurupptöku áður en mál er kært beri æðra stjórnvaldi almennt að vísa málinu frá af þeim sökum. Eftir að ný ákvörðun hafi svo verið tekin í málinu af hinu lægra stjórnvaldi sé aðila heimilt að kæra málið á ný.

Líkt og áður segir hefur kærandi óskað eftir endurupptöku málsins hjá Fiskistofu og er sú beiðni enn til skoðunar hjá stofnuninni. Að þessu virtu telur ráðuneytið óhjákvæmilegt að vísa kæru málsins frá. Hins vegar er athygli kæranda vakin á 4. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga, en þar segir að þegar aðili óskar eftir endurupptöku máls innan kærufrests rofni kærufresturinn. Hafni stjórnvald að taka mál til meðferðar á ný haldi kærufrestur áfram að líða að nýju frá þeim tíma þegar sú ákvörðun er tilkynnt aðila.

Úrskurðarorð

Stjórnsýslukæru X ehf., dags. 23. september 2025, vegna ákvörðunar Fiskistofu frá 9. september 2025 um að svipta fiskiskipið A leyfi til strandveiða í tvær vikur, er vísað frá ráðuneytinu.