29 október 2025

/

Nr. 832/2025 Úrskurður

Hinn 29. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 832/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25070154

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. júlí 2025 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Níkaragva ( hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2025, um synja umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt ótímabundið dvalarleyfi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 19. október 2018. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. október 2019, var honum synjað um alþjóðlega vernd og um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga. Með úrskurði kærunefndar nr. 201/2020, dags. 4. júní 2020, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest vegna umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd. Með úrskurðinum var þó lagt fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða 4. júní 2020 með gildistíma til 4. júní 2021. Leyfið hefur verið endurnýjað tvisvar sinnum, síðast með gildistíma til 9. maí 2025. Hinn 11. október 2024 lagði kærandi fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 5. júní 2025, var kærandi upplýstur um að samkvæmt upplýsingum lögreglu ætti kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann væri grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga. Stæði það að óbreyttu í vegi fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis. Með bréfinu var kæranda veittur sjö daga frestur til þess að leggja fram gögn sem sýndu fram á að hann ætti ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu. Að öðrum kosti myndi Útlendingastofnun taka ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Bera gögn málsins ekki með sér að kærandi hafi lagt fram gögn þess efnis að hann ætti ekki ólokin mál í refsivörslukerfinu innan veitts frests. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2025, var umsókn kæranda synjað, með vísan til þess að hann ætti ólokið mál í refsivörslukerfinu, þar sem hann væri grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs. Ákvörðunin var kærð til kærunefndar útlendingamála 10. júlí 2025. Með tölvubréfi, dags. 31. júlí 2025, lagði kærandi fram greinargerð vegna málsins. Útlendingastofnun lét kærunefnd gögn málsins í té með rafrænum gagnasendingum, dags. 16. júlí og 14. október 2025. Meðal gagna málsins er skjáskot af tölvubréfi lögreglu, dags. 7. október 2025, þar sem fram kæmi að kærandi ætti engin opin mál í málaskráningarkerfi lögreglu.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi í gildi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Hinn 11. október 2024 hafi kærandi sótt um ótímabundið dvalarleyfi en umsókn hans hafi verið synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar. Við meðferð málsins hafi kærandi endurtekið óskað eftir því að Útlendingastofnun fresti afgreiðslu málsins þar sem tafir hafi orðið á afgreiðslu lögreglu á sakamáli á hendur kæranda. Um sé að ræða einfalt mál þar sem kæranda væri gefið að sök að hafa brotið gegn lögreglulögum með þeirri háttsemi að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Kærandi búist við því að málið verði fellt niður þar sem hann hafi ekki brotið gegn lögreglulögum. Búist kærandi við niðurfellingarbréfi frá lögreglu sem staðfesti framangreint áður en kærunefnd tekur ákvörðun í máli hans. Að því búnu telji kærandi að öll skilyrði 58. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt og því beri að veita honum ótímabundið dvalarleyfi.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis frá 4. júní 2020, sbr. 6. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Frekari skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið ákvæðisins er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 7. október 2025, á kærandi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Samkvæmt framansögðu kemur e-liður 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga því ekki í veg fyrir að kæranda verði veitt ótímabundið dvalarleyfi. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki tekin afstaða til annarra skilyrða 58. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson