29 október 2025

/

Nr. 833/2025 Úrskurður

Hinn 29. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 833/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25080226

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. ágúst 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu ( hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og þriggja ára endurkomubann, sbr. b-lið 1. mgr. 98. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Ákvörðunin var tekin 17. júlí 2025 og birt kæranda 18. júlí 2025, þrátt fyrir að vera ranglega dagsett 19. desember 2024.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina.

Með tölvubréfi til kæranda, dags. 28. ágúst 2025, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan lögmælts kærufrests. Kærandi brást ekki við tölvubréfi kærunefndar.

II.            Niðurstaða

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda birt tilkynning um hugsanlega brottvísun, dags. 9. júlí 2025 og mátti hann vita að stofnunin myndi taka ákvörðun í málinu. Ákvörðunin var birt kæranda 18. júlí 2025.

Kærandi lagði ekki fram röksemdir eða skýringar á því hvers vegna kæra var lögð fram utan kærufrests. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert beina skuli kæru í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Gögn málsins bera ekki með sér að afsakanlegt sé að kæra hafi borist seint. Að framangreindu virtu verður kæran ekki tekin til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Farið hefur verið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Hvorki verður séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er kæru þessari vísað frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð:

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

The applicant‘s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

F. h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Þorsteinn Gunnarsson