30 október 2025

/

Mál nr. 474/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 474/2025

Fimmtudaginn 30. október 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða, Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. mars 2024 og var umsóknin samþykkt 16. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 26. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. október 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 9. október 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa misst af kynningarfundi 3. júní 2025. Honum hafi borist tilkynning 27. maí en í þeirri viku hafi hann þjáðst af alvarlegu mígreni og ekki tekið eftir skilaboðunum tímanlega. Kærandi hafi sögu um tíð mígreni sem hafi verið staðfest af bandarískum taugalækni. Kærandi skilji að bréf bandaríska læknisins hafi ekki verið tekið gilt. Hann hafi á fundi með þjónustufulltrúa Vinnumálastofnunar þann 7. júlí 2025 útskýrt veikindi sín og aðstæður og hafi staðfest að hann sé heilbrigður og virkur í atvinnuleit. Þrátt fyrir það hafi skýringum kæranda verið hafnað og hann beittur viðurlögum.

Kærandi tekur fram að þann 10. júlí 2025 hafi hann verið beðinn um að leggja fram vottorð frá íslenskum lækni sem staðfesti vinnufærni hans innan fjórtán daga. Hann hafi ekki fengið tíma hjá lækni fyrr en 7. ágúst og hafi því ekki getað lagt fram vottorð innan tímarammans. Síðar hafi kærandi  fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um að umsókn hans hefði verið hafnað. Þann 7. ágúst hafi íslenskur læknir staðfest veikindi kæranda og að hann hefði þjáðst af mígreni á tímabilinu 27. maí til 5. júní. Læknirinn hafi einnig staðfest að kærandi væri hraustur og vinnufær. Í ljósi framangreinds telji kærandi að hin kærða ákvörðun sé óréttlát.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar eru fyrri rök ítrekuð. Enn fremur óski kærandi eftir því að viðbótargögn verði tekin til skoðunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 4. mars 2024. Með erindi, dags. 16. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 27. maí 2025 hafi kærandi verið boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 3. júní 2025, klukkan 11:20. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Boðun þessi hafi verið send þann 27. maí 2025, klukkan 12:53 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. maí 2025, klukkan 12:54.

Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan kynningarfund né boðað forföll. Kærandi hafi skráð eigin veikindi („skammvinn veikindi“) sem skýringar á fjarveru sinni þann 5. júní 2025, eða eftir að viðtal hafði átt að fara fram.

Með erindi, dags. 5. júní 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru kæranda í boðað viðtal. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi verið vakin athygli á að hefði kærandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma á greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Þann 20. júní 2025 hafi kærandi skilað skýringum á fjarveru sinni en þar beri hann við veikindum og að hann hafi ekki orðið var við boðun frá stofnuninni.

Með erindi, dags. [23. júní] 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði hafnað vinnumarkaðsúrræði sem hann hafi verið boðaður til væri það niðurstaða stofnunarinnar að bótaréttur kæranda skyldi felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 24. hafi frekari gögn borist frá kæranda, eða bréf, dags. 23. júní, frá lækni í San Francisco þar sem fram hafi komið að kærandi hefði verið veikur dagana 5. og 6. júní 2025.

Mál kæranda hafi verið tekið til endurskoðunar og kæranda tilkynnt þann 10. júlí 2025 að ákvörðun stofnunarinnar frá 23. júní væri staðfest, enda hefðu gögn sem kærandi hafi sent inn ekki áhrif á niðurstöðu stofnunarinnar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætti í viðtal sem hann hafði verið boðaður til. Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni sem lúti að því að hann hafi ekki séð boðun sökum veikinda sinna. Meðal gagna í máli þessu sé bréf, dags. 23. júní 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veikur dagana 5. og 6. júní 2025. Það virðist ritað af lækni frá San Francisco í Bandaríkjum norður Ameríku. Í bréfinu komi fram að kærandi eigi það til að fá mígrenisköst og að það hafi komið upp á þeim tíma sem fundur hafi verið haldinn. Bréfið tiltaki þó ekki þá daga sem viðtalið hefði átt að fara fram.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki sinnt boðun Vinnumálastofnunar hafi honum með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2025, verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi án ástæðulausrar tafar. Þá segi í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar.

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín eða forföll fyrr en eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hans í boðað viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Í skýringum beri kærandi við að hann hafi verið svo veikur þegar boðun hafi borist að honum hafi yfirsést hún algerlega. Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi verið ófær um að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín eða boða forföll sökum alvarleika veikinda.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi framangreinds og þeirri ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri kæranda að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsir umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. maí 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 3. júní 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að í þeirri viku hafi hann þjáðst af alvarlegu mígreni og ekki tekið eftir skilaboðunum tímanlega.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir