30 október 2025

/

Mál nr. 496/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 496/2025

Fimmtudaginn 30. október 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða, Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. ágúst 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysibætur hjá Vinnumálastofnun 20. maí 2025 og var umsóknin samþykkt 27. júní 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 20. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. september 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 17. september 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi nýlega skráð sig á atvinnuleysisbætur en hafi fyrir það verið á vinnumarkaði nánast samfellt í 20 ár fyrir utan eitt slys og tvö fæðingarorlof. Kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þar sem hún hafi misst vinnuna og sé að gera sitt besta til að skilja hvernig eigi að vinna með vef Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi fyrst fengið bréf um mætingu á kynningarfund sem hún hafi ekki séð í tæka tíð. Að sögn kæranda sé hún engin síma eða tölvu manneskja og fái engar tilkynningar um að henni hafi borist bréf svo það sé algjörlega á hennar ábyrgð að fylgjast með þessu og hún sé að þjálfa sig í því.

Kærandi hafi fengið annað bréf þann 16. júlí um að hún væri á seinasta séns að mæta á kynningarfund og að það væri skyldumæting þann 18. júlí. Kærandi hafi séð skilaboðin seinnipartinn 17. júlí og hafi farið beint í það að reyna að fá pössun fyrir börnin sín sem hafi verið í sumarfríi. Hún hafi náð að fá pössun hjá nágranna sínum seint um kvöld þann 17. júlí en hafi gert þau klaufalegu og mannlegu mistök að gleyma að kveikja á áminningu um fundinn. Kærandi sé ein með börnin og ekkert bakland. Einnig sé hún ofvirk og því ekki alltaf með allt á hreinu. Að sögn kæranda hafi hún munað eftir fundinum þremur klukkustundum eftir að hann hafi klárast. Hún hafi um leið haft samband við Vinnumálastofnun og hafi skýrt frá því sem hafði gerst. Kærandi hafi einnig skilað inn skjali með ástæðum þess að hún hafi ekki mætt. Kærandi hafi ekki reynt að afsaka sig heldur sagt eins og væri, að hún hefði einfaldlega gleymt sér.

Kærandi hafi síðar fengið þær fréttir að það ætti að fella niður bætur í tvo mánuði vegna þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði, sem sé ekki rétt. Kærandi hafi haft samband að fyrra bragði og beðið um að fá að komast á næsta fund sem fyrst. Það sé kæranda óskiljanlegt hvers vegna það sé verið að refsa henni fyrir að hafa í fyrsta lagi ekki séð skilaboðin og í öðru lagi að hafa gleymt sér en látið strax vita. Að mati kæranda sé það einnig óraunhæft að gefa fólki einn og hálfan sólarhring í fyrirvara til að klára sín mál til að geta mætt. Kærandi sé viss um að hún hefði ekki gleymt að kveikja á áminningu ef hún hefði ekki þurft að útvega pössun í flýti.

Kærandi tekur fram að hún hafi verið mjög virk á vinnumarkaði í mörg ár og hafi ekki þurft nema einu sinni áður að nýta sér úrræði Vinnumálastofnunar. Kærandi telji það bersýnilegt að hún hafi unnið sér inn það öryggi að fá að nýta þá tryggingu nú þegar hún þurfi á henni að halda. Að mati kæranda sé það óréttlátt að neita henni um þá tryggingu sem hún hafi unnið sér inn árum saman einungis vegna þess að hún hafi ekki verið með fulla athygli í sumarfríi með börnum sínum.

Kærandi vilji árétta að hún hafi unnið sér inn sín réttindi, verið samviskusöm og heiðarleg í öllum sínum samskiptum. Hún geti ekki sætt sig við það að hún og börnin hennar eigi að lifa á loftinu vegna þess að hún hafi fengið send tvö smáskilaboð sem hún hafi ekki náð að fylgja eftir. Kærandi skilji ekki hvernig það sé réttlætanlegt að refsa henni fyrir þetta þegar hún hafi unnið sér inn sína launatryggingu og rúmlega það.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar 20. maí 2025. Með erindi, dags. 27. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 9. júlí 2025 hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund þann 11. júlí 2025. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Þá hafi einnig verið tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hún mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 9. júlí 2025, klukkan 13:35. Kærandi hafi ekki mætt á fund, hvorki boðað forföll né sett sig í samband við Vinnumálastofnun fyrir fund.

Þann 16. júlí 2025 hafi kærandi aftur verið boðuð á kynningarfund þann 18. júlí 2025, klukkan 09:15. Í boðun hafi skilmerkilega verið tekið fram að um síðustu boðun væri að ræða. Kærandi hafi jafnframt verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Þá hafi einnig verið tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hún mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 16. júlí 2025, klukkan 09:12.

Þann 18. júlí 2025, klukkan 16:41 hafi kærandi haft samband við þjónustuskrifstofu með tölvupósti. Þar komi fram að kærandi hafi gleymt að mæta á fundinn og vonist eftir boði á næsta fund. Með erindi, dags. 5. ágúst 2025, hafi kæranda verið gefinn kostur á að skila skriflegum skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 18. júlí 2025. Kærandi hafi skilað skýringum þann 22. júlí 2025. Skýringar kæranda hafi verið metnar og ákvörðun tekin þann 15. ágúst 2025 um að fella niður greiðslur henni til handa í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 18. júlí 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, í farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umræddan kynningarfund. Kærandi hafi fengið rúmlega tveggja sólarhringa fyrirvara til að bregðast við boðun Vinnumálastofnunar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dag. 5. ágúst 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund lúti einkum að því að hún hafi gleymt að mæta á fundinn.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á kynningarfund hafi verið send bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum á skráð símanúmer kæranda rúmlega 48 tímum fyrir áætlaðan fund. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að ef kærandi væri stödd út á landi skyldi hún mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framangreinds og þeirri ríku skyldu sem hvílir á atvinnuleitendum til þátttöku í  vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði og hafi ekki fært fram gildar skýringar í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri henni að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 9. júlí 2025 boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 11. júlí 2025. Þann 16. júlí 2025 var kærandi aftur boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 18. júlí 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð fyrri tilkynninguna í tæka tíð og síðar gleymt að mæta á boðaðan fund.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. ágúst 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir