30 október 2025
/
Mál nr. 526/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 526/2025
Fimmtudaginn 30. október 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 5. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur til hennar væru stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 27. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að henni hafi verið synjað um atvinnuleysisbætur á þeim grundvelli að hún hefði ekki mætt á boðaðan fund sem hafi verið tilkynnt um með smáskilaboðum. Kærandi hafi verið stödd út á landi þar sem ekkert netsamband sé og hafi því ekki séð póstinn fyrr en eftir á. Að sögn kæranda vilji Vinnumálastofnun meina að hún hafi nýtt allan rétt sinn til atvinnuleysisbóta, eða 25 mánuði. Það sé ekki rétt þar sem kærandi hafi byrjað á atvinnuleysisbótum í febrúar 2025. Hún hafi sent skýringarbréf sem Vinnumálastofnun hafi ekki tekið mark á.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. nóvember 2024. Með erindi, dags. 5. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi kærandi þegar nýtt 17,63 mánuði af 30 mánaða bótatímabili sem hafi byrjað 19. júní 2017.
Þann 26. júní 2025 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund þann 27. júní 2025, klukkan 09:00 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðun þessi hafi verið send þann 26. júní 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. júní 2025, klukkan 08:38. Kærandi hafi hvorki mætt né tilkynnt forföll.
Með erindi, dags. 9. júlí 2025, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðað námskeið. Kærandi hafi skilað skýringum þann 21. júlí 2025 þar sem fram komi að hún hafi verið stödd „austur á fjörðum“ og ekki séð tilkynningu þar sem ekkert netsamband hafi verið þar. Með erindi, dags. 21. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 58. gr. laganna þar sem hún hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði. Þar sem kærandi hefði nýtt meira en 24 mánuði af bótarétti sínum hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga verið stöðvaðar að fullu, sbr. 4. mgr. 58. gr. laganna.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hún hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnu-markaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Fyrir liggi að kærandi hafi verið boðuð á upplýsingafund 27. júní 2025 og að hún hafi hvorki mætt né boðað forföll þrátt fyrir að í erindi, dags. 26. júní 2025, hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldi tilkynna á uppgefið netfang Vinnumálastofnunar. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á fjarveru sinni snúi einkum að því að hún hafi verið stödd „austur á fjörðum“ og utan netsambands. Kærandi hafi í símtali þann 21. júlí 2025 verið innt sérstaklega eftir því hvort að símasamband væri þar sem hún hafi verið stödd þegar fundarboð hafi borist henni. Kærandi hafi svarað því játandi og það haldist í hendur við skráningu í samskiptasögu kæranda um að smáskilaboð vegna boðunarinnar hafi verið móttekin í símtæki kæranda að morgni 26. júní 2025.
Ljóst sé að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og því sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að uppfylla ekki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Við undirbúning að umsögn fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála hafi uppgötvast að kærandi hafði ekki nýtt 24 mánuði af bótatímabili sínu þegar atvik í máli þessu hafi átt sér stað í júní 2025 þó vissulega hafi kærandi þegið atvinnuleysistryggingar í rúmlega 24 mánuði af bótatímabili sínu þegar ákvörðun hafi verið tekin í júlí 2025. Í ljósi þess að ákvæði 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geri kröfu um að atvinnuleitandi hafi nýtt a.m.k. 24 mánuði þegar atvik eigi sér stað sem valdi viðurlagaákvörðun telji Vinnumálastofnun að rétt hefði verið að beita viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma í stað þess að stöðva greiðslur til kæranda.
Með vísan til framangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en að fella eigi úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar er lúti að stöðvun greiðslna til kæranda.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í kjölfar kærunnar kom í ljós að kærandi hafði ekki nýtt 24 mánuði af bótatímabili sínu og því hafði ekki verið rétt af Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur til hennar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. Þess í stað bæri kæranda að sæta tveggja mánaða viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála mun því taka mið af þeirri ákvörðun.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarp til laga nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 26. júní 2025 boðuð á upplýsingafund á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldinn þann 27. júní 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og í farsíma.
Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á upplýsingafundinn né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi verið stödd út á landi og ekki séð tilkynninguna þar sem ekkert netsamband væri þar.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi um þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að um skyldumætingu á boðaðan upplýsingafund væri að ræða. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir