30 október 2025
/
Mál nr. 6495/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 495/2025
Fimmtudaginn 30. október 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða, Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 15. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 12. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 20. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. september 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. september 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda þann 16. september 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi, dags. 17. september 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa fengið boð frá Vinnumálastofnun þann 25. júní 2025 um að mæta á upplýsingafundinn „Tækifæri í atvinnuleit“ daginn eftir þann 26. júní 2025. Kærandi hafi nokkrum sinnum áður setið slíkan fund sem hafi alltaf verið eins og aldrei hafi verið fjallað um nein ákveðin tækifæri, eingöngu að tækifærin væru hjá þjónustu líkt og „Alfreð“ og ráðningarskrifstofum. Engar nýjar upplýsingar hafi verið veittar kæranda en hann hafi samt alltaf mætt þar sem um skyldufundi hafi verið að ræða og hann hafi ekki haft neitt betra að gera. Eitt af því sem hafi komið fram á þessum fundum hafi verið skyldan til að mæta og að viðurlög gætu fylgt því að mæta ekki nema gildar ástæður lægju að baki fjarveru.
Kærandi hafi einnig verið upplýstur um möguleikann á styrkjum fyrir námskeið sem Vinnumálastofnun hafi sterklega mælt með til að auka atvinnumöguleika. Kærandi hafi tvisvar nýtt sér slíka styrki og í kjölfarið hafi hann ákveðið að sækja sænskunámskeið yfir sumartímann, sem hafi verið haldið á tímabilinu 15. júní til 4. júlí 2025. Námskeiðið hafi verið afar krefjandi og farið fram alla virka daga frá klukkan 08:30 til 16:15, alls 96 klukkustundir á þremur vikum. Þar sem kærandi hafi þegar fengið tvo styrki hafi hann ekki sótt um styrk fyrir sænskunámskeiðið heldur greitt það sjálfur. Að sögn kæranda hafi hann ekki verið upplýstur um að hann þyrfti að sækja um leyfi fyrir því að fara á námskeið á eigin kostnað né að það væri óheimilt að sækja slík námskeið yfir sumartímann.
Um leið og kærandi hafi fengið boð á fundinn 26. júní hafi hann haft samband við Vinnumálastofnunar og tilkynnt að hann myndi ekki komast á fundinn vegna námskeiðs. Kærandi hafi strax fengið staðfestingu um að skilaboðin hefðu borist og að það yrði haft samband við hann ef þörf væri á frekari upplýsingum. Kærandi hafi dregið þá ályktun að málið væri leyst. Þann 22. júlí 2025 hafi hann hins vegar fengið tveggja mánaða viðurlög.
Kærandi greinir frá því að hann hafi verið atvinnulaus í um átján mánuði og takist ekki einu sinni að fá atvinnuviðtöl. Að hans mati hafi hann ekki heldur fengið neina aðstoð frá Vinnumálastofnun. Kærandi sé að gera sitt besta í að endurmennta sig til að auka hæfni sína og það sé mjög hart að fá skertar bætur fyrir vikið.
Í athugasemdum vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar tekur kærandi meðal annars fram að hann geri ekki athugasemdir við það að fundarboðið hafi verið sent með lögmætum hætti né að Vinnumálastofnun hafi lagalegan rétt til að krefja atvinnuleitendur um þátttöku í skyldufundum og beita viðurlögum við ólögmætri fjarveru. Hins vegar telji kærandi að deiluefnið í málinu snúist ekki um formlegar skyldur hans heldur um það hvort hann hafi haft góða ástæðu til að mæta ekki. Að mati kæranda hafi Vinnumálastofnunar ekki svarað því með fullnægjandi hætti. Kærandi hafi vonast eftir betri útskýringum eða rökum fyrir því að hafa ekki mætt á fundinn.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 12. febrúar 2024. Með erindi, dags. 12. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 25. júní 2025 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund þann 26. júní 2025, klukkan 11:00. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Þá hafi einnig verið tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 25. júní 2025, klukkan 10:34. Kærandi hafi svarað boðun með tölvupósti þann 25. júní 2025, klukkan 11:42 og kvaðst ekki geta komist á fundinn daginn eftir; „Ég er á fulldagsnámskeiði í sænsku fram til 4. July hluti af endurmenntun minni til að bæta líkur á að finna vinnu.“
Með erindi, dags. 9. júlí 2025, hafi kæranda verið gefinn kostur á að skila frekari skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 26. júní 2025. Kærandi hafi skilað skýringum þann 9. júlí 2025.
Þann 22. júlí 2025 hafi kæranda verið send ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur honum til handa í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi á ákvörðun Vinnumálastofnunar með erindi, dags. 22. júlí og honum hafi verið veittur rökstuðningur þann 7. ágúst 2025.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 26. júní 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umræddan upplýsingafund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 9. júlí 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund lúti að því að hann hafi verið á tungumálanámskeiði á sama tíma sem hann hafi greitt úr eigin vasa og hafi verið hugsað til að auðvelda honum starfsleit erlendis. Að sögn kæranda hafi hann setið þetta námskeið alla virka daga frá 8:30 árdegis til 16:15 síðdegis. Kærandi telji að Vinnumálastofnun hafi með ákvörðun sinni véfengt að hann hafi verið á umræddu námskeið og hafi svipt hann bótum í tvo mánuði þess vegna.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Þátttaka atvinnuleitanda í einstaka námskeiðum undanskilji viðkomandi ekki því að taka þátt í skylduúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar. Þar að auki sé ljóst að kærandi hafi að eigin sögn verið á námskeiði alla virka daga á dagvinnutíma um þriggja vikna skeið. Kærandi sé því vart virkur í atvinnuleit á þeim sama tíma. Engar tilkynningar hafi borist frá kæranda um ætlaða setu á tungumálanámskeiði í þrjár vikur, áður en það hafi byrjað.
Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi framangreinds og þeirri ríku skyldu sem hvílir á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði og hafi ekki fært fram gildar skýringar í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri honum að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 25. júní 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 26. júní 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.
Fyrir liggur að kærandi boðaði forföll samdægurs og kvaðst vera á námskeiði til 4. júlí. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki verið upplýstur um að hann þyrfti að sækja um leyfi fyrir því að fara á námskeið á eigin kostnað né að það væri óheimilt að sækja slík námskeið yfir sumartímann.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Úrskurðarnefndin tekur undir með Vinnumálastofnun að þátttaka atvinnuleitanda í einstaka námskeiðum undanskilji viðkomandi ekki því að taka þátt í skylduúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir