30 október 2025

/

Mál nr.519/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 519/2025

Fimmtudaginn 30. október 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. ágúst 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 21. maí 2024 og var umsóknin samþykkt 6. júní 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 242.238 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 27. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa lagt inn umsókn um atvinnuleysisbætur þann 28. júní 2024 þar sem fjárhagsstaða hans á þeim tíma hafi verið mjög erfið. Húsaleiga kæranda hafi verið hærri en atvinnuleysisbætur og kærandi hafi þurft að standa straum af daglegum útgjöldum vegna barns síns og heimilisins. Umsóknin hafi verið gerð í þeim tilgangi að fá fjárhagslegan stuðning á meðan hann væri í leit að föstu starfi. Kærandi hafi greitt reikninga og húsaleigu með því að nota uppsafnað orlof og skattendurgreiðslu sem hann hafi fengið í hendur á meðan hann hafi beðið eftir afgreiðslu umsóknarinnar.

Kærandi hafi búist við því að greiðslur myndu hefjast í júlí sem hafi raungerst en fyrsta greiðslan hafi borist 30. júlí 2024. Á meðan hafi kærandi tekið að sér tímabundin störf hjá þremur fyrirtækjum vegna fjárhagslegrar nauðsynjar. Frá og með 15. júlí 2024 hafi kærandi svo verið fastráðinn hjá einu þeirra.

Kærandi leggur áherslu á að umsókn um atvinnuleysisbætur hafi verið lögð fram áður en þessi störf hefðu byrjað. Hann telji það sem hafi gerst í kjölfarið sé afleiðing af tvenns konar mistökum, annars vegar hvernig tekjur og vinnudagar hefðu verið skráðir í kerfinu og hins vegar að kærandi hafi ekki tilkynnt strax um störfin. Að sögn kærandi hafi þessi mistök verið byggð á sakleysi, vanþekkingu og fjárhagslegri neyð en ekki ásetningi eða tilraun til blekkingar.

Kærandi hafi búið á Íslandi í tæp fjögur ár með fjölskyldu sinni og sé í umsóknarferli sem snúi að framtíð þeirra hér. Kæranda sé því mikilvægt að sýna fram á vilja til að leysa málið á heiðarlegan hátt. Hann sé reiðubúinn til að endurgreiða þá fjárhæð sem mögulega kunni að hafa verið ofgreidd, jafnvel í einu lagi til að forðast langvarandi skuldastöðu sem gæti haft áhrif á fjölskylduna hans.

Kærandi biður um að litið verði til aðstæðna hans og þess að um hafi verið að ræða mistök vegna sakleysis, vanþekkingar og kerfisvillu en ekki tilraun til að nýta kerfið. Hann óski eftir sanngjarni niðurstöðu og tækifæri til að leysa málið á réttan og skjótan hátt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 21. maí 2024. Með erindi 6. júní 2024 hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 60%. Kærandi hafi á tímabilinu 22. maí til 31. júlí 2024 þegið greiðslur en þann 4. september 2024 hafi umsókn kæranda verið afskráð þar sem engin staðfesting um atvinnuleit hafi borist vegna ágústmánaðar 2024.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í ágúst 2025 hafi komið í ljós að kærandi hafði verið með ótilkynntar launagreiðslur í maí og júlí 2024. Með erindi, dags. 15. ágúst 2025, hafi honum verið gefinn kostur á að veita Vinnumálastofnun skýringar vegna umræddra launagreiðslna, auk afrits af launaseðlum.

Skýringar kæranda hafi borist 18. ágúst 2025, auk hluta umbeðinna launaseðla. Að sögn kæranda hafi hann sagt upp störfum og skráð sig atvinnulausan í maí 2024 þar sem vinnan hans hafi dregist mikið saman. Þá hafi kærandi tekið að sér vinnu í júlí 2024 hjá fyrirtækjunum B, C og D. Um hafi verið að ræða tímabundna vinnu og prufutíma hjá tveimur fyrrnefndu en hjá síðastnefnda hafi kærandi starfað í tvær vikur í lok júlí.

Með erindi, dags. 21. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu væri greiðslum frestað í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Þá hafi kæranda verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem launagreiðslur hefðu varðað. Samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar í máli kæranda hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals að fjárhæð 210.642 kr. sem yrðu innheimtar auk álags, því næmi heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar, 242.238 kr. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. ágúst 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið og að honum beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hann hafi fengið greiddar á árinu 2024.

Mál þetta varði í fyrsta lagi almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafli laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamann sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreining á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá teljist í virkri atvinnuleit sem sé meðal annars að hafa frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við. Þá sé tilgreint í 2. mgr. 14. gr. að það beri að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafa.

Af fyrirliggjandi gögnun málsins sé ljóst að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tilfallandi störf eða tekjur á árinu 2024. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hefði starfað hjá þremur mismunandi fyrirtækjum í júlí 2024. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hann hafi aflað sér.

Með umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, dags. 21. maí 2024, hafi komið fram að kærandi hefði verið í tímabundinni ráðningu. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt með það fyrir augum og honum hafi verið greiddar óskertar atvinnuleysisbætur frá 22. maí 2024 eða frá þeim degi sem kærandi kvaðst geta hafið störf.

Í júlí 2024 hafi samanlagðar tekjur kæranda numið 638.649 kr. samkvæmt skattinum eða 52.701 kr. frá B, 266.117 kr. frá C og 319.831 kr. frá D.

Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Jafnframt skuli hann endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæranda beri að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki upplýst um tilfallandi vinnu og tekjur í júlí 2024.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi.

Kærandi hafi í júlí 2024 verið að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta og hafi, eðli málsins samkvæmt, fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna óuppgefna tekna. Því hafi myndast skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 242.238 kr., að meðtöldu álagi skv. 2. mgr. 39. gr. Kæranda beri að endurgreiða þá upphæð.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að máli kæranda og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í júlí 2024 frá þremur fyrirtækjum samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar.

Þann 21. maí 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreind störf sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 242.238 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar fyrir júlí 2024 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. ágúst 2025, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. ágúst 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir