05 nóvember 2025

/

Mál nr. 24/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 25. ágúst 2025
í máli nr. 24/2025:
Norda ehf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
fjármála- og efnahagsráðuneytinu,
Hugsmiðjunni ehf.,
Deloitte ehf.,
Aranja ehf.,
Revera ehf.,
Júní Digital ehf.,
Origo ehf.,
Advania Ísland ehf.,
Gangverk ehf.
APRÓ ehf.,
1xINTERNET ehf.,
Itera ehf. og
14islands ehf.

Lykilorð
Afstaða til stöðvunarkröfu.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála tók ekki afstöðu til stöðvunarkröfu kæranda þar sem hafnað hafði verið kröfum um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboðinu með ákvörðunum nefndarinnar í málum nr. 20/2025 og 21/2025.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. júní 2025 kærði Norda ehf. (hér eftir „kærandi“) rammasamningsútboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23151 auðkennt „Multidisciplinary teams for enhancement of digital services“.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvarðanir varnaraðila um höfnun tilboða kæranda og val á tilboðum í 1. og 2. hluta hins kærða útboðs. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála felli hið kærða útboð úr gildi og leggi fyrir varnaraðila að bjóða innkaupin út að nýju. Jafnframt krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Loks krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð í báðum hlutum útboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Advania Ísland ehf. sendi tölvupóst til nefndarinnar 12. júní 2025 og tilkynnti að félagið myndi ekki láta málið til sín taka að svo stöddu en áskildi sér rétt til að koma að athugasemdum á síðari stigum. Athugasemdir bárust frá Origo ehf. 18. júní 2025. Athugasemdir bárust 19. júní 2025 frá varnaraðilum, Hugsmiðjunni ehf., Gangverki ehf., Júní Digital ehf., Aranja ehf., Revera ehf., Deloitte ehf., Itera ehf. og 14islands ehf.

APRÓ ehf. og 1xINTERNET ehf. hafa ekki látið málið til sín taka.

Varnaraðilar krefjast þess að kærunefnd útboðsmála aflétti sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Þá krefjast varnaraðilar þess aðallega að kærunefndin vísi frá þeim málatilbúnaði kæranda sem barst utan kærufrests við móttöku kærunnar og hafni öðrum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði. Til vara krefjast varnaraðilar þess að kærunefnd ógildi eða felli einungis niður þær ákvarðanir eða skilmála sem hún telur ólögmæta en ógildi ekki útboðið í heild sinni. Þeir hagsmunaaðilar sem lögðu fram athugasemdir í málinu krefjast þess að kröfum kæranda verði hafnað.

Með erindi 20. júní 2025 til varnaraðila óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðilar afhentu nefndinni afrit af tilboðsgögnum hagsmunaaðila og önnur gögn sem kynnu að skipta máli við úrlausn málsins, svo sem matsblöð einstakra matsnefndarmanna og önnur gögn sem vörðuðu yfirferð á tilboðum. Varnaraðilar afhentu umbeðin gögn 25. sama mánaðar.

Með erindi 3. júlí 2025 til varnaraðila óskaði kærunefnd útboðmála eftir að varnaraðilar afhentu nefndinni afrit af tilboðsgögnum Revera ehf. Kærunefnd útboðsmála sendi tvö erindi til varnaraðila degi síðar. Með fyrsta erindinu óskaði nefndin meðal annars eftir að varnaraðilar myndu afhenda nefndinni aftur hluta þeirra gagna sem varnaraðila höfðu afhent 25. júní 2025 með betra skipulagi á framsetningu gagnanna. Með öðru erindinu benti kærunefnd útboðsmála á að í tilteknu afhentu skjali kæmu fram ítarlegar upplýsingar um mat á tilboðum bjóðenda, meðal annars varðandi lágmarkskröfur útboðsins. Óskaði nefndin eftir upplýsingum hvort sambærileg yfirferð hefði átt sér stað í tengslum við mat á þekkingu og reynslu bjóðenda og, ef svo væri, hvar skjal með þeirri yfirferð væri að finna í framlögðum gögnum.

Varnaraðili svaraði erindum nefndarinnar með nokkrum tölvupóstum á tímabilinu 7. til 11. júlí 2025 og afhenti umbeðin gögn.

Áður en kæra þessa máls barst kærunefnd útboðsmála höfðu tvær kærur, dags. 30. maí og 1. júní 2025, borist til nefndarinnar vegna sama útboðs en þau mál eru rekin fyrir nefndinni undir málsnúmerunum 20/2025 og 21/2025. Umræddar kærur bárust á biðtíma samningsgerðar og höfðu í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar eftir 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Niðurstaða

Kæra málsins hafði ekki í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar eftir 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Hið kærða útboð skiptist í tvo hluta og krefst kærandi þess að samningsgerð í báðum hlutum verði stöðvuð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr um kæru, sbr. 1. mgr. 110. gr. laganna.

Í ákvörðunum kærunefndar útboðsmála í málum nr. 20/2025 og 21/2025, sem teknar voru fyrr í dag og varða sama útboð, var það niðurstaða nefndarinnar að hafna kröfum varnar- og hagsmunaaðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í báðum hlutum útboðsins. Að þessu gættu og þar sem útboðið er í heild sinni nú þegar í stöðvun hefur kærandi enga lögvarða hagsmuni af úrlausn um kröfu sína um stöðvun. Á meðan svo stendur á er ástæðulaust að taka afstöðu til stöðvunarkröfu kæranda.

Ákvörðunarorð:

Ekki er tekin afstaða til kröfu kæranda, Norda ehf., um að samningsgerð í rammasamningsútboði varnaraðila, Fjársýslu ríkisins fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, nr. 23151 auðkennt „Multidisciplinary teams for enhancement of digital services“, verði stöðvuð um stundarsakir.


Reykjavík, 25. ágúst 2025.


Reimar Pétursson

Sigurður Snædal Júlíusson

Auður Finnbogadóttir