05 nóvember 2025

/

Mál nr. 26/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 22. ágúst 2025
í máli nr. 26/2025:
Embla Medical hf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
Fastus ehf.,
Stoð ehf.,
Stoðtækni ehf. og
Stuðlaberg ehf.

Lykilorð
Aðgangur að gögnum.

Útdráttur
Með kæru EM til kærunefndar útboðsmála fylgdu tiltekin fylgiskjöl, þar á meðal tilboðsgögn félagsins auk fylgiskjala, og krafðist EM að trúnaður skyldi hvíla yfir þeim skjölum. S krafðist þess að fá aðgang að þessum skjölum. EM féllst á að aflétta trúnaði yfir hluta skjalanna en ekki öðrum. Kærunefnd útboðsmála benti á að efni þessara skjala væru að einhverju leyti tekin upp í greinargerð varnaraðila, F, í málinu, en að öðru leyti væri um að ræða upplýsingar um verð og tæknilega eiginleika vara EM sem gætu verið viðkvæmar gagnvart samkeppnisaðilum. Var því fallist á með EM að trúnaður skyldi hvíla yfir þeim gögnum sem ágreiningur væri um.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. júní 2025 kærði Embla Medical hf., áður Össur hf. (hér eftir „kærandi“), þá ákvörðun Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) að hafna tilboði félagsins í nánar tilgreinda vöruflokka í rammasamningsútboði nr. 23161 auðkennt „Splints for Public Health Department“.

Með kæru málsins fylgdu nokkur fjöldi fylgiskjala, þar á meðal tilboð kæranda ásamt fylgigögnum og beiðni kæranda til varnaraðila um rökstuðning fyrir ákvörðun sinni. Í kærunni var ekki tiltekið að trúnaður skuli hvíla yfir fylgigögnum kærunnar en kærunefnd útboðsmála óskaði eftir því við kæranda að upplýsa sem fyrst um hvort trúnaður skyldi hvíla yfir fylgigögnum. Kærandi upplýsti hinn 14. júní að trúnaður skyldi hvíla yfir fylgiskjali 2, auðkennt „Tilboð kæranda“, og fylgiskjali 5, auðkennt „Beiðni um rökstuðning, dags. 13. júní 2025“.

Kærunefnd útboðsmála tilkynnti varnaraðila og hagsmunaaðilum, sem taldir eru upp hér að framan, um framkomna kæru hinn 13. júní 2025 og veitti þeim frest til þess að leggja fram athugasemdir í málinu. Hinn 18. júní 2025 sendi Stuðlaberg ehf. tölvupóst til kærunefndar útboðsmála og upplýsti að til þess að félagið gæti komið með athugasemdir í málinu þyrfti félagið að hafa aðgang að öllum gögnum, þar á meðal fylgigögnum kærunnar.

Vegna beiðni Stuðlabergs ehf. um aðgang að trúnaðargögnum með kærunni sendi kærunefnd útboðsmála beiðni til kæranda 19. júní 2025 og óskaði eftir því að hann færði frekari rökstuðning fyrir því af hverju trúnaður skyldi hvíla yfir umræddum skjölum. Kærandi svaraði beiðni kærunefndarinnar 25. júní 2025.

Kærandi bendir á að flest þeirra fylgigagna sem Stuðlaberg ehf. krefst aðgangs að séu ekki opinberar upplýsingar á þeim markaði sem sé undir í málinu. Enginn samkeppnisaðili hafi aðgang að þessum upplýsingum og telji kærandi að með tilliti til samkeppnissjónarmiða sé mikilvægt að sú framkvæmd haldist. Markaðurinn sem um ræði sé enda afar lítill og beri í þessu tilliti að horfa til þess að um einhliða upplýsingagjöf kæranda væri að ræða sem samkeppnisaðilar gætu nýtt sér til hagsbóta, s.s. til verðmyndunar, í sínum eigin rekstri. Kærandi hafi aftur á móti engan aðgang að sömu upplýsingum frá sínum samkeppnisaðilum. Þá bendir kærandi á að málið sem um ræði snúi ekki að neinu leyti að upplýsingum úr þeim fylgiskjölum með kærunni sem hafi verið hafnað að veita aðgang að. Upplýsingar um verð og þjónustu kæranda hafi ekkert með úrlausn málsins að gera eða getu samkeppnisaðila að gæta hagsmuna sína í málinu. Slík upplýsingagjöf væri eingöngu til þess fallin að skerða samkeppnishæfni kæranda á viðkomandi markaði. Þá liggi fyrir að þær upplýsingar sem óskað sé aðgangs að hafi ekki verið gerðar opinberar í fyrri útboðsferlum og geri kærandi kröfu um að trúnaður haldist áfram. Kærandi geti hins vegar fallist á að veita aðgang að tilteknum gögnum í fylgiskjali 2 að öllu leyti, auk þess sem hann geti fallist á að veita aðgang að tilteknu gagni í fylgiskjali 2 að hluta.

Niðurstaða

Þau gögn sem Stuðlaberg ehf. gerir kröfu um að fá aðgang að voru afhent kærunefnd útboðsmála með kæru kæranda í málinu 13. júní 2025 og var þess óskað að um þau ríkti trúnaður, eins og heimilt er samkvæmt 2. mgr. 9. gr. starfsreglna kærunefndar útboðsmála. Teljast gögn þessi til málsgagna í því stjórnsýslumáli sem rekið er fyrir kærunefnd á milli málsaðila, en um meðferð kærumála fyrir nefndinni gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Hefur óheftur aðgangur að gögnum máls verið talinn nauðsynlegur til að tryggja að réttur aðila til að koma að skýringum og leiðrétta fyrirliggjandi gögn nýtist að fullu. Gerðar eru undantekningar frá þessari grunnreglu í 16. og 17. gr. laganna, en að mati nefndarinnar er ljóst að einungis 17. gr. laganna getur komið til álita um þau gögn sem Stuðlaberg ehf. krefst aðgangs að. Samkvæmt þeirri grein er stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Við mat á þessum skilyrðum ákvæðisins verður meðal annars að horfa til þess að ákvæði 17. gr. laganna er undantekning frá þeirri meginreglu að málsaðili eigi rétt á því að kynna sér málsgögn auk þess sem líta ber til þeirra hagsmuna sem reglum um opinber innkaup er ætlað að þjóna, þ. á m. hvort afhending upplýsinga getur raskað jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup.

Þau gögn sem Stuðlaberg ehf. krefst aðgangs að fylgdu með kæru málsins og eru annars vegar fylgiskjal 2, sem auðkennt er „Tilboð kæranda“ ásamt fylgigögnum þess, og hins vegar fylgiskjal 5, sem auðkennt er „Beiðni um rökstuðning, dags. 13. júní 2025“. Líkt og greinir hér að framan hefur kærandi fallist á að aflétta trúnaði yfir tilteknum gögnum undir fylgiskjali 2 og er því ekki ágreiningur um það milli aðila. Jafnframt hefur kærandi fallist á að hluti skjals „Viðauki 12“ verði afhent. Verður Stuðlabergi ehf. því veittur aðgangur að þeim skjölum svo sem fram kemur í ákvörðunarorði.

Eftir stendur því krafa um aðgang að öðrum gögnum sem kærandi krafðist trúnaðar yfir. Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér umrædd gögn. Fyrir liggur að umrædd gögn eru hluti af tilboði kæranda, auk beiðni kæranda um rökstuðning og endurskoðun fyrir ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboðum kæranda í tiltekna flokka hins kærða rammasamningsútboðs. Að einhverju leyti er efni þessara skjala tekið upp í greinargerð varnaraðila en að öðru leyti er um að ræða upplýsingar sem varða verð og tæknilega eiginleika vara kæranda og sem eru og geta verið viðkvæmar gagnvart samkeppnisaðilum. Þýðing þessara upplýsinga fyrir sakarefni málsins eru að auki engin eða óljós og af hálfu Stuðlabergs ehf. hafa röksemdir fyrir kröfunni verið almenns eðlis. Af þessum sökum þykir verða að fallast á með kæranda að trúnaður skuli ríkja um þau gögn sem hér um ræðir og kröfu um afhendingu þeirra er því hafnað, sbr. 17. gr. stjórnsýslulaga.

Samkvæmt framansögðu verður fallist á að aflétta trúnaði yfir tilteknum skjölum sem ekki ríkir ágreiningur um, að hluta eða í heild, en ekki af öðrum skjölum, eins og fram kemur í ákvörðunarorði.

Ákvörðunarorð

Stuðlabergi ehf. er veittur aðgangur að eftirfarandi fylgiskjölum með kæru kæranda, Emblu Medical ehf., frá 13. júní 2025:

1. Fylgiskjal 2
1.1. 1.2.7 a - Sala innan EES
1.2. 1.5.19 - Ábyrgð og tryggingar
1.3. Viðauki 1 – umfang kröfur og skilgreiningar
1.4. Viðauki 6 – upplýsingar um bjóðendur
1.5. Viðauki 7 – Aðgengi og þjónusta
1.6. Viðauki 8 - Listi yfir boðna vöruflokka
1.7. Upplýsingar um gæðastefnu

Stuðlabergi ehf. er veittur aðgangur að fylgiskjali auðkenndu „Viðauki 12 – Menntun og hæfi“, en þó þannig að afmáðir eru dálkarnir „Menntun (skóli/gráða)“ og „Starfsreynsla“ vegna viðkomandi starfsmanna.


Reykjavík, 22. ágúst 2025


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir