06 nóvember 2025

/

Mál nr. 492/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Beiðni um endurupptöku máls nr. 492/2025

Fimmtudaginn 6. nóvember 2025

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með erindi, dags. 14. október 2025, óskaði B, f.h. A, eftir endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 492/2025 þar sem staðfest var ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2024. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 10. júní 2025, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2024 þar sem fram kom að hún hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 741.576 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 14. ágúst 2025 vegna framangreindrar ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Að lokinni gagnaöflun úrskurðaði nefndin í málinu þann 9. október 2025. Með úrskurðinum staðfesti úrskurðarnefnd velferðarmála ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurupptaki málið og endurmeti í kjölfar nýrra upplýsinga sem hafi veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Málið lúti að ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um 800.000 kr. skuld vegna meintrar ofgreiðslu húsnæðisbóta. Forsendur þeirrar ákvörðunar byggi á skattframtali fyrrverandi sambýlismanns kæranda fyrir árið 2024 þar sem tilgreindur hafi verið söluhagnaður sem hafi raunverulega átt uppruna sinn til sölu fasteignar árið 2022. Fyrrverandi sambýlismaður kæranda hafi nú sent formlega beiðni til Skattsins um leiðréttingu á framtalinu þar sem hann hafi óskað eftir að frestun söluhagnaðar yrði felld niður og hagnaðurinn færður til tekna á rétt ár, árið 2022, í samræmi við 26. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003. Allar lagalegar forsendur séu fyrir slíkri leiðréttingu. Samkvæmt 26. gr. tekjuskattslaga skuli söluhagnaður færast til tekna á því ári sem salan eigi sér stað, nema frestun sé virk og skilyrði hennar uppfyllt. Þar sem fyrrverandi sambýlismaður kæranda hafi ekki keypt nýja eign innan frestsins beri samkvæmt lögum að færa hagnaðinn aftur til ársins 2022. Skatturinn hafi staðfest móttöku beiðninnar og allt bendi til þess að framtalið verði leiðrétt í samræmi við lögin. Þegar leiðréttingin hafi farið fram muni skattframtalið fyrir árið 2024 ekki lengur sýna umræddan söluhagnað og þar með falla forsendur ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um tekjur það ár brott.

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 beri stjórnvaldi að endurupptaka mál þegar fram komi nýjar upplýsingar eða breyttar forsendur sem geti haft veruleg áhrif á niðurstöðu máls. Að auki segi í 7. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur að ákvarðanir stofnunarinnar skuli byggjast á réttum og staðfestum tekjugögnum úr skattframtölum og beri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að taka tillit til leiðréttinga þeirra þegar þær komi fram. Kærandi telji því að lagaskilyrði séu uppfyllt til að úrskurðarnefndin felli niður eða breyti fyrri ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um ofgreiddar húsaleigubætur, enda hafi hún verið byggð á rangri og tímabundinni skattalegri skráningu sem nú sé til leiðréttingar. Staðfestingu frá Skattinum verði framvísað um leið og endanleg leiðrétting liggi fyrir.

III.  Niðurstaða

Óskað er eftir endurupptöku á úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 9. október 2025. Með úrskurðinum var staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2024, að fjárhæð 741.576 kr.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Aðili máls getur einnig átt rétt á endurupptöku máls á grundvelli annarra ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á röngum lagagrundvelli og/eða rangri túlkun lagaákvæða.

Beiðni um endurupptöku er byggð á því að send hafi verið inn til Skattsins formleg beiðni um leiðréttingu á skattframtali ársins 2024. Allt bendi til þess að framtalið verði leiðrétt og þegar sú leiðréttingin hafi farið fram muni skattframtalið fyrir árið 2024 ekki lengur sýna söluhagnaðinn sem hafi valdið ofgreiðslu húsnæðisbóta það ár.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið úrskurð nefndarinnar með tilliti til framangreindra athugasemda. Að mati úrskurðarnendar velferðarmála verður ekki ráðið að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993, enda hefur álagningu ennþá ekki verið breytt. Þá verður ekki séð að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar.

Með hliðsjón af framangreindu er beiðni kæranda um endurupptöku máls úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 492/2025 synjað. Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur snúið sér til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og óskað eftir endurupptöku ákvörðunar, dags. 10. júní 2025, um lokauppgjör vegna ársins 2024 þegar leiðrétting skattframtalsins liggur fyrir, verði gerð breyting á því varðandi framangreindan söluhagnað. 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Beiðni A, um endurupptöku máls nr. 492/2025 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, er synjað.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir