07 nóvember 2025

/

1315/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

Hinn 7. nóvember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1315/2025 í máli ÚNU 25100021.
 

Kæra og málsatvik

Þann 24. október 2025 sendi félagið Vinnuverndarnámskeið ehf. erindi til úrskurðarnefndar um upp­lýs­ingamál þar sem farið var fram á aðstoð nefndarinnar við að fá svar frá Vinnu­eftirlitinu við erindi félagsins. Liðnir væru fleiri en 30 virkir dagar frá því erindið var sent.
 
Með hliðsjón af 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga ber úrskurðarnefndinni að taka erindi félagsins Vinnuverndarnámskeið ehf. fyrir sem stjórnsýslukæru.
 
Samkvæmt erindi kæranda til úrskurðarnefndarinnar eru atvik málsins þau að 23. júní 2025 sendi félagið Vinnueftirlitinu fyrirspurn. Í henni kemur fram að félagið haldi námskeið um vinnuvélar og tilkynni Vinnueftirlitinu rafrænt þegar nemendur hafa lokið námskeiðinu. Öðru hverju gerist það að einstakir nemendur eru ekki skráðir í kerfi Vinnueftirlitsins þrátt fyrir að kærandi hafi skráð þá. Í erindinu óskar kærandi eftir því að Vinnueftirlitið breyti verklagi sínu þannig að stað­festing berist fyrir hvern nemanda eftir að hann hefur verið skráður. Vinnueftirlitið svaraði erindinu þann 2. september 2025 og kvaðst hafa tekið málið til skoðunar. Kærandi svaraði erindinu sam­dægurs og spurði hvenær mætti reikna með því að þeirri skoðun lyki. Kæra málsins lýtur að því að Vinnu­eftirlitið hafi ekki svarað þessu erindi kæranda.
 

Niðurstaða

Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til að­gangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrir­liggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildissvið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem bein­línis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni, og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
 
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um aðgang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erindum, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leiðbeiningar­reglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauðsynlega aðstoð og leið­bein­ing­ar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðar­nefnd­ar um upplýsingamál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi, sbr. 3. mgr. 17. gr. upp­lýsingalaga, sbr. og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, eða ágreining um það hvort erindinu hafi verið svarað með fullnægjandi hætti, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga, enda byggja framan­greindar kæru­heimildir á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til Vinnueftirlitsins og telur erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur ósk um að stofnunin geri breyt­ing­ar á tilteknu verklagi. Af þeim sökum verður kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.
 

Úrskurðarorð

Kæru Vinnuverndarnámskeiða ehf., dags. 24. október 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upp­lýs­ingamál.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir