13 nóvember 2025

/

Nr. 831/2025 Úrskurður

Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 831/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25080004

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 1. ágúst 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 19. júlí 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 19. júlí 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsett sama dag, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að tilgangi dvalar.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 19. júlí 2025, hafi lögregla haft afskipti af kæranda við landamæravörslu. Kærandi hafi verið óljós í svörum og því boðið til viðtals í aðstöðu lögreglu. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kæranda hafi verið flett upp í kerfum lögreglu sem hafi leitt í ljós að kæranda hefði verið frávísað tveimur dögum fyrr og fylgt í flug degi áður. Aðspurður hafi kærandi greint lögreglu frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður og hafi ætlað að dvelja í sex nætur, til 25. júlí 2025, og ætti bókaðan farmiða úr landi. Hann myndi gista á tilteknu gistiheimili í eina nótt og færa sig síðan á annað gistiheimili og dveldi þar í fimm nætur. Lögregla hafi fengið fyrri gistibókun kæranda staðfesta en ekki hafi verið unnt að staðfesta seinni bókunina þar sem þjónustuaðilinn hafi ekki getað skráð sig inn á bókunarsvæði sem rekið er af þriðja aðila.

Aðspurður um tilgang dvalar kvaðst kærandi eiga bókanir í Bláa Lónið, FlyOver Iceland og í rútuferð um Gullna hringinn. Lögregla hafi fengið bókanir kæranda staðfestar. Samkvæmt skýrslunni megi ráða að kærandi myndi einnig skoða heitavatnssvæði og Reykjavíkurborg. Aðspurður um hvernig hann myndi heimsækja staðina kvaðst kærandi hafa bókað bílaleigubifreið. Hafi kærandi dregið þann framburð til baka þegar lögregla hafi beðið hann að framvísa bókuninni. Kærandi hafi sýnt fram á næga fjármuni til framfærslu og kvaðst reka fyrirtæki í Bretlandi. Við nánari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að fyrirtækinu hefði verið slitið árið 2023. Fram kemur að lögregla hafi borið landakort undir kæranda og beðið hann að benda á Keflavíkurflugvöll og Reykjavík en hafi kærandi ekki getað það. Hann hafi raunar ekki getað bent á neinn stað á landakorti sem hann vildi heimsækja. Aðspurður um fararmáta frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur hafi kærandi ætlað sér að fara með leigubifreið. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa kannað vegalengdina fyrirfram. Aðspurður þekkti kærandi engan sem byggi á Íslandi. Hann ætti þó vin sem hafi áður búið á landinu en við leit lögreglu í kerfum sínum hafi ekki fundist upplýsingar um aðilann. Skömmu síðar hafi kærandi verið að tala við tilgreinda konu í farsíma sinn. Hafi lögregla tekið við símtalinu og konan kynnt sig sem maka frænda kæranda. Hafi konan lýst því að kærandi myndi hitta frænda sinn og væri velkomið að gista hjá þeim. Hafi uppfletting í kerfum lögreglu leitt í ljós að konan og frændi kæranda væru bæði eftirlýst og hefði frænda kæranda verið brottvísað og væri hann í endurkomubanni.

Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga vegna ótrúverðugs tilgangs dvalar. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi sýnt lögreglu ógnandi tilburði og beitt hótunum.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 1. ágúst 2025. Greinargerð kæranda barst 20. ágúst 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 26. ágúst 2025. Kærandi hafði komið til landsins 17. júlí 2025 og verið frávísað af lögreglu. Um málið er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 830/2025 en niðurstaða nefndarinnar var að fella ákvörðun lögreglu um frávísun úr gildi.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að lögregla hafi haft afskipti af honum við komu til landsins. Kærandi hafi sýnt lögreglu fram á hótelbókun og farmiða til Bretlands, hvar hann dvelji. Kærandi kveðst hafa framvísað öðrum gögnum vegna ferðarinnar, þ.m.t. bókanir í Bláa Lónið og í rútuferð um Gullna hringinn en skjáskot umræddra bókana eru meðal fylgigagna á kærustigi. Kærandi vísar til ákvörðunar lögreglu og lagaskilyrða sem ákvörðunin hvíli á. Kærandi byggir á því að hann uppfylli skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri fyrir landgöngu. Hafi lögregla farið umfram lögbundnar heimildir sínar til að krefjast gagna úr höndum kæranda og síðar meinað honum um landgöngu sökum óljóss tilgangs.

Að mati kæranda séu verulegir annmarkar á meðferð málsins. Hann hafi lagt fram fullnægjandi gögn og uppfyllt skilyrði fyrir landgöngu. Að auki hafi reglur stjórnsýsluréttarins verið brotnar við meðferð málsins og töku hinnar kærðu ákvörðunar. Hafi lögregla hvorki gætt að leiðbeiningarskyldu sinni né andmælarétti kæranda við úrlausn málsins. Byggir kærandi á því að aðgerðir lögreglu hafi brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins þar sem í sambærilegum málum tíðkist ekki jafn ítarleg gagnaframlagning af hálfu einstaklinga sem uppfylla skilyrði fyrir landgöngu. Að auki komi ekki fram í hinni kærðu ákvörðun hvaða gögn kærandi hafi þurft að leggja fram til að leiða líkur að tilgangi dvalar sinnar. Að mati kæranda verði ekki annað ráðið en að hin kærða ákvörðun lögreglu hafi byggst á getgátum lögreglu sem ekki sé hægt að una.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, sbr. viðauka 9 við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, og má dvelja hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 19. júlí 2025, byggist á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi í sjö daga frá 19. til 25. júlí 2025. Kærandi sýndi fram á farmiða úr landi og gistingu á meðan dvölinni stæði og fékk lögregla bókanir hans staðfestar að hluta. Öðrum af tveimur gististöðum kæranda hafi ekki reynst unnt að skrá sig inn á bókunarsvæði þegar lögregla óskaði eftir upplýsingum um bókunina og verður það ekki metið kæranda í óhag. Kærandi hafi ætlað að fara í Bláa Lónið, FlyOver Iceland og rútuferð um Gullna hringinn. Þá hafi hann framvísað nægum fjármunum fyrir dvöl sinni. Samkvæmt framangreindu hefur kærandi uppfyllt hlutlæg skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri.

Af gögnum málsins verður aftur á móti ráðið að framburður og framferði kæranda við meðferð málsins hjá lögreglu hafi gefið tilefni til þess að kanna tilgang dvalar hans betur, t.a.m. varðandi stöðu hans í Bretlandi, atvinnu hans og uppruna fjármagns, tengsl við tiltekna aðila á Íslandi og misvísandi upplýsingagjöf við lögreglu. Hefði lögreglu verið rétt og skylt að rannsaka þau atriði nánar, bera undir kæranda og afla afstöðu hans til umræddra atriða með skýrum hætti, svo sem með framburðarskýrslu. Án slíkrar rannsóknar verður sá vafi sem uppi er í málinu er varðar tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar kæranda ekki metinn slíkur að hann vegi þyngra en þau hlutlægu skilyrði sem kærandi uppfyllir fyrir tilgangi komu og dvalar hér á landi. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og ber að túlka vafa aðilanum í hag.

Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.

Í ljósi þess að kærandi hefur fengið meginkröfu sína uppfyllta er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður hans í úrskurði þessum.

Athugasemdir við störf lögreglu

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson                                  Valgerður María Sigurðardóttir