18 nóvember 2025

/

Mál nr. 17/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 18. nóvember 2025

í máli nr. 17/2025

 

A

gegn

B ehf.

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B ehf.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að fella niður í heimabanka kröfu á hendur henni um leigu vegna janúar 2025 og að honum beri að endurgreiða henni tryggingarfé að fjárhæð 80.000 kr.

Varnaraðili hefur ekki tekið til varna í málinu þrátt fyrir áskorun þar um með tölvubréfum.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 30. janúar 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Sóknaraðili tók á leigu herbergi á starfsmannahóteli í eigu varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveðst hafa leigt íbúð á starfsmannahóteli varnaraðila á 170.000 kr. á mánuði. Við upphaf leigutíma hafi hún lagt fram tryggingarfé að fjárhæð 80.000 kr. Sóknaraðili hafi sagt leigusamningnum upp með samningsbundnum eins mánaðar uppsagnarfresti í nóvember 2024 og leigutíma því lokið 31. desember 2024. Hafi hún síðan þá ítrekað beðið um endurgreiðslu tryggingarfjár sem og að felld yrði niður krafa í heimabanka hennar vegna leigu fyrir janúar 2025. Lítið hafi verið um svör og þau fáu svör sem hún hafi fengið hafi verið á þá leið að varnaraðili væri alveg að fara að gera það.

III. Niðurstaða           

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka þrátt fyrir áskoranir þar um. Verður því kveðinn upp úrskurður á grundvelli skýringa sóknaraðila og gagna sem hún hefur lagt fram.

Af samskiptum aðila, sem fram fóru í gegnum textaskilaboð, má ráða að sóknaraðili hafi sagt leigusamningnum upp og að uppsagnarfresti hafi lokið 31. desember 2024. Þá verður ráðið af gögnum málsins að varnaraðili hafi hvorki mótmælt að honum bæri að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé né fella niður kröfu um leigu vegna janúar 2025 en fram kom í svörum hans að hún mætti vera róleg, það yrði gert á næstu dögum eða í næstu viku.

Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó sé leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu. Varnaraðili hefur ekki gert kröfu í tryggingarfé sóknaraðila og ber því að endurgreiða það ásamt vöxtum líkt og í úrskurðarorði greinir.

Krafa um að viðurkennt verði að varnaraðila beri að fella niður kröfu á hendur sóknaraðila sem hann setti í heimabanka hennar fellur utan valdsviðs nefndarinnar en líkt og framar greinir staðfesta textaskilaboð aðila að ágreiningslaust er að sóknaraðili skuldar varnaraðila ekki leigu vegna janúar 2025.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 80.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. janúar 2025 til greiðsludags.

 

Reykjavík, 18. nóvember 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

            Eyþór Rafn Þórhallsson                                                   Þorvaldur Hauksson