18 nóvember 2025

/

Mál nr. 24/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 18. nóvember 2025

í máli nr. 24/2025

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða leiguvanskil, að fjárhæð 552.500 kr., auk dráttarvaxta og að sóknaraðila sé heimilt að ganga að tryggingarfé varnaraðila, 250.000 kr., vegna leiguvanskila.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 12. febrúar 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Varnaraðili, sem ekki hefur látið málið til sín taka, leigði íbúð sóknaraðila að C frá 1. september 2023. Varnaraðili stóð ekki í skilum með leigugreiðslur og 10. desember 2024 skoraði sóknaraðili á hana að greiða vangoldna leigu, 510.000 kr., ella yrði leigusamningnum rift. Varnaraðili varð ekki við áskorun um að greiða leiguna en hún flutti úr hinu leigða og afhenti lykla 7. janúar 2025.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili gerir kröfu um að varnaraðili greiði sér vangoldna leigu, 552.500 kr., ásamt dráttarvöxtum. Þann 17. janúar 2025 sendi sóknaraðili varnaraðila bótakröfu þar sem gerð var krafa um vangoldna leigu og bætur vegna lögfræðiaðstoðar og endurbóta á parketi og útidyrahurð. Sóknaraðili kveður varnaraðila hafa hafnað kröfunni 30. janúar og skaut málinu því til nefndarinnar.

III. Niðurstaða           

Krafa sóknaraðila um vangoldna leigu byggir á samningi aðila og 33. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, og er vegna tímabilsins 1. október 2024 til 7. janúar 2025 er varnaraðili afhenti sóknaraðila umráð eignarinnar. Ber að fallast á kröfuna ásamt dráttarvöxtum eins og í úrskurðarorði greinir.

Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó sé leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans. Krafa sóknaraðila er um greiðslu á vangoldinni leigu og er henni því heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu þeirrar kröfu án samþykkis varnaraðila.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að greiða sóknaraðila, 552.500 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, af 170.000 kr. frá 1. október 2024 til 1. nóvember 2024, af kr. 340.000 kr. frá 1. nóvember til 1. desember, af kr. 510.000 kr. frá 1. desember 2024 til 1. janúar 2025 en af kr. 552.500 kr. frá 1. janúar 2025 til greiðsludags.

Sóknaraðila er heimilt að ráðstafa tryggingarfé, 250.000 kr., til greiðslu leiguvanskila.

 

Reykjavík, 18. nóvember 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

            Eyþór Rafn Þórhallsson                                                   Þorvaldur Hauksson