18 nóvember 2025

/

Mál nr. 73/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 18. nóvember 2025

í máli nr. 73/2025

 

A ehf.

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A ehf.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að honum sé heimilt að ganga að bankaábyrgð varnaraðila hjá C vegna kröfu um skaðabætur vegna ástands hins leigða í lok leigutíma, alls að fjárhæð 285.000 kr.

Krafa varnaraðila er að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 30. maí 2025.

Greinargerð varnaraðila, dags. 10. júní 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Varnaraðili leigði íbúð af sóknaraðila að D, frá janúar 2024 en flutti út fyrirvaralaust þrátt fyrir að hafa framlengt tímabundinn leigusamning aðila til 31. mars 2026. Sóknaraðili kveður ástand hins leigða hafa verið mjög slæmt og krefst skaðabóta úr hendi varnaraðila, sem hann hefur hafnað.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður húsnæðið hafa verið nýmálað og í góðu ástandi við upphaf leigutíma í janúar 2024. Varnaraðili hafi fyrirvaralaust flutt úr eigninni og sóknaraðili ekki gert kröfu um leigubætur svo sem hann hafi átt rétt til. Hann geri aðeins kröfu um að varnaraðili greiði honum fyrir vinnu hans við að koma hinu leigða aftur í ásættanlegt ástand eftir skemmdir sem hann hafi valdið. Lýsir sóknaraðili því með sundurliðunum hve langur tími hafi farið í að þrífa eignina eftir varnaraðila, þ.e. gólflista, ofan af skápum, alla ofna, fjarlægja lím úr gluggum, þrífa glugga og gluggapósta, þrífa mikil óhreinindi af veggjum sem ekki hafi verði unnt að mála yfir og rúllugardínur. Alls 15,5 klukkustundir í þrif. Þá hafi sóknaraðili varið 28,5 klst. í að mála eignina; sparslað í allar skemmdir, límt með fram listum og gluggum og málað loft og veggi. Þá hafi sóknaraðili farið með rusl á Sorpu, þrifið áhöld, ryksugað og skúrað út að dyrum, alls 6 klst. Alls geri sóknaraðili því kröfu um 50 klukkustundir á tímagjaldinu 5.000 kr. á klukkustund. Þá hafi efniskostnaður numið 35.000 kr. Krafa hans nemi þannig 285.000 kr. en varnaraðili hafi mótmælt kröfu hans í bankaábyrgðina.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili kveðst alls ekki sammála lýsingu sóknaraðila á ástandi eignarinnar og nauðsyn á þrifum. Þá sé sóknaraðili að krefja um bætur fyrir tíma sem hann hafi varið í að fjarlægja lím á gluggum en það hafi þegar verið á gluggum eignarinnar við upphaf leigutíma. Varnaraðili kveðst hafa boðist til að laga skemmdir á vegg eftir kött á tveimur stöðum í húsinu en sóknaraðili ekki viljað það og hafi ekki heldur leyft varnaraðila að mála á leigutíma en hann telji að mála eigi húsnæði árlega. Hann hafi búið í eigninni í um tvö ár og hugsað vel um hana. Þá hafi hann ekki skilið eftir neitt rusl við lok leigutíma og hann hafi þrifið ofn fyrir afhendingu. Kveðst hann ekki hafa fengið myndir af hinu leigða fyrir upphaf leigutíma, heldur af annarri sambærilegri eign.

VI.  Niðurstaða         

Ágreiningur er með aðilum um ástand hins leigða við lok leigutíma og bótakröfu sóknaraðila vegna þrifa á eigninni og málningar.

Aðilar gerðu ekki úttekt á hinu leigða í samræmi við fyrirmæli 69. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, hvorki við upphaf leigutíma né lok, og verður sóknaraðili að bera hallann af sönnunarskorti sem það kann að valda. Þá er fjárkrafa sóknaraðila ekki studd gögnum heldur byggir hún á upplýsingum hans sjálfs um þann tíma sem hann hafi sjálfur varið í þrif og málningu eignarinnar. Sóknaraðili hefur ekki stutt kröfur sínar gögnum og gegn mótmælum varnaraðila telur kærunefnd ósannað að varnaraðili hafi skilað af sér eigninni í óviðunandi ástandi og að sóknaraðili hafi orðið fyrir tjóni sem nemi 285.000 kr. Er kröfu sóknaraðila því hafnað.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kröfu sóknaraðila er hafnað.

 

Reykjavík, 18. nóvember 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

            Eyþór Rafn Þórhallsson                                                   Þorvaldur Hauksson