19 nóvember 2025

/

Mál nr. 113/2025 Úrskurður 19. nóvember 2025

Mál nr. 113/2025                  Eiginnafn: Jörvaldi (kk.)

Hinn 19. nóvember 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 113/2025 en erindið barst nefndinni 10. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Jörvaldi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jörvalda, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jörvaldi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.