19 nóvember 2025

/

Mál nr. 116/2025 Úrskurður 19. nóvember 2025

Mál nr. 116/2025                  Aðlögun kenninafns: Mikaelsdóttir

Hinn 19. nóvember 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 116/2025.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. nóvember 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að kenna dóttur sína við föður þannig að nafn hans Mikhail verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verið Mikaelsdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Mikaelsdóttir.