19 nóvember 2025

/

Mál nr. 485/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 485/2025

Miðvikudaginn 19. nóvember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. ágúst 2024 og var umsóknin samþykkt 11. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans væri synjað á grundvelli 1. mgr. og 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 12. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. september 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki. Þann 27. október 2025 barst leiðrétt greinargerð frá Vinnumálastofnun og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið boðaður á fund 27. júní en hann hafi verið erlendis á þeim tíma. Að sögn kæranda hafi ferðin verið bókuð snemma í júní með miða aðra leið. Heimferðin hafi hins vegar ekki verið ákveðin fyrr en seint í júlí, fimm dögum fyrir heimflug eins og sjá megi af meðfylgjandi flugmiðum. Kærandi hafi skráð ferðina inn á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar. Hins vegar hafi kærandi þurft að framlengja dvöl sína erlendis, enda hafi hann aðeins átt miða aðra leið og ekki vitað nákvæmlega hvenær hann kæmi til baka. Kærandi bendi á að hann hafi ætíð tilkynnt allar ferðir sínar erlendis og að það sé auðvelt fyrir Vinnumálastofnun að sannreyna það á „Mínum síðum“. Hann hafi aldrei á undanförnum árum farið í ferð án þess að tilkynna hana. Kærandi skilji ekki hvers vegna umsókn hans hafi verið felld úr gildi og óski eftir að mál hans verði skoðað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. ágúst 2024. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafði hann nýtt tæplega 21 mánuð af bótatímabili sínu sem hafi stofnast með umsókn, dags, 19. maí 2021. Með erindi, dags. 11. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 26. júní 2025 hafi kærandi verið boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 27. júní 2025. Kærandi hafi svarað þeirri boðun samdægurs með orlofsskráningu á „Mínum síðum“ fyrir tímabilið 27. júní 2025 til 9. júlí 2025. Með erindi, dags. 10. júlí 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegum skýringum frá kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki tilkynnt fyrir fram um ferð sína erlendis ásamt afriti af flugfarseðlum þar sem brottfarar- og komutími væru tilgreindir. Skýringar og umbeðin gögn hafi borist frá kæranda. Framlögð gögn hafi sýnt að kærandi hafi farið erlendis þann 8. júní 2025 en án dagsetningar á heimkomu.

Með erindi, dags. 21. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans væri synjað þar sem hann hafi látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. og 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæðið 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til fundar hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hafi farið fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 27. júní 2025. Kærandi hafi nýtt 28,34 mánuði af bótarétti sínum þegar ákvörðun hafi verið tekin í máli hans og hann hafi dvalið erlendis frá 8. júní 2025.

Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að vera í virkri atvinnuleit. Það sé jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um orlof sitt, líkt og honum hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en hafi farið rangt með dagsetningar á því tímabili sem hann hafi verið staddur erlendis. Kærandi hafi skráð sig inn á „Mínar síður“ 10. júní 2025, kl. 13:52 og skráð orlof frá 11. júní 2025 til 26. júní 2025, sem hann hafi svo framlengt til 9. júlí 2025 þann 26. júní 2025 á „Mínum síðum“ eftir að honum hafi borist boðun á upplýsingafund þann 27. júní 2025. Kærandi hafi því verið beittur viðurlögum samkvæmt 1. og 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Þegar einstaklingur hafi nýtt meira en 24 mánuði af bótarétti sínum og komi til beitingar á viðurlögum skv. 1. mgr. 58. gr. komi það fram í 4. mgr. sömu greinar að umsækjandi þurfi að starfa samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur til að öðlast rétt til greiðslna á ný skv. 31. gr. laganna

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun heldur hafi hann skráð sig í orlof. Kærandi hafi þó ekki tilkynnt rétta daga til stofnunarinnar. Ekki verði fallist á að atvinnuleitandi geti virt að vettugi vinnumarkaðsúrræði á vegum Vinnumálastofnunar, án afleiðinga, vegna utanlandsferða sem hann hafi ekki tilkynnt til stofnunarinnar. Skýringar kærandar þess efnis að hann hafi verið ófær um að mæta á fund stofnunarinnar vegna utanlandsferðar geti ekki talist gildar þar sem stofnuninni hafi ekki borist tilkynning um afskráningu þegar boðað hafi verið til fundarins.

Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. og beri því að sæta viðurlögum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi nýtt meira en 24 mánuði af bótarétti sínum þegar atvik hafi átt sér stað komi til beitingar á viðurlögum skv. 4. mgr. sömu greinar. Kærandi þurfi því að starfa samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur til að öðlast rétt til atvinnuleysisbóta að nýju.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að synja skuli kæranda um frekari greiðslur atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. og 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. og 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun þann 10. júní 2025 um orlof á tímabilinu 11. til 26. júní 2025. Síðasta dag orlofsins var kærandi boðaður á fund sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Sama dag og kærandi var boðaður á fundinn framlengdi hann orlof sitt til 9. júlí 2025 og mætti því ekki á boðaðan fund. 

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram að kæranda bæri að mæta á upplýsingafund hjá stofnuninni. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru hans á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Þegar kærandi var beittur viðurlögum hafði hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 28,34 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir