19 nóvember 2025
/
Mál nr. 507/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 507/2025
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 19. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 19. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 20. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. ágúst 2025 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Því bæri að fallast á kröfu kæranda um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda samdægurs og í kjölfarið var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnunar vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust úrskurðarnefndinni 8. október 2025.
II. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2025, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því bæri að fallast á kröfu hans um að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir