19 nóvember 2025
/
Mál nr. 533/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 533/2025
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 27. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 19. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 2. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi ekki fengið boðun á fund hjá Vinnumálastofnun og hafi því ekki mætt. Vegna þessa hafi honum verið gert að sæta viðurlögum. Kærandi greinir frá því að hann hafi hringt í Vinnumálastofnun og fengið þær upplýsingar að þar sem bótaréttur hans væri runninn út þyrfti hann í raun ekki að kæra. Kæranda hafi einnig verið greint frá því að þetta myndi ekki hafa áhrif á greiðslu til hans þann 1. ágúst. Það hafi ekki reynst rétt og síðar haft áhrif á fjárhagsaðstoð kæranda frá Reykjavíkurborg.
Kærandi tekur fram að hann hafi fengið boðun í viðtal í febrúar í símanúmer X. Í júní hafi Vinnumálastofnun flutt þjónustu sína yfir á island.is og eftir að hafa fengið hina kærðu ákvörðun hafi kærandi séð að skráð símanúmer í kerfinu væri númerið X, sem hafi tilheyrt látnum föður hans, en kærandi hafi notað það fyrir mörgum árum síðan.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 11. nóvember 2024. Með erindi, dags. 19. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi kærandi nýtt 22,1 mánuði af 30 mánaða bótarétti sem hafi byrjað 29. apríl 2020.
Þann 26. júní 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 27. júní 2025, kl. 11:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar á tiltekið netfang Vinnumálastofnunar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðun þessi hafi verið send þann 26. júní 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í símanúmer sem hafi verið skráð á umsókn kæranda. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin aldrei verið móttekin í símtæki kæranda. Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt á upplýsingafundinn né tilkynnt forföll.
Með erindi, dags. 7. júlí 2025, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi skilað skýringum samdægurs þar sem fram komi að hann hafi engar tilkynningar fengið, hvorki „sms, tölvupóst eða nokkurt slíkt í mínum tækjum.“ Með erindi, dags. 21. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 58. gr. laganna þar sem að hann hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði. Þar sem kærandi hefði nýtt meira en 24 mánuði af bótarétti sínum hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga verið stöðvaðar að fullu, sbr. 4. mgr. 58. gr. laganna.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 27. ágúst 2025. Í kæru greini kærandi frá því að hann hafi verið utan netsambands og hafi ekki séð póstinn fyrr en eftir á. Þá greini kærandi frá því að hann hafi ekki fengið viðkomandi boðanir í síma þar sem að eldra númer hafi verið skráð á umsókn hans, sem hafi ekki tilheyrt honum sjálfum.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði. Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Fyrir liggi að kærandi hafi verið boðaður á upplýsingafund þann 27. júní 2025. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll þrátt fyrir að í erindi til hans þann 26. júní 2025 hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldi tilkynna á uppgefið netfang Vinnumálastofnunar. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á fjarveru sinni hafi verið þess efnis að hann hefði aldrei fengið boðanir. Kærandi segi í kæru að boðanir hafi ekki borist honum þar sem að stofnunin hafi í júní verið að „flytja sig yfir á island.is“ og megi skilja svo að við þá flutninga telji kærandi að skráning símanúmers hafi farið forgörðum hjá stofnuninni. Það haldist illa í hendur við skráningu í breytingasögu kæranda á „Mínum síðum“ þar sem kærandi hafi breytt símanúmeri sínu þann 17. júlí 2025 úr X sem hafi verið virkt í kerfum stofnunarinnar frá umsóknardegi, í símanúmerið X. Vinnumálastofnun hafni slíkum skýringum sem gildum þar sem það sé alltaf á ábyrgð umsækjanda að tryggja að hægt sé að ná í hann og að upplýsingar um símanúmer og netföng séu uppfærð jafn skjótt og þær breytist.
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að uppfylla ekki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi nýtt 29,1 mánuði af bótarétti sínum á ákvörðunardegi 21. júlí 2025 virkist ákvæði 4. mgr. 58. gr. sem sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem kærandi hafi nýtt yfir 24 mánuði af bótarétti sínum þurfi hann að uppfylla skilyrði 31. gr. til að eiga rétt til atvinnuleysisbóta að nýju.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafði þegið bætur frá stofnuninni í meira en 24 mánuði.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Fyrir liggur að kærandi var þann 26. júní 2025 boðaður á fund sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og með skilaboðum í skráð farsímanúmer. Kærandi boðaði ekki forföll á fundinn en kvaðst í skýringum til Vinnumálastofnunar, dags. 7. júlí 2025, ekki hafa fengið boð á fundinn sökum þess að skráning á símanúmeri hans hafi farið forgörðum við flutninga Vinnumálastofnunar yfir á island.is.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram að kæranda bæri að mæta á upplýsingafund hjá stofnuninni. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru hans á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Er það á ábyrgð kæranda að tryggja að réttar samskiptaupplýsingar séu skráðar í kerfi Vinnumálastofnunar svo hann geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögunum.
Þegar kærandi var beittur viðurlögum hafði hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í 29,10 mánuði á yfirstandandi bótatímabili sínu. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir