19 nóvember 2025
/
Mál nr. 547/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 547/2025
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 1. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. maí 2025 og var umsóknin samþykkt 4. júní 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 137.597 kr., að meðtöldu álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. september 2025. Með bréfi, dags. 2. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi mótmælir því að hún hafi látið hjá líða að tilkynna um tekjur eða vinnu. Um hafi verið ræða smávægilegar tekjur en samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar nemi heildarfjárhæð 137.597 kr., með 15% álagi sem kærandi telji ósanngjarnt í ljósi aðstæðna. Kærandi hafi ekki haft í hyggju að leyna upplýsingum um störf sín eða tekjur en misskilningur hafi orðið um tilkynningarskyldu og dagsetningar. Kærandi óski eftir því að málið verði metið heildstætt með hliðsjón af meðalhófi og því að um lága fjárhæð sé að ræða miðað við 100% bætur, auk þess séu afleiðingarnar mjög íþyngjandi fyrir hana. Kærandi óski einnig eftir því að álagið verði fellt niður. Hún sé reiðubúin að endurgreiða raunverulega ofgreiðslu samkvæmt leiðréttingu.
Kærandi fari í fyrsta lagi fram á að ákvörðun um tveggja mánaða niðurfellingu verði felld úr gildi en til vara að hún verði felld niður eða málinu vísað til nýrrar meðferðar. Í öðru lagi fari kærandi fram á að 15% álag á ætlaðar ofgreiðslur verði fellt niður þar sem henni verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til greiðslunnar. Til vara fari kærandi fram á að samþykkt verði greiðsluáætlun án álags.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 1. maí 2025. Með erindi, dags. 4. júní 202[5] hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í ágúst 2025 hafi kæranda verið sent erindi, dags. 15. ágúst 2025, þar sem henni hafi verið gefinn kostur á að skýra ótilkynntar launagreiðslur frá júní 2024 til ágúst 2024. Auk skýringa hafi kærandi verið beðin um að skila gögnum um þær launagreiðslur, t.a.m. afrit af launaseðlum.
Skýringar kæranda hafi borist 18. ágúst 2025, auk umbeðinna launaseðla. Að sögn kærandi hafi verið um orlofsgreiðslu að ræða en að gögn sem óskað hefði verið eftir sýni ekki sömu upphæðir og dagsetningar og Vinnumálastofnun hefði undir höndum. Kærandi hafi aftur sent tölvupóst þann 22. ágúst 2025 þar sem fram komi að hún hefði starfað til 12. júní 202[4] og hefði hafið störf aftur þann 11. ágúst 202[4].
Með erindi, dags. 27. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hún hefði ekki upplýst stofnunina um tilfallandi vinnu væri greiðslum frestað í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Kæranda hafi verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem launagreiðslur hefðu varðað. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 119.650 kr., sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því 137.597 kr.
Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum bóta og að henni beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hún hafi fengið greiddar á árinu 202[4].
Mál þetta varði í fyrsta lagi almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafli laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamann sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreiningu á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá teljist í virkri atvinnuleit sem sé meðal annars að hafa frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við. Þá sé tilgreint í 2. mgr. 14. gr. að það beri að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafa.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tilfallandi störf né tekjur á árinu 202[4]. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.
Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hún hafi starfað hjá tveimur mismunandi fyrirtækjum og þegið laun í júní, júlí og ágúst 202[4]. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýst um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hennar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fullljóst að henni bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hún hafi aflað sér. Henni beri því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði 59. gr. laganna en í 1. mgr. ákvæðisins segi að sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Tekjur kæranda hafi í júní numið 499.760 kr., 199.500 kr. í júlí og 221.400 kr. í ágúst samkvæmt þeim upplýsingum sem Vinnumálastofnun hafi aflað frá Skattinum en kærandi hafi haft tekjur frá B og C á Íslandi í júní og þeim síðarnefnda í júní og júlí 202[4].
Kærandi hafi allt sumarið 202[4] þegið greiðslur atvinnuleysisbóta samhliða störfum hjá framangreindum fyrirtækjum og hafi, eðli málsins samkvæmt, fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld hafi myndast við stofnunina, samtals að fjárhæð 137.597 kr., að meðtöldu álagi skv. 2. mgr. 39. gr. laganna.
Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpitil laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, enda hafi kærandi ekki fært rök fyrir því að henni verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að hún skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 137.597 kr., að meðtöldu álagi.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í júní, júlí og ágúst 2024 frá C og í júní sama ár frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í ágúst 2025.
Þann 20. maí 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.
Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um störf sín hjá C og B á tímabilinu júní til ágúst 2024. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 137.597 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hún fékk greiddar á tímabilinu júní til ágúst 2024 fékk hún hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir