19 nóvember 2025

/

Mál nr. 570/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 570/2025

Miðvikudaginn 19. nóvember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. september 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 26. júní 2025 og var umsóknin samþykkt 5. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. september 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. september 2025. Með bréfi, dags. 17. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa sótt um atvinnuleysisbætur 26. júní 2025 að loknum uppsagnarfresti hjá fyrri vinnuveitanda. Hann hafi sjálfur sagt upp störfum vegna þess að hann hefði ekki fengið greidd laun frá febrúar 2025. Umsóknin hafi verið samþykkt með tveggja mánaða biðtíma frá 31. júlí 2025 þar sem kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum. Kærandi telji að þessi ákvörðun hafi verið óeðlileg. Að launþegar sem hafi ekki fengið greidd laun fyrir unnin störf geti ekki leitað til Vinnumálastofnunar. Sú afstaða sendi misvísandi skilaboð, að starfsmanni sem reyni eftir fremsta megni að vinna vinnuna sína þrátt fyrir greiðsludrátt sé síðar refsað fyrir að hafa loks sagt upp vegna efnahagslegra aðstæðna.

Kærandi hafi sætt sig við úrskurðinn frá 5. ágúst um tveggja mánaða biðtíma og einbeitt sér að atvinnuleit fram að 5. október þar sem hann hafi talið að greiðslur bóta myndu hefjast þá. Þann 14. ágúst hafi kærandi fengið boð á skyldumætingarfund hjá Vinnumálastofnun. Hann hafi talið að þar sem hann ætti ekki von á bótum næstu tvo mánuði væri engin þörf á að mæta á slíkan fund á þeim tíma, enda væru slíkir fundir haldnir reglulega og hann gæti mætt hvenær sem er fyrir 5. október án nokkurs skaða. Hann hafi einnig talið að tíma hans væri betur varið í atvinnuleit en að mæta á fundarúrræði Vinnumálastofnunar þegar enn væru tæpir tveir mánuðir í að greiðslur frá stofnuninni myndu berast.

Kærandi telji að þriggja mánaða viðurlög fyrir það að mæta ekki á fund séu úr hófi og of harkaleg. Hann hafi ekki sett sig upp á móti því að mæta á fund, eingöngu gert athugasemd við tímasetningu skyldumætingar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 26. júní 2025. Með erindi, dags. 5. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Jafnframt hafi kærandi verið upplýstur um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum með vísan til starfsloka hans. Kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum hjá B.

Þann 12. ágúst 2025 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund þann 14. ágúst 2025, klukkan 13:00. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 12. ágúst 2025, klukkan 14:34. Kærandi hafi hvorki mætt á kynningarfundinn né boðað forföll.

Kæranda hafi aftur þann 21. ágúst 2025 verið boðaður á kynningarfund þann 22. ágúst 2025, klukkan 09:30. Kæranda hafi verið tilkynnt að um síðastu boðun væri að ræða og hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða ásamt því að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 21. ágúst 2025, klukkan 09:23. Kærandi hafi hvorki mætt á kynningarfundinn né boðað forföll.

Kæranda hafi verið sent erindi, dags. 2. september 2025, þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skila skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 22. ágúst 2025. Kærandi hafi sent inn nánari skýringar á fjarveru sinni með bréfi, dags. 3. september 2025, svohljóðandi:

„Skv. úrskurði 5. Ágúst sl. Var umsókn minni um atvinnuleysisbætur frestað um 2 mánuði. Það var því mitt mat að ekki væri þörf á mætingu á þennan fund fyrr en nær dregur að fyrstu greiðslu ( 5. október).“

Kæranda hafi verið send ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 8. september 2025 um að fella niður greiðslur honum til handa í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða kynningarfundi á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar 1[4]. og 22. ágúst 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umrædda upplýsingafundi. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 2. september 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Þar sem kærandi hafi sætt viðurlögum vegna starfsloka komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna sem sé svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund séu þær að hann telji tíma sínum betur varið í annað en að mæta á fundi hjá Vinnumálastofnun. Orðrétt segi í kæru til úrskurðarnefndar að kærandi telji að tíma sínum sé „betur varið í atvinnuleit, en að mæta á fundaúrræði Vinnumálastofnunar, þegar enn eru tæpir tveir mánuðir í að stofnunin þurfi að leggja til einhverjar greiðslur“ til sín.

Framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Rétt sé að kærandi hafi sætt viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laganna vegna starfsloka sinna hjá B. Í 2. mgr. 54. gr. laganna sé skýrt ákvæðið um skyldu manna til að uppfylla skilyrði laganna á biðtíma. Með bréfi, dags. 5. ágúst 2025, hafi kæranda verið gert ljóst að ákvörðun stofnunarinnar losi hann ekki undan skyldu til þess að uppfylla skilyrði laganna á biðtímanum.

Í ljósi framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga þegar hann hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Kæranda beri því að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 12. ágúst 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 14. ágúst 2025. Kærandi var aftur þann 21. ágúst 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 22. ágúst 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ekki væri hægt að fá nýja boðun en ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaða kynningarfundi né boðaði forföll. Fyrir úrskurðarnefndinni hefur kærandi vísað til þess að hann hafi ekki talið nauðsynlegt að mæta á fundinn þar sem hann hafi verið á biðtíma eftir greiðslum vegna starfsloka.

Umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur var samþykkt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. ágúst 2025. Kæranda var í því bréfi bent á að hann þyrfti að staðfesta atvinnuleysi sitt 20.-25. hvers mánaðar og uppfylla skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar á meðan á biðtíma stæði. Að því virtu telur úrskurðarnefndin að kæranda hefði mátt vera ljóst að honum bæri skylda til að mæta á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 5. ágúst 2025 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. september 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir