20 nóvember 2025
/
Nr. 868/2025 Úrskurður
Hinn 20. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 868/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25060083
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. júní 2025 kærði karlmaður að nafni […], fd. […], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 4. júní 2025, um að afturkalla vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 20. mars 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um frávísun á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga verði felld úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 10. mars 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sjö daga dvöl frá 12. til 18. maí 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram á Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 20. mars 2025, með gildistíma frá 12. maí til 25. júní 2025. Kærandi kom til Íslands 4. júní 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. samdægurs, var vegabréfsáritun kæranda afturkölluð og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar á að byggjast á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er ekki stuðst við framangreint eyðublað, heldur eldri útgáfu, sem var samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gert fyrir mistök hjá lögreglu. Var merkt við reit um afturköllun vegabréfsáritunar (e. revoked). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-11 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er afturkölluð. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 8 þess efnis að að upplýsingar sem hafi verið veittar til að sýna fram á tilgang og skilyrði dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar. Ákvörðun lögreglu um afturköllun vegabréfsáritunar fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.
Samhliða framangreindri ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að vegabréfsáritun kæranda hafi verið afturkölluð.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 5. júní 2025, hafi hinn 4. júní s.á. verið óskað eftir aðstoð við landamærahlið í komusal á Keflavíkurflugvelli vegna kæranda en hann hafi komið með flugi frá Bretlandi. Kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja í einn dag hér á landi og fara svo aftur til Bretlands með flugi 5. júní 2025. Kærandi hafi verið með vegabréfsáritun með gildistíma frá 12. maí til 25. júní 2025. Kæranda hafi verið boðið til viðræðna í viðtalsherbergi lögreglunnar og verið afhent upplýsingablað þar sem fram komi leiðbeiningar um að kærandi ætti rétt á að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað og rétt hans til að hafa samband við fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Við uppflettingu í kerfum lögreglu komu fram upplýsingar um umsókn kæranda um vegabréfsáritun til Íslands og að kærandi hafi sótt um áritun á þeim forsendum að hann hygðist dvelja á Íslandi frá 12. til 18. maí 2025. Kærandi hafi í tengslum við umsókn um vegabréfsáritun lagt fram bókun á gistingu hjá tilteknu gistiheimili fyrir þá daga auk ferðatryggingar. Hjá lögreglu hafi kærandi greint frá því að tilgangur ferðar hans væri að ferðast um og skoða landið. Hann hafi ætlað að dvelja á landinu í einn dag og fara svo aftur til Bretlands degi síðar. Kærandi hafi framvísað flugmiða fyrir það flug. Kærandi hafi ekki haft bókaða gistingu fyrir ferðina, en hann hafi framvísað 565 pundum í reiðufé og á bankareikningi. Kærandi hafi greint frá því að ætla að skoða Bláa lónið og aðra staði. Kærandi hafi ekki getað greint frá hvernig hann hygðist ferðast en sennilega með bílaleigubíl eða almenningssamgöngum. Þegar kærandi var inntur eftir ástæðum breytinga á ferð sinni hafi kærandi greint frá því að hann hafi ekki fengið frí frá vinnu til að fara í fyrirhugaða ferð. Kærandi hafi ekki gefið frekari skýringar fyrir því. Þá hafi kærandi greint frá því að hafa einungis fengið stutt frí frá vinnu sem hann hafi ætlað að nýta til að koma hingað til lands í einn dag. Kærandi hafi framvísað ferðaáætlun úr forriti gervigreindar. Að framangreindu virtu hafi kæranda verið frávísað á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, auk þess sem áritun hans var afturkölluð þar sem mat lögreglu væri að um misnotkun á vegabréfsáritun væri að ræða. Kærandi hafi svo farið með flugi til Bretlands.
Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 12. júní 2025 og lagði fram fylgigögn 16. júní 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 9. júlí og 21. október 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 9. október 2025. Greinargerð kæranda barst 29. október 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi byggir á því að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi ekki verið fylgt við töku ákvörðunar hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og því sé ákvörðunin ógildanleg. Kærandi byggir á því að lögreglan hafi með engu móti kannað hverjar aðstæður kæranda voru við mat á réttmæti þess að kæranda væri heimilt að koma til landsins. Kærandi vísar til 22. gr. stjórnsýslulaga um rökstuðning ákvörðunar. Kærandi telur að gögn málsins beri ekki með sér með ótvíræðum hætti af hvaða ástæðum kærandi hafi ekki haft löglega heimild til að ferðast til Íslands. Um sé að ræða skort á rökstuðningi fyrir ákvörðuninni og það ætti að liggja ljóst fyrir í gögnum málsins af hvaða ástæðum kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir komu til landsins. Aðeins sé vísað til a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að skilyrði framangreindra ákvæða séu ekki uppfyllt enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins sönnur um annað.
Kærandi gerir athugasemd við leiðbeiningar lögreglunnar um rétt kæranda til að leita sér lögfræðiþjónustu á eigin kostnað. Honum hafi ekki verið leiðbeint um hvernig hann gæti sótt sér slíka þjónustu. Þá sé ekki ljóst hvort kærandi hafi gert tilraunir til að leita sér aðstoðar lögmanns. Sé því ekki hægt að fullyrða að leiðbeiningarskyldu stjórnvalda og andmælarétti kæranda, sbr. 7. og 13. gr. stjórnsýslulaga, hafi verið fullnægt við meðferð málsins.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 20. mars 2025, með gildistíma frá 12. maí til 25. júní 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 4. júní 2025, var vegabréfsáritun kæranda afturkölluð. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir byggð á eldra eyðublaði og merkt í reit um afturköllun og til skýringar merkt í reit 8 þess efnis að upplýsingar sem veittar hafi verið til að sýna fram á tilgang og skilyrði dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar. Ákvörðun lögreglu um afturköllun vegabréfsáritunar fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um afturköllun vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins skal afturkalla vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar eru ekki lengur uppfyllt. Vegabréfsáritun skal að jafnaði afturkölluð af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að afturkalla vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um slíka afturköllun. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar.
Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 10. mars 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í sjö daga á tímabilinu 12. til 18. maí 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn, s.s. hótelgistingu fyrir umrætt tímabil og flugmiða. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands, 4. júní 2025, hafi þær forsendur þó ekki staðist þar sem fyrir lá að kærandi ætti flug aftur til Bretlands daginn eftir, 5. júní 2025. Kærandi greindi lögreglu frá því að fyrirhuguð ferð hafi breyst þar sem hann hafi ekki fengið frí frá vinnu líkt og til stóð. Kærandi framvísaði flugmiða frá landinu 5. júní 2025 en kvaðst ekki hafa bókað gistingu. Samkvæmt framansögðu byggðist framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni á breyttum forsendum enda var ferð kæranda hingað til lands 4. júní 2025 í engu samræmi við fyrirhugaða ferð samkvæmt umsókn um vegabréfsáritun og forsendur útgáfu vegabréfsáritunar. Samkvæmt gögnum málsins eru breyttar forsendur kæranda fyrir komu hingað til lands ekki trúverðugar. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á breyttum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar ekki lengur uppfyllt. Var lögreglu því heimilt að afturkalla vegabréfsáritun kæranda 4. júní 2025 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 20. mars 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 4. júní 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að vegabréfsáritun kæranda hafi verið afturkölluð. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun á þeim forsendum að hann hygðist dvelja hér á landi í sjö daga, frá 12. til 18. maí 2025. Með umsókn hafi kærandi lagt fram bókun á gistingu fyrir umrædda daga auk flugmiða. Hjá lögreglu hafi kærandi greint frá því að vinnuveitandi hans hafi ekki gefið honum frí til þess að fara í fyrirhugaða ferð og því hafi hann ákveðið að koma í einn dag 4. júní 2025. Kærandi hafi ekki haft bókaða gistingu en hafi verið með flugmiða úr landi 5. júní 2025. Kærandi hafi greint frá því að vilja skoða Bláa lónið auk annarra staða hér á landi. Kærandi væri óviss hvernig hann myndi ferðast milli staða. Framburður kæranda um framangreindar fyrirætlanir hér á landi er ótrúverðugur einkum með vísan til þess að kærandi var ekki búinn að gera ráðstafanir, s.s. varðandi gistingu og ferðamáta, sér í lagi þar sem kærandi hugðist einungis dvelja einn sólarhring hér á landi. Þrátt fyrir að kærandi hafi breytt upphaflegri ferðaáætlun sinni eru ekki síður gerðar kröfur til þess að hann þekki ferðaáætlun sína og geti gert skil á henni við komu til landsins enda er það eitt skilyrði þess að umsókn um vegabréfsáritun verði samþykkt. Ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að kærandi hafi ekki verið búinn að gera ráðstafanir vegna sólarhringsdvalar sinnar hér á landi og hafi framburður hans verið óskýr um tilgang dvalar hans. Þrátt fyrir að játa megi handhöfum vegabréfsáritunar hingað til lands ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, og að því gefnu að á því séu eðlilegar skýringar, þá liggur fyrir í máli kæranda að ekki var um smávægilegar breytingar á ferðaáformum að ræða auk þess sem uppgefnar ástæður fyrir breytingunum verða ekki metnar trúverðugar. Ferð kæranda hingað til lands 4. júní 2025 var í engu samræmi við fyrirhugaða ferð samkvæmt þeim forsendum sem gefnar voru við umsókn um vegabréfsáritun. Með vísan til framangreinds misræmis á fyrirhugaðri ferð kæranda hingað til lands 12. til 18. maí 2025 samkvæmt umsókn um vegabréfsáritun og ferðar hans til landsins 4. júní 2025, þar sem kærandi hugðist dvelja á landinu í einn sólarhring, hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi fyrirhugaðrar dvalar hér á landi. Kærandi hefur því ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 7. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Af skýrslu lögreglu er ljóst að kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Ekki er gerð athugasemd við leiðbeiningar lögreglunnar hvað þetta varðar. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum að afturkalla vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 2., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a-, og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Athugasemdir við málsmeðferð lögreglu
Gerð er athugasemd við framangreinda ákvörðun lögreglu um afturköllun vegabréfsáritunar í máli kæranda. Virðist sem að lögregla hafi ekki notast við rétta útgáfu af hinu staðlaða eyðublaði sem Schengen-ríkin nota við ógildingu á vegabréfsáritun og verður það ekki talið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Umsækjanda skal tilkynnt um ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar og ástæður hennar á stöðluðu eyðublaði sem fram kemur í viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir.
Hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og afturköllun vegabréfsáritunar fjalla um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í hinum kærðu ákvörðunum er ekki að finna frekari rökstuðning fyrir töku þeirra annan en að hakað er við á hvaða synjunar- og afturköllunarástæðu er byggt í stöðluðum ákvarðanaeyðublöðum. Að öðru leyti kom ekki fram hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirra niðurstaðna eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvarðananna að undanskildum þeim athugasemdum við ákvörðun um frávísun um að vegabréfsáritun kæranda hafi verið afturkölluð. Verður því að líta svo á að með hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Þá eru leiðbeiningar í ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar áfátt en þar koma ekki fram fullnægjandi upplýsingar um kæruheimild, þ.e. um kærufrest og til hvaða stjórnvalds skuli beina kæru. Að þessu leyti voru hinar kærðu ákvarðanir ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindir annmarkar hafa þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Ákvarðanir lögreglu um frávísun og afturköllun vegabréfsáritunar eru aðskildar ákvarðanir sem eru hvorar um sig kæranlegar til kærunefndar. Því er beint til lögreglunnar að gæta þess að viðbótarathugasemdir sem koma fram í ákvörðun um frávísun annars vegar og afturköllun vegabréfsáritunar hins vegar lúti einvörðungu að efni ákvörðunarinnar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir