21 nóvember 2025
/
1318/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025
Hinn 21. nóvember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1318/2025 í máli ÚNU 25100020.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 22. október 2025, kærði […], fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, ákvörðun Þingeyjarsveitar að synja beiðni hennar, dags. 29. september 2025, um aðgang að öllum upplýsingum sem sneru að uppsögn sveitarstjóra sveitarfélagsins. Beiðni hennar var synjað með erindi, dags. 14. október 2025, með vísan til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Kæran var kynnt Þingeyjarsveit með erindi, dags. 23. október 2025, og sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Þingeyjarsveit afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Þingeyjarsveitar barst úrskurðarnefndinni 5. nóvember 2025. Í umsögninni kemur fram að ákvörðun um uppsögn sveitarstjóra hafi verið tekin á lokuðum fundi sveitarstjórnar. Sveitarfélagið vísaði til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, þar sem fram kemur að réttur almennings til aðgangs að upplýsingum nái ekki til gagna um málefni starfsmanna eða starfssambandið að öðru leyti. Þá kom fram í umsögninni að gögnin væru ekki þess eðlis að 3. mgr. 7. gr. upplýsingalaga ætti við en þar er fjallað um rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um viðurlög sem æðstu stjórnendur hafa sætt í starfi.
Umsögn Þingeyjarsveitar var kynnt kæranda með erindi, dags. 6. nóvember, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Kærandi upplýsti nefndina daginn eftir að ekki væru gerðar frekari athugasemdir.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem snúa að uppsögn sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Ákvörðun sveitarfélagsins er byggð á því að gögnin falli undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og verði ekki afhent. Ákvæðið hljóðar svo:
Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.
Í athugasemdum við 7. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, til dæmis mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frádrætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um aukastörf, og enn fremur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfslokum.
Þá telur sveitarfélagið enn fremur að gögnin séu ekki þess eðlis að 3. mgr. 7. gr. upplýsingalaga eigi við um þau. Í 3. mgr. er mælt fyrir um að heimilt sé að veita upplýsingar um viðurlög í starfi sem æðstu stjórnendur hafa sætt, þar á meðal vegna áminninga og brottvísana, enda séu ekki liðin meira en fjögur ár frá þeirri ákvörðun sem um ræðir. Í athugasemdum með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að ekki þyki rétt að undanskilja alfarið aðgang almennings að slíkum upplýsingum, enda hvíli á stjórnendum opinberra stofnana ríkari skyldur en almennt gildir um aðra starfsmenn slíkra stofnana. Vega þurfi og meta í hverju tilfelli hvort vegi þyngra hagsmunir almennings af vitneskju um slík viðurlög eða hagsmunir viðkomandi starfsmanna af því að trúnaður ríki um slíkt.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir gögnin sem Þingeyjarsveit afmarkaði beiðni kæranda við. Þau eru annars vegar bókun af fundi sveitarstjórnar, dags. 25. september 2025, þar sem ákvörðun um uppsögn var tekin, og hins vegar ráðningarsamningur Þingeyjarsveitar og sveitarstjórans sem gerður var árið 2023.
Ljóst er að gögn í málum einstakra starfsmanna sem varða uppsögn úr starfi teljast varða starfssambandið í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Nefndin telur að bókun af fundi sveitarstjórnar þar sem ákvörðun var tekin um uppsögn sveitarstjóra Þingeyjarsveitar sé gagn í slíku máli og að þannig hafi verið heimilt að takmarka aðgang kæranda að því. Sveitarstjóri í sveitarfélagi telst til æðstu stjórnenda í skilningi 3. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Hins vegar telur úrskurðarnefndin að framangreint gagn hafi ekki að geyma upplýsingar af því tagi sem 3. mgr. tekur til.
Að því er varðar ráðningarsamning Þingeyjarsveitar og sveitarstjórans telur nefndin að hann teljist einnig gagn í máli sem varðar starfssambandið í skilningi framangreinds ákvæðis, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar nr. 1311/2025. Úrskurðarnefndin bendir á að kæranda er unnt að biðja Þingeyjarsveit sérstaklega um upplýsingar sem getið er um í 2., 4. og 5. tölul. 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Þingeyjarsveitar staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Þingeyjarsveitar, dags. 14. október 2025, um að synja beiðni kæranda, […], fréttamanni hjá Ríkisútvarpinu, um aðgang að gögnum um uppsögn sveitarstjóra, er staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir