21 nóvember 2025

/

1319/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

Hinn 21. nóvember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1319/2025 í máli ÚNU 25110006.
 

Beiðni um endurupptöku

Með erindi, dags. 11. nóvember 2025, fór […] fram á að úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál tæki upp að nýju mál ÚNU 25030002 sem lauk með úrskurði nefndar­innar nr. 1305/2025, dags. 24. október 2025.
 
Með umræddum úrskurði staðfesti úrskurðarnefndin ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 24. febrúar 2025, að synja beiðni kæranda um aðgang að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2025 eins og hún leit út þegar hún var samþykkt á fundi stjórnar félagsins, 16. október 2024, þar sem sú útgáfa skjalsins var samkvæmt félaginu ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga.
 
Í endurupptökubeiðni kæranda spyr kærandi í fyrsta lagi hvort gagnið hafi verið fyrirliggjandi þegar beiðni hans var sett fram, í öðru lagi hvort fjárhagsáætlanir opinberra hlutafélaga séu opinber gögn sem ber að varðveita, í þriðja lagi hvort samþykkja þyrfti aukin útgjöld með uppfærðri fjár­hags­áætlun á fundi stjórnar félagsins ef slíkar aðstæður væru uppi, í fjórða lagi hve langur varðveislutími gagna frá opinberum hlutafélögum sé og loks hvort úrskurðarnefndin telji Vestmanna­eyja­ferjuna Herjólf ohf. hafa brotið lög. Með vísan til þessara spurninga óskaði kærandi eftir endur­upptöku.
 

Niðurstaða

Eins og fram hefur komið kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. 1305/2025, dags. 24. október 2025, í máli ÚNU 25030002. Úrskurðurinn var kveðinn upp í tilefni af kæru Odds Júlíussonar, sem nú hefur óskað endurupptöku úrskurðarins. Með úrskurðinum staðfesti úr­skurð­arnefndin ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 24. febrúar 2025, að synja beiðni kæranda um aðgang að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2025.
 
Í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er mælt fyrir um endurupptöku stjórnsýslumáls:
 

Eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef:
 

  1. ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
  2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

 
Eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun samkvæmt 1. tölul. 1 mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum þeim sem ákvörð­un sam­kvæmt 2.  tölul.  1. mgr. var byggð á, verður beiðni um endurupptöku máls þó ekki tekin til greina, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verður þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrr­greindum tímamörkum nema veigamiklar ástæður mæli með því.

 
Ekkert bendir til að úrskurður nefndarinnar hafi byggst á röngum upplýsingum um máls­atvik eða að atvik hafi breyst frá því að ákvörðun var tekin. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál eru skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga fyrir endurupptöku máls því ekki uppfyllt.
 
Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Að mati nefndarinnar veltur skylda til slíkrar endurupptöku, í því tilviki sem hér um ræðir, á því að rökstuddar vísbendingar séu um að á úrskurði hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Úrskurðarnefndin telur röksemdir kær­anda ekki leiða í ljós slíkar vísbendingar.
 
Vegna athugasemda í endurupptökubeiðni sem lúta að varðveislu gagna skal bent á að lögaðilar sem eru 51% eða meira í eigu hins opinbera falla undir reglur laga um opin­ber skjalasöfn, nr. 77/2014, meðal annars um varðveislu á gögnum, sbr. 2. mgr. 14. gr. og V. kafla þeirra laga. Samkvæmt 3. tölul. 8. gr. sömu laga setur Þjóðskjalasafn Íslands reglur um varðveislu og förgun skjala. Loks hefur viðeigandi skjala­safn, héraðsskjalasafn eða Þjóðskjalasafnið, eftirlit með framkvæmd afhendingarskyldra aðila á lög­unum, sbr. 4. tölul. 13. gr. laganna. Valdsvið úrskurðarnefndarinnar er hins vegar afmarkað við að úrskurða um rétt til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum.
 
Með vísan til framangreinds er hafnað beiðni um endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1305/2025 frá 24. október 2025.
 

Úrskurðarorð

Beiðni […], dags. 11. nóvember 2025, um endurupptöku máls ÚNU 25030006 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1305/2025, frá 24. október 2025, er hafnað.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir