21 nóvember 2025

/

Mál nr. 37/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 3. október 2025
í máli nr. 37/2025:
Rými - Ofnasmiðjan ehf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
Þjóðskjalasafni Íslands og
Ísold ehf.

Lykilorð
Ákvörðun um val tilboðs afturkölluð. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun.

Útdráttur
Varnaraðilar buðu út uppsetningu á hillukerfi fyrir varnaraðila Þ. Þar sem varnaraðilar höfðu fallið frá ákvörðun um að velja tilboð Í ehf. í útboðinu taldi kærunefnd útboðsmála að kærandi hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn um kröfu að sú ákvörðun yrði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Hið sama ætti við um kröfu kæranda um að samningsgerð yrði stöðvuð þar til niðurstaða kæru lægi fyrir.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. júlí 2025 kærði Rými - Ofnasmiðjan ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Þjóðskjalasafns Íslands (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23086 auðkennt „Hillukerfi fyrir Þjóðskjalasafn Íslands“.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála ógildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Ísold ehf. í hinu kærða útboði. Þá krefst kærandi þess til vara að samningsgerð verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunnar liggur fyrir.

Varnaraðilum og Ísold ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að tjá sig. Varnaraðilar sendu tvo tölvupósta á nefndina 29. júlí 2025 með tilteknum upplýsingum. Ísold ehf. lagði fram athugasemdir 5. ágúst 2025 og krefst þess að stöðvunarkröfu kæranda verði hafnað. Varnaraðilar krefjast þess í greinargerð sinni 8. ágúst 2025 að kærunefnd útboðsmála aflétti sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar og hafni öðrum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði.

Með erindi 10. ágúst 2025 til varnaraðila óskaði kærunefnd útboðsmála eftir afriti af öllum þeim gögnum sem voru meðfylgjandi tilboði Ísoldar ehf. auk annarra gagna sem félagið kynni að hafa lagt fram við meðferð útboðsins. Varnaraðilar svöruðu erindinu degi síðar og afhentu umbeðin gögn.

Með erindi 12. ágúst 2025 til varnaraðila afhenti kærunefnd útboðsmála þeim afrit af athugasemdum Ísoldar ehf. í málinu og óskaði meðal annars eftir upplýsingum hvort samningur milli þess félags og Spesialmontesje AS um uppsetningu á hillukerfinu hefði verið meðfylgjandi tilboðsgögnum Ísoldar ehf. eða hugsanlega afhentur síðar við meðferð útboðsins. Varnaraðilar svöruðu erindinu degi síðar og lögðu fram samning milli félaganna auk annarra gagna.

Með ákvörðun 3. september 2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboðinu.

Varnaraðilar sendu bréf 11. september 2025 til Ísoldar ehf. Í bréfinu var tilkynnt að val á tilboði fyrirtækisins væri afturkallað í ljósi ákvörðunar kærunefndar útboðsmála. Veigamiklar ástæður væru fyrir ákvörðun um að afturkalla val tilboða þar sem fyrri ákvörðun væri talin ógildanleg. Bjóðendum yrði tilkynnt innan skamms um nýja ákvörðun um val tilboða í samræmi við lög nr. 120/2016. Þá var í niðurlagi bréfsins leiðbeint um kæruheimild og kærufrest. Með tilkynningu til bjóðenda sama dag tilkynntu varnaraðila að þeir hefðu ákveðið að velja tilboð kæranda í útboðinu. Í tilkynningu komu fram upplýsingar um biðtíma samningsgerðar, kærufrest og kæruheimild.

Varnaraðilar sendu tölvupóst til nefndarinnar 12. september 2025, upplýstu um framangreind atriði og tóku fram að þeir myndu ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda eða Ísold ehf.

Með kæru 19. september 2025 kærði Ísold ehf. ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð kæranda og er það mál rekið fyrir nefndinni undir málsnúmerinu 43/2025.

Niðurstaða

Eins og að framan greinir hafa varnaraðilar fallið frá ákvörðun sinni um að velja tilboð Ísoldar ehf. í hinu kærða útboði. Verður því að telja að kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni samkvæmt 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup af því að leyst verði úr kröfu hans um að sú ákvörðun verði ógilt. Hið sama á við um kröfu kæranda um að samningsgerð verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunnar liggur fyrir. Samkvæmt þessu verður öllum kröfum kæranda vísað frá kærunefnd útboðsmála.

Úrskurðarorð:

Öllum kröfum kæranda, Rými – Ofnasmiðjan ehf., í máli þessu er vísað frá kærunefnd útboðsmála.


Reykjavík, 3. október 2025.


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir