27 nóvember 2025

/

Mál nr. 549/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 549/2025

Fimmtudaginn 27. nóvember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsett sama dag, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 22. apríl 2024 og var umsóknin samþykkt 16. maí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um skráningu á launagreiðandaskrá. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 1.252.778 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. október 2025, var fjárhæð ofgreiddra atvinnuleysisbóta lækkuð í 583.806 kr., að meðtöldu 15% álagi, en að öðru leyti var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. september 2025. Með bréfi, dags. 3. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið atvinnulaus á þeim tíma sem endurkrafa Vinnumálastofnunar lúti að en hann hafi greitt sér úr séreignalífeyrissjóði til að ná endum saman. Að sögn kæranda standi atvinnuleysisbætur engan vegin undir framfærslu eða afborgunum af lánum. Kærandi hafi ekki áttað sig á því að þetta yrði reiknað sem laun. Að mati kæranda séu þessi viðbrögð Vinnumálastofnunar mjög harkaleg og óski hann þess að ákvörðunin verði endurskoðuð og milduð eða lækkuð á þann hátt svo hann ráði við.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 22. apríl 2024. Með erindi, dags. 16. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi á tímabilinu 1. maí til 19. september 2024 þegið greiðslur en þann 20. september 2024 hafi umsókn kæranda verið afskráð þar sem kærandi hafi farið í vinnu þann dag. Kærandi hafi sætt viðurlögum þann 24. september 2024 vegna höfnunar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði þann 4. september 2024.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í ágúst 2025 hafi kæranda verið sent erindi, dags. 15. ágúst 2025, þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að koma að skýringum vegna reiknaðs endurgjalds í júlí 2024. Auk skýringa hafi kærandi verið beðinn um að skila gögnum er vörðuðu þessar greiðslur. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning frá kæranda um að hann hefði hafið rekstur á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni.

Skýringar hafi borist frá kæranda þann 18. ágúst 2025, svohljóðandi:

„Ég hef fengið bréf frá ykkur varðandi ótilgreindar tekjur 7/2024 á atvinnuleysisskrá.

Þetta er þannig komið til að í samvinnu við endurskoðanda minn þá gef ég alltaf upp fasta tölu við uppgjör hvers mánaðar samkvæmt reglum skattstjóra og verktaka vinnu. Ég hef staðið í þeirri trú að atvinnuleysisbætur væru túlkaðar sem tekjur/laun líka? En etv er það ekki svo?

Þó ég sé atvinnulaus þá skila ég alltaf staðgreiðsluskýrslum um 15. Hvers mánaðar með sömu tölu. Þó svo engar tekjur hafi verið. Þar geta mistökin legið.

Síðan er allt gert upp við árs uppgjör og skattframtal.

Vona að þetta útskýri málið og dugi til, en að öðrum kosti vinsamlega ráðleggið næstu skref, eða hvort þið viljið afrit af skattframtali.“

Með erindi, dags. 2. september 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði ekki tilkynnt um skráningu á launagreiðandaskrá og um reiknað endurgjald á tímabilinu 1. maí til 19. september 2024 væri greiðslum frestað í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi. Þá hafi kæranda verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma. Samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar í máli kæranda hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals að fjárhæð 1.089.372 kr. sem yrðu innheimtar með álagi. Því næmi heildarskuld vegna ákvörðun stofnunarinnar 1.252.778 kr.

Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þar sem um ítrekunaráhrif hafi verið að ræða vegna viðurlagaákvörðunar frá 24. september 2024 hafi kæranda verið gert að sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. september 2025. Kærandi segi þar að hann hafi verið að taka sér greiðslur úr séreignasjóði til að ná endum saman og fari fram á endurskoðun ákvörðunar Vinnumálastofnunar, hún verði „milduð“ eða lækkuð á þann hátt svo hann ráði við.

Við nánari skoðun á máli kæranda verði ekki ráðið að skýringar hans frá 18. ágúst 2025, sem hafi verið lagðar til grundvallar ákvörðun um endurkröfu alls tímabilsins á árinu 2024, hafi verið með öllu réttar og þá rangt að byggja ákvörðun stofnunarinnar á þeim upplýsingum. Mál kæranda hafi verið endurskoðað og í ljós hafi komið að kærandi hafi ekki verið með reiknað endurgjald í maí og júní 2024 eins og haldið hafi verið fram. Þeir mánuðir hafi verið leiðréttir og kæranda sent bréf, dags. 2. október 2025. Heildarskuld kæranda hafi að lokinni leiðréttingu numið 583.806 kr., að meðtöldu álagi. Ekki hafi þótt tilefni til þess að hreyfa við ákvörðun um viðurlög, enda réttilega tekin að mati stofnunarinnar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysisbóta og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Mál þetta varði í fyrsta lagi almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafla laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreiningu á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá teljist í virkri atvinnuleit sem sé meðal annars að hafa frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við. Þá sé tilgreint í 2. mgr. 14. gr. að það beri að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.

Af fyrirliggjandi gögnum málsins sé ljóst að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun að fyrra bragði um tilfallandi störf eða tekjur á árinu 2024. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hefði frá júlí 2024 skráð skilagreinar til Skattsins um tekjur upp á 300.000 kr. vegna verktakavinnu. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hann hafi aflað sér.

Með umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, dags. 16. maí 2024, hafi komið fram að kærandi hefði verið í tímabundinni rekstrarstöðvun. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt með það fyrir augum og honum hafi verið greiddar óskertar atvinnuleysisbætur frá 1. maí 2024, eða frá þeim degi sem kærandi kvaðst geta hafið störf.

Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna skuli sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Jafnframt skuli hann endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Því verði ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að kærandi hafi í júlí, ágúst og september 2024 verið að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta og hafi, eðli málsins samkvæmt, fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna óuppgefna tekna. Því hafi myndast skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 507.658 kr., sem innheimtar séu með álagi. Heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar nemi 583.806 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga í þrjá mánuði og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með skráningu á launagreiðandaskrá og með reiknað endurgjald í júlí, ágúst og september 2024 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í ágúst 2025.

Þann 16. maí 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um skráningu á launagreiðandaskrá og reiknað endurgjald til sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 24. september 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna, eða þriggja mánaða viðurlaga við ákvörðun Vinnumálastofnunar í september 2025.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 1.252.778 kr., að meðtöldu 15% álagi. Sú fjárhæð var lækkuð í 583.806 kr. í kjölfar endurskoðunar Vinnumálastofnunar í október 2025.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar fyrir júlí, ágúst og september 2024 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39 sömu laga, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir