27 nóvember 2025

/

Mál nr. 560/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 560/2025

Fimmtudaginn 27. nóvember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. október 2024 og var umsóknin samþykkt 28. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna ótilkynntrar dvalar erlendis. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 231.082 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. september 2025. Með bréfi, dags. 11. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 30. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. nóvember 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 9. nóvember 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa starfað hjá B í yfir fimm ár sem verslunarmaður og síðar sem vaktstjóri. Hún hafi á þessu tímabili ekki tekið frí, hvorki sumarleyfi né önnur leyfi og hafi aðeins verið frá vinnu í kjölfar gallblöðruaðgerðar. Hún hafi tekið að sér alla aukavinnu sem hafi boðist og hafi ávallt verið reiðubúin að mæta til starfa þegar vantaði á vaktir. Í febrúar 2024 hafi kærandi fengið uppsagnarbréf en starfað áfram þar til í maí sama ár. Að sögn kæranda hafi hún fengið áframhaldandi ráðningu vegna aukavinnu í C með aðstoð VR og starfað þar til lok september 2024. Að því loknu hafi hún sótt um atvinnuleysisbætur.

Kærandi tekur fram að hún og maki hennar hafi lengi reynt að eignast barn án árangurs. Þau hafi fyrir þremur árum leitað til Livio en fengið synjun á aðstoð vegna aldurs. Þau hafi því ákveðið að leita til stofu í heimalandi kæranda og farið þangað 10. júní 2024. Meðferðin hafi gengið vel og kærandi sé nú komin um 10 vikur á leið. Kærandi viðurkenni að hafa gleymt að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína en ekki hafi verið um skemmtiferð að ræða. Þegar hún hafi tilkynnt stofnuninni um dvöl sína erlendis hefðu greiðslur atvinnuleysisbóta verið stöðvaðar og hún hafi lent í skuld. Samkvæmt kæranda hafi hún fengið greiðslu 30. júní 2024 en engar greiðslur næstu mánuði. Hún telji að ákvörðun um stöðvun greiðslna sé ósanngjörn í ljósi aðstæðna þar sem ferðin hafi eingöngu verið vegna meðferðar og staðið yfir frá 10. júní til 23. júlí 2025.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 7. október 2024. Með erindi, dags. 28. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 24. júní 2025 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund. Kærandi hafi svarað boðun með tölvupósti samdægurs og segi í svari kæranda að hún sé nýkomin til D og geti því ekki mætt á fundinn. Með erindi, dags. 8. júlí 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir gögnum um ferðir kæranda erlendis og skýringum á því hvers vegna hún hefði ekki tilkynnt um ferð sína erlendis til Vinnumálastofnunar. Þann 9. júlí 2025 hafi borist gögn og svar frá kæranda þar sem segi að hún og eiginmaður hennar hafi þurft að „skreppa“ til heimalands hennar frá 10. júní til 22. júlí 2025 vegna frjósemismeðferðar hennar en kærandi hafi fengið synjanir um slíka meðferðir hérlendis vegna aldurs. Samhliða svari sínu hafi kærandi skilað flugfarseðlum sem sýni að eiginmaður kæranda hafi farið af landi brott 10. júní 2025 og hafi átt flug aftur til landsins þann 30. júní 2025. Engin flugfarseðill hafi borist vegna kæranda sjálfs. Þá hafi engin tilkynning legið fyrir af hálfu kæranda um umrædda ferð erlendis.

Með erindi, dags. 18. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hún hefði látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið gert að endurgreiða 231.082 kr. vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á því tímabili sem hún hafi verið erlendis og hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta.

Kæranda hafi einnig verið sent bréf þann 18. júlí 2025 þar sem henni hafi verið tilkynnt um stöðvun frekari greiðslna atvinnuleysisbóta henni til handa á grundvelli þess að hún væri ekki staðsett eða búsett á Íslandi. Sú ákvörðun hafi verið afturkölluð þann 8. ágúst 2025. Afturköllun á þeirri ákvörðun hafi ekki áhrif á biðtíma sem kæranda hafi verið gert að sæta vegna ferðar hennar erlendis, enda hafi hún ekki tilkynnt um ferð sína til Vinnumálastofnunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Sú ákvörðun Vinnumálastofnunar sem liggi til grundvallar málskoti til úrskurðarnefndar sé stöðvun greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda vegna ótilkynntrar dvalar erlendis í júní og júlí 2024.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi m.a. að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi samþykkt framangreinda skilmála þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 7. október 2024. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi skv. 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða, en þar segi orðrétt:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. h-lið 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi dvalið erlendis frá 10. júní og hafi að eigin sögn komið heim annað hvort 22. eða 23. júlí 2025. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð sína líkt og henni hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi hins vegar staðfest atvinnuleit sína þann 20. júní 2025 og hafi þegið óskertar greiðslur fyrir júnímánuð 2025.

Í skýringum sínum til Vinnumálastofnun greini kærandi frá því að henni hafi láðst að tilkynna um ferð sína erlendis þar sem hún hafi verið að sækja sér læknismeðferð erlendis. Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Í því samhengi sé vísað til þess að kærandi hafi ítrekað lýst því að undirbúningur ferðarinnar hefði verið umtalsverður og miklum vandkvæðum háður, en þrátt fyrir ætlan kæranda um að láta vita af ferðinni hafi það farist fyrir. Ekki sé til að dreifa tilkynningu af hálfu kæranda um þá ferð erlendis fyrr en eftir að henni hafi verið gert að mæta í vinnumarkaðsúrræði á vegum Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi brugðist skyldum sínum, enda hafi hún ekki tilkynnti um atvik sem höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Að auki beri kæranda að endurgreiða stofnuninni að hluta þær atvinnuleysistryggingar sem hún hafi fengið greiddar í júní, enda hafi hún ekki uppfyllt skilyrði c. liðar 1. mgr. 13. gr. á þeim tíma sem hún hafi verið erlendis.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi. því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni

Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hún skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt að kærandi skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar á meðan hún hafi dvalið erlendis.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá beri kæranda einnig að endurgreiða stofnuninni þá ofgreiðslu sem hafi myndast vegna júní 2025, samtals að fjárhæð 231.082 kr., að meðtöldu álagi.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi af landi brott 10. júní 2025 en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um þá ferð sína fyrr en 24. júní 2025, eftir að hafa fengið boð á fund hjá stofnuninni.

Þann 7. október 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem meðal annars var tilgreint að ef kærandi færi til útlanda þyrfti hún að tilkynna það fyrir fram inn á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna ferðar sinnar. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreinda ferð. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 231.082 kr., að meðtöldu 15% álagi fyrir tímabilið 10. júní til 22. júlí 2025.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þegar kærandi var stödd erlendis á tímabilinu 10. júní til 22. júlí 2025 uppfyllti hún ekki skilyrði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um að vera stödd hér á landi. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir