27 nóvember 2025

/

Mál nr. 574/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 574/2025

Fimmtudaginn 27. nóvember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. júní 2024 og var umsóknin samþykkt 8. júlí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði hafnað starfi. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá henni. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. ágúst 2025, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. september 2025. Með bréfi, dags. 24. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi byrjað hjá Virk nokkrum dögum eftir að henni hafi verið gert að sæta biðtíma. Kærandi greinir frá því að hún eigi ekki fyrir mat.

Með kæru fylgdu skýringar kæranda til Vinnumálastofnunar þar sem fram kemur að hún hafi í viðtali við starfsmann Vinnumálastofnunar bent á að hún ætti ekki bíl og gæti því ekki ferðast til Garðabæjar. Hún hafi beðið stofnunina um að senda ekki ferilskrá sína á það svæði. Á fundinum hafi kærandi jafnframt nefnt að hún hefði óskað eftir því að láta flytja sig til Virk vegna þunglyndis, en hún hafi þegar fengið tíma hjá þeim.

Varðandi samgöngur þá sé um fimmtán mínútna gangur fyrir kæranda að næstu strætóstoppistöð, sem sé langt frá öllum öðrum samgöngumiðstöðvum. Að sögn kæranda sé strætó alræmdur fyrir að vera seinn eða koma ekki yfir skóla- og vetrartímann. Til að komast til Garðabæjar þurfi kærandi fyrst að taka strætó í Skeifuna. Þar þurfi hún að fara yfir götu til að skipta um vagn sem sé þá nýfarin og næsti vagn komi ekki fyrr en eftir 30 mínútur. Kærandi bendi á að hvor leið krefjist þess að hún skipti tvisvar til þrisvar um strætisvagn. Kærandi tekur fram að hún hafi áður reynt að vinna fyrir fyrirtæki í Garðabæ. Þá hafi yfirmaður hennar þurft að finna lausn á því hvernig hann gæti fengið aðra starfsmenn til að finna kæranda eða hún hafi misst úr vinnustundir vegna samgönguerfiðleika.

Kærandi geti ekki tryggt það að hún verði komin til vinnu klukkan átta á hverjum degi. Að mati kæranda yrði það dauðadómur fyrir hana að sæta biðtíma þar sem hún sé einstæð og hafi ekkert stuðningsnet. Kærandi þurfi að standa straum af bæði sköttum og meðlagi. Þá sé dóttir hennar að byrja í skóla sem hafi í för með sér aukin útgjöld. Kærandi óski eftir skilningi og aðstoð þar sem hún eigi nú ekki fyrir mat eftir að hafa greitt húsaleigu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 18. júní 2024. Umsókn hennar hafi verið samþykkt 8. júlí 2024.

Í maí 2025 hafi ferilskrá kæranda verið miðlað til fyrirtækisins B vegna starfs sem hafi verið auglýst hjá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. Um hafi verið að ræða starf við almenn þrif á heimilum og í fyrirtækjum. Engar sérstakar hæfnikröfur hafi verið gerðar til umsækjanda umfram reynslu af þrifum, hreint sakavottorð og þjónustulund. Þann 23. júní 2025 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning um að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu.

Með erindi, dags. 22. júlí 2025, hafi verið óskað eftir skýringum kæranda á því hvers vegna hún hefði hafnað starfi hjá B. Þann 24. júlí 2025 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda þess efnis að hún hefði ekki hafnað atvinnutilboði. Kærandi hafi sagst búa því sem næst í Mosfellsbæ og þar sem starfið væri í Garðabæ væri henni ómögulegt að mæta klukkan átta á morgnana. Með erindi, dags. 29. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á atvinnutilboði.

Kærandi hafi skilað frekari gögnum og skýringum þann 8. ágúst 2025 og því hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju. Meðal gagna hafi verið skjáskot úr síma sem hafi átt að sýna ferðatíma frá heimili kæranda að vinnustað. Skjáskotin sýni að kærandi gæti ekki mætt fyrir klukkan átta á morgnana en forsendur að baki þeim niðurstöðum hafi ekki fylgt með gögnum kæranda. Þá segi kærandi meðal annars í skýringum að hún væri að bíða þess að komast að hjá Virk vegna þunglyndis. Vinnumálastofnun hafi staðfest ákvörðun sína frá 29. júlí 2025. Kæranda hafi verið tilkynnt um þá ákvörðun með bréfi, dags. 14. ágúst 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í tímabundnu atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi til laga sé tekið fram að ekki skipti máli hvort það starf sem bjóðist atvinnuleitanda sé fullt starf, hlutastarf eða vaktavinna, þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þá sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr., hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúin að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðum þess að hún hefði hafnað atvinnutilboði lúti einkum að því að hún búi fjarri vinnustað og að henni sé ómögulegt að mæta á réttum tíma vegna leiðakerfis strætó. Í skýringum kæranda komi einnig fram að hún þjáist af þunglyndi og sé að leita sér hjálpar hjá Virk vegna þess.

Ekki verði fallist á að atvinnuleitandi geti takmarkað atvinnuleit sína við vinnustaði í nánasta umhverfi við heimili viðkomandi. Vinnumálastofnun hafni alfarið þeim skýringum að almenningssamgöngur hamli því að einstaklingur sem búi í Grafarvogi geti sinnt starfi hjá fyrirtæki sem sé með starfsstöð í Garðabæ. Ekki sé óvanalegt að fólk starfi í einu sveitarfélagi og búi í öðru. Við skoðun á máli kæranda hafi meðal annars verið settar inn forsendur í leitarvél straeto.is sem geri ráð fyrir því að sá sem ferðist frá lögheimili kæranda til starfstöðvar fyrirtækisins B væri kominn á áfangastað klukkan átta hið síðasta, á virkum degi og hafi sú leit skilað öðrum niðurstöðum en kærandi hafi látið fylgja með í skýringum sínum þann 8. ágúst 2025.

Það sé því mat Vinnumálastofnunar að framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eins og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá felist meðal annars í virkri atvinnuleit samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B og hafi ekki haft þar að baki gildar ástæður. Beri kæranda því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 14. maí 2025 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 23. júní 2025 að kærandi hefði hafnað starfinu. Kærandi hefur vísað til þess að hún búi fjarri vinnustað og að henni sé ómögulegt að mæta á réttum tíma vegna leiðakerfis strætó. Þá kveðst kærandi einnig þjást af þunglyndi og vera leita sér hjálpar hjá Virk vegna þess.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit en samkvæmt c. lið 1. mgr. 14. gr. fellur þar undir að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir