27 nóvember 2025
/
Nr. 899/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr.
í
stjórnsýslumáli nr.
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Kærandi krefst þess að hinni kærðu ákvörðun verði hrundið og að honum verði veitt ótímabundið dvalarleyfi en til vara að honum verði veitt tímabundið dvalarleyfi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi fékk fyrst útgefið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar fyrir börn, sbr. 71. gr. laga um útlendinga, 7. desember 2021 með gildistíma til 4. febrúar 2022. Leyfið hefur verið endurnýjað einu sinni, síðast með gildistíma til 24. janúar 2024. Hinn 3. apríl 2024 lagði kærandi fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. júlí 2025, var umsókn kæranda synjað. Í ákvörðuninni kom fram að kærandi hefði ekki dvalið á landinu á grundvelli dvalarleyfis sem geti verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis í fjögur ár, sbr. 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs og kærð til kærunefndar útlendingamála 29. júlí 2025. Samhliða kæru lagði kærandi fram greinargerð en frekari gögn voru lögð fram 30. júlí og 12. ágúst 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi fengið fjölskyldusameiningu við móður sína sem hafi verið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara. Hjúskap þeirra hafi verið slitið og búi kærandi nú ásamt móður og systur hjá móðursystur kæranda en á heimilinu búi einnig maki móðursystur kæranda og börn þeirra. Fram kemur að fyrrverandi maki móður kæranda hafi annast samskipti við Útlendingastofnun fyrir hönd fjölskyldunnar en hann ekki sinnt því að sækja um endurnýjun dvalarleyfa fyrir þeirra hönd. Verði kæranda gert að snúa til Brasilíu muni hann enda á götunni því engin ættmenni geti annast hann þar í landi. Að mati kæranda hljóti það að vera misskilningur að Útlendingastofnun telji að slíta eigi fjölskyldunni í sundur sem hafi náð góðum árangri í íslensku samfélagi. Sé það ekki í samræmi við ákvæði 58. gr. laga um útlendinga, einkum a-, og d-lið.
Fram kemur að kærandi hafi aðlagast íslensku samfélagi vel og gangi m.a. í skóla. Að sögn kæranda sé móðir hans með ótímabundið dvalarleyfi í gildi en kærandi eigi auk þess yngri systur sem sé íslenskur ríkisborgari. Þá hafi enginn af ættingjum kæranda hérlendis komist í kast við lögin né þegið opinbera styrki. Byggir kærandi á því að fjölskyldan eigi rétt á fjölskyldusameiningu á grundvelli 3. mgr. 58. gr. laga um útlendinga auk þess sem það væri rangt að sundra fjölskyldunni.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Um nánari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis er m.a. mælt fyrir um í a-e-liðum 1. mgr. 58. gr. laganna.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi samfellt dvalarleyfi í gildi frá 7. desember 2021 til og með 24. janúar 2024. Hinn 3. apríl 2024 sótti kærandi um ótímabundið dvalarleyfi en umsókn hans var synjað með hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Með vísan til forsendna Útlendingastofnunar og gagna málsins að öðru leyti er ljóst að kærandi hefur ekki dvalið samfellt hér á landi síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem geti verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Þá fellur tilvik kæranda bersýnilega ekki að ákvæðum 3. mgr. 58. gr. sömu laga sem heimila útgáfu ótímabundins dvalarleyfis án þess að skilyrði um fyrri dvöl skv. 1. mgr. séu uppfyllt.
Varakrafa kæranda lýtur að útgáfu tímabundins dvalarleyfis. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur kærandi sótt um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar fyrir börn, sbr. 71. gr. laga um útlendinga, og er sú umsókn til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun hefur kærandi heimild til dvalar á meðan umsóknin er til meðferðar. Með hliðsjón af 7. gr. laga um útlendinga kemur umsókn kæranda um tímabundið dvalarleyfi ekki til skoðunar kærunefndar á þessu stigi málsins. Er varakröfu kæranda því hafnað.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.