03 desember 2025

/

Nr. 906/2025 Úrskurður

Hinn 3. desember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 906/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25070226

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 21. júlí 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 20. júlí 2025, um frávísun frá Íslandi.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 20. júlí 2025, með flugi frá Mílanó, Ítalíu. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsett sama dag, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að tilgangi dvalar.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 31. júlí 2025, hafði lögregla afskipti af kæranda við almennt eftirlit á Keflavíkurflugvelli. Vegna tungumálaörðugleika hafi kæranda verið boðið í aðstöðu lögreglu á Keflavíkurflugvelli til frekara viðtals. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga.

Aðspurður um tilgang dvalar kvaðst kærandi ætla að dvelja í þrjá daga til þess að skoða eldgos. Hann hafi fylgst með því í fréttum og orðið heillaður. Hann hafi ekki haft aðrar ferðaáætlanir en kynni þó að versla sér föt. Kærandi kvaðst eiga bókað flug frá landinu 23. júlí 2025 en gat ekki lagt fram haldbæra bókun þess efnis. Þá hafi kærandi framvísað gistibókun en aðspurður um bókunina hafi kærandi hvorki vitað nafn gististaðarins né hvar hann væri til húsa. Kærandi hafi framvísað 1.000 evrum í reiðufé og kvaðst ekki vera með pening inni á bankabók. Aðspurður hafi kærandi aldrei komið til Íslands áður auk þess sem hann þekkti engan hér á landi. Þá hafi kærandi ætlað að ferðast með leigubifreiðum á milli staða. Kærandi gerði lögreglu grein fyrir atvinnu sinni og tekjum í heimaríki.

Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Lagði lögregla til grundvallar að tilgangur dvalar kæranda væri óljós.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 21. júlí 2025. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. júlí 2025, var kæranda veittur frestur til 5. ágúst 2025 til þess að leggja fram greinargerð vegna málsins. Hinn 23. júlí 2025 var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða önnur fylgigögn vegna málsins. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 17. nóvember 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða aðrar röksemdir vegna málsins.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 20. júlí 2025, byggir á c- og d-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi sem ferðamaður í þrjá daga frá 21. til 23. júlí 2025. Um tilgang dvalar kvaðst kærandi ætla að skoða eldgosið en hefði að öðru leyti ekki fastmótaða ferðaáætlun en myndi hugsanlega versla sér föt. Aðspurður hafi kærandi upplýst lögreglu um að hann ætti flug frá landinu 23. júlí 2025. Upplýsingarnar hafi verið skrifaðar á blað og má ráða af skýrslunni að kærandi hafi hvorki lagt fram staðfestingu flugbókunar né farmiða úr landi að nýju. Þá hafi kærandi ekki vitað með vissu hvenær umrætt flug færi í loftið. Meðal meginskilyrða 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er framlagning gagna varðandi heimferð, s.s. með framlagningu farmiða. Kærandi hafi ekki getað sýnt fram á framangreint og er skilyrðum reglugerðarákvæðisins því ekki fullnægt. Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi 1.000 evrur í reiðufé við komu til landsins. Kærandi kvaðst ekki hafa fjármuni á bankabók og bar ekki fyrir sig að hafa ferðatékka eða greiðslukort undir höndum. Nægileg fjárráð þurfa að taka mið af lengd dvalar en samkvæmt niðurlagi d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þurfa fjárráðin einnig að nægja fyrir heimferð. Líkt og að framan greinir sýndi kærandi ekki fram á farmiða úr landi. Er því ekki unnt að slá föstu hversu lengi hann myndi dvelja hér á landi. Að því virtu er lagt til grundvallar að kærandi hafi ekki sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfest.

Athugasemdir við störf lögreglu 

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum tók lögregla hina kærðu ákvörðun 20. júlí 2025 en hún var kærð til kærunefndar 21. júlí 2025. Kærunefnd óskaði eftir afhendingu gagna málsins af hálfu Lögreglustjórans á Suðurnesjum með tölvubréfi, dags. 22. júlí 2025, og lét lögregla nefndinni gögn málsins í té 17. nóvember 2025. Gagnasending lögreglu innihélt skjal, sem nefnt var samantekt, en skjalið er dagsett 31. júlí 2025, og undirritað 4. nóvember 2025.

Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 40/2012 ber stjórnvöldum, við meðferð stjórnsýslumála, að skrá upplýsingar um málsatvik sem veittar eru munnlega eða viðkomandi fær vitneskju um með öðrum hætti ef þær hafa þýðingu fyrir úrlausn máls og er ekki að finna í öðrum gögnum þess. Sama á við um helstu ákvarðanir um meðferð máls og helstu forsendur ákvarðana, enda komi þær ekki fram í öðrum gögnum málsins. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga kemur fram að skráning upplýsinga í samræmi við umrætt lagaákvæði skuli gera eins fljótt og unnt er svo skráning upplýsinganna verði bæði nákvæm og rétt. Þá er haft í huga að oft er ekki fyrirséð á þeim tíma sem upplýsingar koma fram hvort þær hafi þýðingu fyrir málið sem ætti að leiða til þess að meira sé skráð en minna, þó ekki svo langt að það standi nauðsynlegri skilvirkni stjórnsýslunnar fyrir þrifum.

Framangreind skráningarskylda á við án tillits til þess hvort mál hefur sætt kæru til æðra stjórnvalds. Þrátt fyrir þetta verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að farist hafi fyrir að skrá formlega niður þau atvik sem lágu til grundvallar hinni kærðu ákvörðun og að það hafi ekki verið gert fyrr en rúmri viku eftir að ákvörðunin var tekin. Verður því ekki annað séð en að við meðferð lögreglu í máli kæranda hafi skráningarskylda 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga verið vanrækt, enda upplýsingarnar ekki skráðar eins fljótt og unnt var. Er því beint til lögreglu að gæta að framangreindu við meðferð mála um frávísun. Eins og atvikum málsins háttar er annmarkinn þó ekki slíkur að valdi ógildingu ákvörðunarinnar og hefur ekki áhrif á niðurstöðu málsins.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir                                 Vera Dögg Guðmundsdóttir