11 desember 2025

/

Mál nr. 568/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 568/2025
Fimmtudaginn 11. desember 2025

A og B

gegn

C

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.

Með kæru, dags. 8. september 2025, kærðu A og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun C , dags. 27. ágúst 2025, um breytingar á fóstursamningi kærenda við C vegna D.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Stúlkan D er X ára gömul. Móðir stúlkunnar var svipt forsjá hennar með dómi Héraðsdóms E þann 15. júlí 2025. Stúlkan hefur verið í tímabundnu fóstri hjá kærendum frá því í desember 2023.

Þann 27. ágúst 2025 var mál stúlkunnar tekið fyrir á meðferðarfundi starfsmanna. Á þeim fundi samþykktu kærendur að taka stúlkuna í varanlegt fóstur og óskuðu jafnframt eftir því að halda þeim fósturlaunum sem þau hafa fengið fyrir að vera með stúlkuna í tímabundnu fóstri. Beiðni kærenda um umbeðin fósturlaun var hafnað með ákvörðun C.

II. Sjónarmið kæranda

Kærendur krefjast þess að upphaflegt samkomulag um fósturlaun við C haldist þó þau taki stúlkuna í varanlegt fóstur.

Í kæru segir að þegar C hafi beðið kærendur um taka stúlkuna í fóstur hafi þau sett fram kröfu um fósturlaun sem nam níföldum barnalífeyrir fyrir tímabundið fóstur, sem Barnavernd samþykkti.

Nú, tveimur árum síðar, séu kærendur orðin mjög tengd stúlkunni. Stúlkan þekki þau sem mömmu og pabba og sé náin hálfbróður sínum. Barnavernd vilji nú gera varanlegan samning við kærendur, en aðeins með fjórföldum greiðslum og án greiðslu leikskólagjalda. Þetta þýði mikla lækkun, sem sé miklu minni en upphaflega hafi verið samið um og var forsenda þess að þau tóku stúlkuna í tímabundið fóstur.

Kærendur kveðast vera orðin fullorðin og hafi þurft að kaupa stærri bíl þau og búist við kostnaði við breytingar á húsnæði. Að ferðast eða fá pössun fyrir þrjú börn er líka mun dýrara. Því telji þau tillögu barnaverndar ekki nægilega.

Barnavernd upplýsti kærendur aldrei um að greiðslur myndu lækka svona mikið við varanlegt fóstur. Ef upphaflega krafa hafi þótt óviðunandi, hefði átt að gera athugasemd þá. Kærendur hafi samþykkt skammtíma fóstur vegna tengsla barnsins við son þeirra og aukinna greiðslna. Nú þegar skerða eigi greiðslurnar telji kærendur samkomulagið svikið og krefjast kærendur þess sem samið hafi verið um í upphafi.

III. Sjónarmið C

Í greinargerð C kemur fram að kæran snúi að ákvörðun C um greiðslur til kærenda vegna barns sem þau séu með í varanlegu fóstri á vegum C.

Um er að ræða mál stúlku sem lýtur forsjá C eftir að móðir stúlkunnar var svipt forsjá með dómi Héraðsdóms E þann 15. júlí 2025. Málefni stúlkunnar hafi verið til vinnslu hjá Barnavernd með hléum allt frá fæðingu hennar en í samfelldri vinnslu frá því í júlí 2023. Þá hafi stúlkan verið í tímabundnu fóstri hjá kærendum frá því í desember 2023.

Mál stúlkunnar hafi verið bókað á meðferðarfundi starfsmanna þann 27. ágúst 2025 og kemur þar fram að kærendur hafi samþykkt að taka stúlkuna í varanlegt fóstur en kærendur hafa ítrekað rætt það við starfsmenn Barnaverndar á tímabili tímabundins fósturs að þau vildu taka stúlkuna í varanlegt fóstur ef út í það færi. Í upphafi tímabundins fósturs komu kærendur til viðtals við starfsmann þann 14. desember 2023 og sögðust kærendur þá tilbúin til að hafa stúlkuna til lengri tíma ef til þess kæmi. Í viðtali við kærendur þann 27. júní 2024 var rætt um nýjan fóstursamning m.t.t. áframhaldandi vistunar til 31. janúar 2025. Ítrekuðu kærendur þá við starfsmann að vera tilbúin til að taka stúlkuna í varanlegt fóstur ef út í það færi. Þá var einnig rætt við kærendur um að leikskólagreiðslur myndu færast á kærendur.

Í ágúst [2025] hafi verið fundað með kærendum og rætt um að greiðslur í varanlegu fóstri yrðu lægri en höfðu verið í tímabundnu fóstri. Að loknum fundi barst starfsmanni tölvupóstur frá kærendum þar sem óskað var eftir hærri greiðslum, sjá nánar í meðfylgjandi dagál, Fundur með fósturforeldrum, dags. 22. ágúst 2025.

Um greiðslur til fósturforeldra vegna barna í vistun er fjallað um í reglugerð um greiðslur vegna barna í fóstri nr. 858/2013. Í 4. gr. reglugerðarinnar kemur fram að þegar barni sé ráðstafað í fóstur skuli ávallt greiða fósturforeldrum framfærslueyri til að mæta kostnaði vegna daglegrar framfærslu barns. Framfærslueyrir vegna barns í fóstri skal nema þreföldum barnalífeyri vegna barna á aldrinum 0-6 ára sbr. 1. tl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar. Í 5. gr. reglugerðarinnar er fjallað um sérstök fósturlaun sem greidd eru til fósturforeldra vegna barna í tímabundnu fóstri auk framfærslueyri. Í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar sé kveðið á að í algjörum undantekningartilvikum getur Barnavernd ákveðið að greiða fósturlaun vegna barns í varanlegu fóstri þegar sýnt þykir að umönnun barnsins muni verða sérstaklega krefjandi. Slík fósturlaun eru þá tímabundin og skal endurskoða eigi sjaldnar en árlega. Er því ljóst að til þess að fósturlaun séu greidd í varanlegu fóstri þurfa að vera uppi sérstakar aðstæður þar sem umönnun barnsins sé sérstaklega krefjandi og rök þurfa að vera því til staðar.

Í þessu máli sé vandi stúlkunnar ekki þess eðlis að hægt sé að rökstyðja að greidd verði fósturlaun í varanlegu fóstri og er það mat C að engin ástæða sé til að greiða umfram það sem hefur verið bókað í málinu. Í áðurnefndri bókun hafi verið lagt til að greiðslur yrði í varanlegu fóstri þrjú meðlög á mánuði í samræmi við 5. gr. reglugerðarinnar og í samræmi við aldur stúlkunnar sem er nýorðin X ára gömul en reynt var að koma til móts við fósturforeldra með því að greiða fjórða meðlagið til viðbótar tímabundið í eitt ár vegna leikskólagjalda. Þá kom fram að greiðslur yrðu endurskoðaðar að ári liðnu. Er það því mat C að engin rök séu fyrir hærri greiðslum en voru bókaðar á meðferðarfundi þann 27. ágúst 2025 með stúlkunni í varanlegu fóstri umfram það sem kemur fram í reglugerð.

Í ljósi þess sem hefur komið fram og með vísan til áðurnefndrar reglugerðar og gagna málsins er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

IV. Niðurstaða

Kærendur krefjast þess að ákvörðun C um að breyta fóstursamningi kærenda vegna D. Kæruheimild er í niðurlagi 3. mgr. 77. gr. og 51. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Í 3. mgr. 65. gr. barnaverndarlaga segir að markmið fósturs samkvæmt 1. mgr. lagagreinarinnar sé að tryggja barni uppeldi og umönnun innan fjölskyldu svo sem best henti þörfum þess. Barni skuli tryggður góður aðbúnaður hjá fósturforeldrum og þeir skulu sýna fósturbarni umhyggju og nærfærni og leitast við að efla andlegan og líkamlegan þroska þess. Nánar skal kveða á um réttindi og skyldur fósturforeldris í fóstursamningi.

Í 75. gr. barnaverndarlaga er kveðið á um að framfærslu og annan kostnað vegna barns í fóstri. Þar segir að sveitarfélag sem ráðstafar barni í fóstur beri ábyrgð á því að greiða fósturforeldrum framfærslulífeyri, fósturlaun og eftir atvikum annan útlagðan kostnað vegna barnsins sem leiðir af ákvæðum barnaverndarlaga.

Í reglugerð nr. 804/2004 hefur ráðherra sett nánari reglur um fóstur og framkvæmd þess. Í 24. gr. reglugerðarinnar er fjallað um greiðslur til fósturforeldra. Þar segir í 7. mgr. 24. gr. að fósturforeldrar geti farið fram á greiðslur á ófyrirséðum kostnaði. Náist ekki samkomulag um greiðslur á ófyrirséðum kostnaði skal afgreiða málið með rökstuddri bókun sem er kæranleg.

Í reglugerð 858/2013 er að finna nánari reglur um greiðslur vegna barna í fóstri. Í 3. gr. reglugerðarinnar segir að fósturlaun greiðast vegna barna í tímabundnu fóstri og styrktu fóstri og einungis í algjörum undantekningartilvikum vegna barna í varanlegu fóstri, sbr. 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.

Í 4. gr. 5. gr. reglugerðarinnar segir að í algjörum undantekningartilvikum megi greiða fósturlaun vegna barns í varanlegu fóstri þegar sýnt þykir að umönnun barnsins muni verða sérstaklega krefjandi. Eru slík fósturlaun tímabundin og skal endurskoða eigi sjaldnar en árlega.

Í máli þessu er verið að breyta tímabundnum fóstursamningi í varanlegan fóstursamning. Við þær aðstæður taka greiðslur til fósturforeldra breytingum í samræmi við ákvæði reglugerðar 858/2013. Fósturlaun vegna barna sem ráðstafað er tímabundið í fóstur eru alla jafna ekki greidd nema í algjörum undantekningartilvikum, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 858/2013. Fyrir liggur að samþykkt hefur verið að greiða kærendum fósturlaun sem nema einföldum barnalífeyrir tímabundið í eitt ár. Að mati úrskurðarnefndarinnar hafa kærendur ekki fært rök fyrir því að vandi stúlkunnar sé slíkur að greiðslur til þeirra skuli vera umfram það sem ákveðið var í hinni kærðu ákvörðun.

Með vísan til alls framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.  


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Barnaverndar Reykjavíkur, dags. 27. ágúst 2025, um að synja, A og B, um greiðslu fósturlauna, vegna D, er staðfest. 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Kári Gunndórsson