11 desember 2025

/

Mál nr. 629/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 629/2025

Fimmtudaginn 11. desember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að staðfesta ákvörðun stofnunarinnar frá 4. mars 2025 þar sem greiðslur atvinnuleysisbóta til hans voru stöðvaðar og ofgreiddar bætur innheimtar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 3. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hann stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 10. til 31. janúar 2025, að fjárhæð 273.769 kr., að meðtöldu 15% álagi. Þann 25. september 2025 lagði kærandi fram skýringar og ný gögn vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Mál kæranda var í kjölfarið tekið fyrir að nýju þar sem ákvörðun frá 4. mars 2025 var staðfest. Kæranda var kynnt sú ákvörðun með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. október 2025. Með bréfi, dags. 2. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Með kæru til úrskurðarnefndar fylgdi erindi kæranda til Vinnumálastofnunar frá 25. september 2025. Þar kemur fram að kærandi óski eftir því að kannað verði hvort hann ætti rétt á að fá greiddar atvinnuleysisbætur fyrir janúar 2025 en hann hafi fengið endurkröfu vegna þess tímabils þar sem hann hefði verið í fjarnámi í Borgarholtsskóla á sama tíma. Kærandi tekur fram að hann hafi ekki vitað að hann þyrfti að sækja um násmleyfi þar sem hann hafi einungis verið í 10 einingum þessa önn. Vegna veikinda innan fjölskyldunnar hafi kærandi hætt í námi 27. febrúar 2025. Þá sé námið ekki lánshæft hjá menntasjóði námsmanna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um  atvinnuleysistryggingar þann 2. janúar 2025. Í umsókn kæranda hafi komið fram að hann væri ekki skráður í nám, hefði ekki verið skráður í nám á fyrri námsönn og væri ekki skráður í nám á næstu námsönn. Með erindi, dags. 3. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með 100% bótarétt.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós á kærandi hafi verið skráður í 20 ECTS eininga nám á vorönn 2025 við Borgarholtsskóla. Með erindi, dags. 20. febrúar 2025, hafi verið óskað eftir því að kærandi myndi skila skólavottorði þar sem umfang náms væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Engin gögn hafi borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 4. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði stundað nám á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 10. til 31. janúar 2025, að fjárhæð 238.060 kr., auk 15% álags, eða samtals 273.769 kr. sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 52. gr. laganna.

Þann 25. september 2025 hafi kærandi lagt fram skriflegar skýringar, auk skólavottorðs sem hafi staðfest að hann hefði verið skráður í 10 eininga nám á vorönn 2025 við Borgarholtsskóla. Með erindi, dags. 1. [október] 2025, hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju að teknu tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun frá 28. október 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.

Í 2. til 5. mgr. 52. gr. laganna séu undanþágur frá 1. mgr. sömu greinar. Ljóst sé af skýringum kæranda að hann telji að ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna eigi við í hans tilfelli.

Ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna sé svohljóðandi:

„Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.“

Samkvæmt ákvæðinu sé því heimilt að stunda ólánshæft nám, sem skipulagt sé samhliða vinnu, án skerðingar á atvinnuleysisbótum, svo lengi sem námið hindri ekki virka atvinnuleit eða þátttöku á vinnumarkaði.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi verið skráður í 20 eininga eininga nám á vorönn 2025 við Borgarholtsskóla, á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þegar kærandi hafi lagt fram ný gögn í máli sínu, ríflega hálfu ári eftir að óskað hafi verið eftir þeim, hafi skráning kæranda verið komin úr 20 eininga námi í 10 eininga nám í svonefndu dreifnámi. Við undirbúning að ritun umsagnar í máli þessu hafi verið leitað eftir skýringum á þessu misræmi hjá Borgarholtsskóla og fulltrúar skólans hafi ekki kannast við að kærandi hefði einungis verið skráður í 10 eininga nám á vorönn 2025, heldur 20 einingar eins og upphafleg gögn hafi borið með sér. Borgarholtsskóli hafi sent nýtt vottorð, dags. 11. nóvember 2025, sem staðfesti að kærandi hafi verið skráður í 20 eininga nám á vorönn 2025.

Samkvæmt úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna teljist nám kæranda í pípulögnum við Borgarholtsskóla lánshæft til framfærslu. Nám kæranda falli því ekki að undanþágu 4. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 31. janúar 2025. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. til 31. janúar 2025, samtals að fjárhæð 273.769 kr., að meðtöldu 15% álagi, enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda með álagi nemi í dag 0 kr., enda hafi greitt kröfuna þann 27. mars 2025.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. til 31. janúar 2025, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að meðtöldu álagi, samtals 273.769 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 4. mars 2025 þar sem kæranda var tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar með vísan til þess að hann stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 10. til 31. janúar 2025, að fjárhæð 273.769 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi, hvort hann hafi verið skráður í nám á síðustu námsönn eða sé skráður í nám á næstu námsönn. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráður í nám við Borgarholtsskóla á vorönn 2025 en svaraði þó öllum framangreindum spurningum neitandi á umsókn, dags. 2. janúar 2025. Í staðfestingu á móttöku umsóknarinnar var kærandi upplýstur um ýmis réttindi og skyldur og jafnframt greint frá því að ítarlegri upplýsingar hvað það varðar væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Með vísan til framangreindra upplýsinga sem kæranda voru veittar telur úrskurðarnefndin ljóst að hann hefði mátt vita að honum bæri að upplýsa Vinnumálastofnun um nám sitt þrátt fyrir að vera skráður í fáar einingar.

Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hann greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 31. janúar 2025 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að staðfesta ákvörðun stofnunarinnar frá 4. mars 2025 þar sem greiðslur atvinnuleysisbóta til A, voru stöðvaðar og ofgreiddar bætur innheimtar, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir