11 desember 2025

/

Mál nr. 631/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 631/2025

Fimmtudaginn 11. desember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. maí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hennar væri réttur til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. október 2025. Með bréfi, dags. 6. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu 6. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þann 19. maí 2025 og umsókn hennar hefði verið samþykkt með 100% bótarétti en réttur til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir. Skýringin sem kærandi hafi fengið á þessu hafi verið að hún hefði sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna. Kærandi mótmæli þeirri ákvörðun.

Þegar kærandi hafi verið að sækja um atvinnuleysisbætur hafi hún valið ástæðu úr uppgefnum lista: „vegna búferlaflutninga.“ Kærandi greinir frá því að hún hefði valið „vegna þvingaðra búferla“ hefði það verið valmöguleiki. Skýringar á atvinnuleysi kæranda séu einfaldar en hún og fyrrverandi kærasti hennar, sem hún hafi búið með, hafi hætt saman og hann hafi haldið húsinu vegna barna sinna og tengingu við B. C, eigandi D hafi verið tengdafaðir og yfirmaður kæranda. Það hafi verið bersýnilegt öllum tengdum aðilum að kærandi gæti ekki getað haldið starfi sínu áfram, heimilislaus og hjá fyrrverandi tengdaföður sínum. Þetta geti bæði fyrrverandi kærasti kæranda og fyrrverandi tengdafaðir staðfest.

Kærandi greinir frá því að hún hafi fengið tækifæri til að flytja aftur heim til mömmu sinnar og vinna tímabundið í hlutastarfi á veitingastað hennar, sem hún hafi þegið með það í huga að finna fullt starf í E.

Kærandi telji ástæður sínar fyrir þessari uppsögn vera góðar og fullgildar. Kærandi óski eftir því að hin kærða ákvörðun verði dregin til baka og að hún fái greitt fyrir þessa tvo mánuði, frá 1. júní 2025 til 1. ágúst 2025. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. maí 2025. Í umsókninni hafi kærandi tilgreint að  hún hefði sagt upp störfum vegna búferlaflutninga.

Með erindi, dags. 27. júní 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum kæranda á ástæðum uppsagnar. Kærandi hafi verið upplýst um mögulegan biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Þann sama dag hafi borist skýringar frá kæranda, svohljóðandi:

„Ástæða þess að ég lauk starfi hjá D er sú að ég fluttist frá B til E í byrjun maí mánaðar.“

Með erindi, dags. 8. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka kæranda hafi réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta verið felldur niður í tvo mánuði, sbr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um þau tilvik þegar starfi er sagt upp án gildra ástæðna. Segir þar orðrétt:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“

Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá D vegna búferlaflutninga.

Búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi þegar umsækjandinn sjálfur taki ákvörðun um að flytja búferlum. Líkt og áður komi fram segi í athugasemdum með ákvæði 54. gr. laganna að gildar ástæður kunni að vera fyrir uppsögn í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Sérstaklega sé tilgreint tilvik þegar maki hins tryggða hefji störf í öðrum landshluta og fjölskyldan þurfi af þeim sökum að flytja búferlum. Í máli þessu hafi borist nánari skýringar í málskoti til nefndarinnar og fyrir liggi að flutningur kæranda hafi komið til vegna sambandsslita. Kærandi hafi flutt af sameiginlegu heimili hennar fyrrverandi maka. Þá hafi hún verið í starfi hjá fyrrverandi tengdaföður sínum og því ákveðið að segja starfi sínu lausu. Samningsbundin staða ráðningarsambands milli starfsfólks og vinnuveitanda sé ekki háð fjölskyldutengslum eða sambandi starfsmanna við afkomendur eigenda. Þó fallast megi á það að staða kæranda hafi vissulega verið sérstök hafi kærandi sjálf ákveðið að segja starfi sínu lausu og sækja svo um atvinnuleysisbætur.

Með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna starfsloka hjá D geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar

Í ljósi framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta tveggja mánaða biðtíma á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá D en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hennar fyrir uppsögninni teljist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi sagt upp starfi sínu hjá D vegna sambandsslita. Kærandi hafi neyðst til að flytja af sameiginlegu heimili hennar og fyrrverandi maka þar sem hann hafi haldið húsnæðinu vegna barna sinna og tengingar við B. Þá hafi kærandi verið í starfi hjá fyrrverandi tengdaföður sínum og því ekki annað í stöðunni en að segja upp. Kærandi hafi flutt til móður sinnar í E þar sem henni hafi boðist tímabundið hlutastarf en haft þá von að finna fullt starf þar.

Líkt og fram kemur í athugasemdum við ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 þurfa sérstakar ástæður að liggja að baki uppsögn þegar einstaklingur hefur ekki tryggt sér annað starf til að heimilt sé að greiða atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn. Við mat á því hvort um sérstakar ástæður sé að ræða skal Vinnumálastofnun líta til málefnalegra sjónarmiða og almennt hefur það verið metið svo að það sé ekki gild ástæða í skilningi 54. gr. að segja upp starfi vegna búferlaflutninga. Í máli þessu háttar það hins vegar svo til að kærandi var búsett í bæjarfélagi fjarri nánustu fjölskyldu sinni þegar hún varð húsnæðislaus vegna sambandsslita. Kærandi var því tilneydd að flytja til móður sinnar í annað bæjarfélag þar sem henni stóð til boða hlutastarf.

Eins og atvikum er háttað í máli þessu er það mat úrskurðarnefndarinnar að um gilda ástæðu fyrir uppsögn sé að ræða og því eigi ekki að koma til biðtíma samkvæmt 54. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er felld úr gildi.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir