11 desember 2025
/
Mál nr. 633/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 633/2025
Fimmtudaginn 11. desember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 25. október 2023 og var umsóknin samþykkt 9. nóvember 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. október 2025. Með bréfi, dags. 7. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála kemur fram að kærandi vinni sem sjálfstæður verktaki hjá B en hann sé sendill hjá þeim. Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki sótt íslensku námskeiðið á tímabilinu 11. ágúst til 5. september 2025 sökum þess að hann hafi verið að vinna. Kærandi sé búinn að setja dagana sem hann hafi verið að vinna inn á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Samkvæmt meðfylgjandi launaseðlum frá bókhaldsfyrirtækinu C séu greiðslutímabil hjá þeim mismunandi. Frá 1. til 15. hvers mánaðar sé greiðsla innt af hendi 25. sama mánaðar. Frá 16. til 30./31. sé greiðsla innt af hendi 10. næsta mánaðar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 25. október 2023. Með erindi, dags. 9. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 8. ágúst 2025 hafi kærandi verið boðaður á námskeið sem hafi verið haldið dagana 11. til 15. ágúst, 18. til 22. ágúst og 1. til 5. september 2025. Um hafi verið að ræða námskeið í íslensku sem kennt hafi verið alla daga á milli 11:30 til 13:30. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða. Með tölvupósti, dags. 8. ágúst 2025, hafi kærandi sent eftirfarandi:
„Hello. I have a question, if I want to work on the days I have to go to classes, can I not work? Do I just have to go to classes?“
Með tölvupósti, dags. 11. ágúst 2025, hafi kæranda verið svarað og leiðbeint um að hefði hann þegar fundið vinnu bæri honum að afskrá sig. Kærandi hafi verið upplýstur um að ekki væri til staðar nein skráning um tímabundna vinnu á umsókn hans. Kærandi hafi svarað sama dag með eftirfarandi pósti:
„Hello. I referred to the workplace as an entrepreneur. So it has no connection.“
Kærand hafi þá verið upplýstur um að væri hann við vinnu væru það gild forföll (e. absence will be excused) en þá daga sem kærandi væri ekki að vinna bæri honum að sitja námskeiðið.
Kærandi hafi tilkynnt um verktakavinnu á „Mínum síðum“ þann 12. ágúst 2025, kl. 15:11 sem hafi staðið frá 11. til 15. ágúst 2025. Þá hafi hann tilkynnt um verktakavinnu á „Mínum síðum“ þann 21. ágúst, kl. 09:45 sem hafi staðið frá 21. til 22. ágúst 2025. Tilkynning hafi borist 27. ágúst 2025, kl. 18:55 um vinnu frá 28. til 31. ágúst. Kærandi hafi svo tilkynnt um verktakavinnu á „Mínum síðum“ þann 5. september 2025, kl. 12:18 um vinnu sem hafi staðið frá 1. til 4. september 2025.
Með erindi, dags. 16. september 2025, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðað námskeið dagana 11. til 15. ágúst, 18. til 22. ágúst, 25. til 29. ágúst og 1. til 5. september 2025. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Skriflegar skýringar hafi borist samdægurs frá kæranda:
„Hello! What documents should I attach? The reason I didn´t attend Icelandic language courses 1 is because I worked as an entrepreneur! They are uploaded these days on your website. Thank you.“
Með tölvupósti, dags. 30. september 2025, hafi kærandi ítrekað skýringar sínar. Kæranda hafi verið svarað með tölvupósti og honum tjáð að frekari skýringar en þessar væru æskilegar, þá væri einnig gott að fá afrit reikninga fyrir verktakavinnu fyrir þá daga sem hann hafi verið að vinna. Kærandi hafi sent tölvupóst sama dag þar sem hann hafi sagst vera að starfa sem sendill fyrir B og hafi verið að vinna á öllum þeim dögum sem námskeiðið hafi verið haldið. Þá hafi fylgt með þrír „launaseðlar“ eða uppgjörsgögn sem hafi átt að skýra tímabilið sem kærandi hafi verið að vinna, þó án allra sundurliðunar.
Með erindi, dags. 1. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun á námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. október 2025. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnunni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði séu efnislega þær sömu og málsástæður hans fyrir nefndinni.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnu-markaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umrætt námskeið. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 16. september 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru hans á boðað námskeið lúti að því að hann hafi í reynd verið að starfa sem sendill á meðan námskeiðið hafi verið haldið, alla 20 dagana.
Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannarlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða og bent á að fjarvera gæti leitt til greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Sama dag og boðun hafi verið send hafi kærandi óskað eftir upplýsingum um það hvort honum væri meinað að vinna þegar námskeiðið væri haldið. Í maí 2025 hafi kærandi verið boðaður á sama námskeið og ekki sinnt því vegna verkatakavinnu. Af þeim gögnum sem kærandi hafi veitt um vinnuþátttöku hans á tímabilinu sé ekki unnt að greina á hvaða tíma vinna hafi farið fram. Þá hafi kærandi ekkert mætt á boðað námskeið á þeim dögum sem hann hafi ekki verið við störf hjá B samkvæmt skráningu hans á verktakavinnu í kerfum stofnunarinnar.
Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað námskeið og að hann hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.
Í ljósi framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Þar sem kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri honum því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarp til laga nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 8. ágúst 2025 boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið í 20 skipti á tímabilinu 11. ágúst til 5. september 2025. Nánar tiltekið dagana 11.-15. ágúst, 18.-22. ágúst, 25.-29. ágúst og 1.-5. september. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kæranda þann 11. ágúst 2025 greint frá því að ef hann væri í vinnu einhverja daga yrði hann að skrá þá með tilgreindum hætti og þá yrði tekið tillit til fjarveru hans þá daga. Kærandi þyrfti hins vegar að mæta á námskeiðið aðra daga.
Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á boðað námskeiðið og skráði verktakavinnu á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar flesta dagana sem námskeiðið var haldið, eða 11. til 15. ágúst, 21. til 22. ágúst, 28. til 29. ágúst og 1. til 4. september 2025. Kærandi skráði enga vinnu dagana 18. til 20. ágúst, 25. til 27. ágúst og 5. september 2025 en mætti þó ekki á námskeiðið þá daga.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að mæta á námskeiðið þá daga sem hann var ekki að vinna. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðað námskeið á vegum Vinnumálastofnunar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir