11 desember 2025

/

Mál nr. 644/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 644/2025

Fimmtudaginn 11. desember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 29. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 25. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 24.932 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. október 2025. Með bréfi, dags. 8. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. nóvember 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið í góðri trú um að greiðslur sem hann hafi fengið væru fyrir vinnu sem hafi þegar verið lokið. Síðasti vinnudagur kæranda hafi verið 31. janúar 2025. Að sögn kæranda reikni félagið sem hann hafi starfað hjá launatímabil sitt frá 25. hvers mánaðar til 25. þess næsta, sem þýði að greiðsla sem hann hafi fengið í febrúar hafi verið fyrir síðustu vikuna í janúar, þegar hann hafi enn verið í vinnu. Hvað varði greiðslurnar í apríl og maí þá hafi hann ekki unnið hjá félaginu þá mánuði. Mögulega sé um mistök að ræða eða um að ræða óuppgerðar orlofs- eða starfslokagreiðslur. Hann hafi ekki ætlað að leyna neinum tekjum og á þeim tíma hafi hann talið að þetta væru lokagreiðslur frá fyrra starfi sínu, ekki nýjar tekjur sem þyrfti að tilkynna. Kærandi óski því eftir endurskoðun og niðurfellingu á þriggja mánaða greiðslum vegna atvinnuleysisbóta þar sem tekjurnar hafi annað hvort verið fyrir vinnu í janúarmánuði eða greiddar fyrir mistök eftir starfslok. Kærandi hafi verið í góðri trú og ekki haft í hyggju að veita rangar upplýsingar. Jafnframt óski kærandi eftir því að réttaráhrifum ákvörðunar Vinnumálastofnunar verði frestað þar til úrskurðarnefndin komist að endanlegri niðurstöðu vegna núverandi fjárhagsstöðu hans. Kærandi hafi engar aðrar tekjur og þurfi að greiða leigu og standa straum af grunnframfærslu en án atvinnuleysisbóta geti hann ekki greitt fyrir húsnæðis- og grunnframfærslukostnað á þessu tímabili.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 29. janúar 2025. Með erindi, dags. 25. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi kæranda verið sent erindi 16. september 2025 þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skýra ótilkynntar launagreiðslur í febrúar og apríl 2025. Auk skýringa hafi kærandi verið beðinn um að skila gögnum vegna þessara launagreiðslna, t.a.m. launaseðlum. Skýringar kæranda hafi borist 22. september 2025. Að sögn kæranda hafi hann verið í þeirri trú að hann væri að fá „eðlilegar“ greiðslur fyrir vinnu sem hann hefði þegar innt af hendi en í ljós hafi komið að hann hafi fengið launagreiðslur frá launagreiðanda fyrir mistök sem honum bæri að endurgreiða.

Með erindi, dags. 6. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hafi ekki upplýst stofnunina um tilfallandi vinnu væri greiðslum frestað í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi. Þá hafi kæranda verið gert að endurgreiða atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem launagreiðslur hefðu varðað. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 21.680 kr., sem innheimtar yrðu með álagi. Heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar næmi því 24.932 kr.

Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., 1 mgr. 61. gr. og 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 6. október 2025. Kærandi fari fram á að ákvörðun stofnunarinnar verði endurskoðuð og að krafa stofnunarinnar um endurgreiðslu felld niður. Þá óski kærandi eftir því að álag verði fellt niður. Kærandi mótmæli því að hafa látið hjá líða að tilkynna um tekjur og vinnu samhliða töku atvinnuleysisbóta og haldi því fram að um mistök launagreiðanda hafi verið að ræða.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. [6. október] 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta [þriggja] mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysisbóta og að honum beri að endurgreiða hluta þeirra atvinnuleysisbóta sem hann hafi fengið greitt á árinu 2025.

Mál þetta varði í fyrsta lagi almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafla laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreiningu á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá teljist í virkri atvinnuleit sem meðal annars hafi frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við. Þá sé tilgreint í 2. mgr. 14. gr. að það beri að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.

Af fyrirliggjandi gögnum málsins sé ljóst að kærandi hafi verið með tekjur í febrúar og apríl 2025 og að hann hafi ekki tilkynnt um störf sín á þeim tíma. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hefði þegið laun í febrúar og apríl 2025. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans. Með kæru til úrskurðarnefndarinnar hafi fylgt launaseðill kæranda vegna janúar 2025 sem varði ekki kæruefnið. Í kæru segi að það kunni að vera að fyrrverandi vinnuveitandi kæranda hafi fyrir mistök greitt honum laun í umræddum mánuðum. Kærandi hafi tjáð Vinnumálastofnun að honum beri líkast til að endurgreiða þær upphæðir sem honum hafi verið greiddar.

Vinnumálastofnun hafi hvorki borist launaseðlar fyrir umræddar launagreiðslur né önnur gögn frá launagreiðanda um að kæranda hafi verið greidd laun án vinnuframlags eða fyrir mistök. Þaðan af síður hafi stofnuninni borist staðfesting á því að laun til kæranda hefðu verið endurgreidd eða að atvinnurekandi hafi hug á því að gera kröfu til kæranda um að hann endurgreiði ofgreidd laun. Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins séu greiðslur heildarlauna til kæranda í febrúar og apríl 2025 enn með óbreyttu móti. Staðgreiðsla, persónuafsláttur eða framlag í lífeyrissjóð hafi ekki verið leiðrétt eða lækkað. Því sé ljóst að kærandi hafi fengið tekjur á umræddu tímabili sem hefðu haft bein áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga og kærandi hafi ekki fært fram nein gögn sem sýni fram á að launagreiðslur hefðu farið fram vegna mistaka eða að laun vegna tímabilsins hafi verið endurgreidd.

Að mati Vinnumálastofnunar sé sýnt fram á það að kæranda hafi fengið tekjur vegna starfa á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus. Kæranda hafi verið ljóst að tilkynna þyrfti um launatekjur til stofnuninni sem hann hafi ekki gert. Því beri honum að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði 59. gr. laganna en í 1. mgr. ákvæðisins segi að sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum. Hið sama eigi við þegar viðkomandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar sem verði á högum hans á því tímabili sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Hann skuli jafnframt endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Þar sem kærandi hafi áður sætt viðurlögum vegna starfsloka í mars 2024 komi til ítrekunaráhrifa skv. 1. mgr. 61. gr. laganna. Þar segi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir [enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Kæranda beri því að sæta biðtíma í þrjá mánuði.

Tekjur kæranda hafi numið 132.655 kr. í febrúar og 113.614 kr. í apríl samkvæmt þeim upplýsingum sem Vinnumálastofnun hafi aflað frá Skattinum en um hafi verið að ræða tekjur frá B. Kærandi hafi í febrúar og apríl þegið greiðslur atvinnuleysisbóta samhliða störfum hjá framangreindu fyrirtæki og hafi, eðli málsins samkvæmt, fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld hafi myndast við stofnunina, samtals að fjárhæð 21.680 kr., sem innheimt yrði með álagi. Heildarskuld vegna ákvörðunar stofnunarinnar hafi því numið 24.932 kr., að meðtöldu álagi skv. 2. mgr. 39. gr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji fullt tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, enda hafi kærandi ekki fært rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að hann skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að upphæð 24.932 kr., að meðtöldu álagi.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur frá B í febrúar og apríl 2025 samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi verið í góðri trú um að hann þyrfti ekki að tilkynna Vinnumálastofnun um tekjurnar þar sem greiðslan í febrúar hefði verið fyrir tímabil sem hann hafi enn verið í vinnu og greiðslan í apríl hafi mögulega verið gerð fyrir mistök eða um hafi verið að ræða óuppgerðar orlofs- eða starfslokagreiðslur.

Þann 29. janúar 2025 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna teknanna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreindar tekjur. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 25. mars 2024 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna, eða þriggja mánaða viðurlaga við ákvörðun Vinnumálastofnunar í október 2025.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 24.932 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar fyrir febrúar og apríl 2025 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006 og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, staðfest.

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir